Ljósmæðrablaðið - 01.12.2022, Page 39
ljósmæðrablaðið ljósmæðrablaðið
1. tölublað · 100. árgangur · desember 2022 3938 1. tölublað · 100. árgangur · desember 2022
nemaverkefni
Útskriftarverkefni til MSc gráðu
í ljósmóðurfræði vorið 2022
Með nýrri námskrá í ljósmóðurfræði þar sem MSc gráða er veitt
til starfsréttinda hefur rannsóknarvirkni ljósmæðranema aukist til
muna. Afraksturinn er ný og mikilvæg þekking sem nýst getur ís-
lenskum ljósmæðrum í starfi og eflt þá þjónustu sem veitt er. Rann-
sóknar verkefni nýútskrifaðra ljósmæðra má nálgast í heild sinni
á vefnum Skemman.is, auk þess sem vænta má þess að ritrýndar
rann sóknargreinar verði birtar úr hluta verkefnanna þegar fram líða
stundir. Engu að síður vill Ljósmæðrablaðið nú þegar koma á fram-
færi stuttum ágripum úr verkefnum ársins. Við vonum að efnið veki
áhuga í stéttinni og hjá samstarfsstéttum og komi af stað umræðum
um framtíðarsýn og gagnreynda starfshætti ljósmóðurfræðinnar.
höfundur elín inga lárusdóttir
Aftasta röð frá vinstri: Guðlaug Jóna Karlsdóttir, Hjördís
Magnúsdóttir, Hafrós Lind Ásdísardóttir, Elín Ösp Axelsdóttir
Miðjuröð frá vinstri: Guðrún Elín Davíðsdóttir, Dýrleif
Sigurjónsdóttir, Svandís Edda Gunnarsdóttir, Hrönn Hilmarsdóttir
Fremsta röð frá vinstri: Bryndís Sunna Jóhannesdóttir, Anna
Margrét Gunnlaugsdóttir, Sólrún Arney Siggeirsdóttir, Elín Inga
Lárusdóttir
Anna Margrét skoðaði reynslu kvenna sem glíma við vímuefna
vanda af meðgönguvernd og notaði til þess kerfisbundna fræði
lega samantekt á eigindlegum rannsóknum. Þungaðar konur
með vímu efnavanda upplifa flóknar tilfinningar, neik væð við
horf frá umönnunaraðilum og þær geta litið á með göngu vernd
sem áhættuþátt vegna ótta við að missa barn til barnaverndar
yfirvalda. Niðurstöður benda til þess að stuðningur ljósmæðra
skipti máli og leiði til jákvæðrar upplifunar. Innleiða ætti
þjónustu sem styður við tilfinningalegar áskoranir þeirra og
veita þarf umönnun án for dóma til þess að hvetja þennan við
kvæma hóp kvenna til þess að sækja meðgönguvernd.
Bryndís Sunna skoðaði áhrif notkunar ytra oxýtósíns í fæðingu
á brjóstagjöf með því að vinna kerfisbundna fræðilega saman tekt
og vildi hún þannig auka þekkingu á þessu málefni svo konur
geti tekið upplýsta ákvörðun um notkun þess í fæðingu. Niður
stöður hennar gefa til kynna að notkun ytra oxýtósíns í fæðingu
geti haft neikvæð áhrif á hegðun barns í brjóstagjöf skömmu
eftir fæðingu. Niðurstöður varðandi áhrif ytra oxýtósíns í fæðingu
á upphaf brjóstagjafar, meðaltímalengd brjóstagjafar og brjósta
gjöf til lengri tíma voru ekki jafn afgerandi en gáfu þó til kynna
neikvæð áhrif, sem er umhugsunarvert þar sem notkun ytra
oxýtósíns fæðingum er mikil og fer vaxandi.
Dýrleif gerði kerfisbundna fræðilega samantekt á megind legum
rannsóknum til þess að skoða hvers konar stuðning feður þurfa
í og eftir fæðingu frá ljósmæðrum og hvaða áhrif þessi stuðningur
hefur á upplifun þeirra af fæðingu. Góður stuðningur við feður
að þeirra mati felst meðal annars í nákvæmri upplýsinga gjöf
og viðveru ljósmóður í fæðingunni svo þeir geti verið konu sinni
stuðningur og fái tækifæri til að taka eins mikinn þátt í fæðingunni
og hægt er. Niðurstöður voru misvísandi varðandi áhrif stuðnings
á upplifun feðra af fæðingu en rannsóknin bendir á mikilvægi
þess að huga að og rannsaka líðan og þarfir stuðnings aðila í
fæðingu, en rannsóknir á feðrum eða mökum eru af skornum
skammti.
Elín Ösp skoðaði viðhorf og reynslu ljósmæðra af því hvernig
fæðingarumhverfið styður við eðlilegt ferli fæðingar með því að
taka rýnihópaviðtöl við ljósmæður. Yfirþemað hjá ljós mæðrunum
var að konan er miðpunkturinn en til þess að styðja við hana og
eðlilegt ferli þarf að huga að tvennu: fæðingar um hverfinu sjálfu
og ljósmóðurinni. Í ritgerðinni er komið inn á marga vinkla,
meðal annars að taka megi meira tillit til þekkingar á fæðingar
umhverfi við hönnun fæðingarstaða, þar sem tækni virðist fá sífellt
meira rými. Hún skoðar líka hvernig kunnátta ljós móðurinnar
er eins konar verkfæri sem hægt er að nota til að styðja við eðli
legt ferli og virðist yfirseta ljósmóður vera lykil atriði sem getur
dregið úr óþarfa inngripum.
heiti verkefnis
Reynsluheimur kvenna með
vímuefnavanda af meðgönguvernd.
Kerfisbundin fræðileg samantekt á
eigindlegum rannsóknum.
höfundur
Anna Margrét Gunnlaugsdóttir
leiðbeinandi
Valgerður Lísa Sigurðardóttir
heiti verkefnis
Áhrif notkunar ytra oxýtósíns í
fæðingu á brjóstagjöf: Kerfisbundin
fræðileg samantekt.
höfundur
Bryndís Sunna Jóhannesdóttir
leiðbeinendur
Berglind Hálfdánsdóttir og
Marianne Elisabeth Klinke
heiti verkefnis
Stuðningur ljósmæðra við feður í
barneignarferlinu. Kerfisbundin
fræðileg samantekt.
höfundur
Dýrleif Sigurjónsdóttir
leiðbeinandi
Valgerður Lísa Sigurðardóttir
heiti verkefnis
Hvernig styður fæðingarumhverfið
við eðlilegt ferli fæðingar?
Rýnihópaviðtöl við ljósmæður.
höfundur
Elín Ösp Axelsdóttir
leiðbeinendur
Helga Gottfreðsdóttir og Guðlaug
Erla Vilhjálmsdóttir