Ljósmæðrablaðið - 01.12.2022, Page 68
ljósmæðrablaðið ljósmæðrablaðið
1. tölublað · 100. árgangur · desember 2022 6968 1. tölublað · 100. árgangur · desember 2022
ritrýnd fræðigrein
Erfitt og eitthvað sem maður gerir
ekki ráð fyrir: Reynsla kvenna sem
byrja í eðlilegri fæðingu en enda í
bráðakeisaraskurði
A Difficult Experience and Something That One Does Not
Expect To Happen: The Experience of Women Who Begin
in Normal Labour and Then Must Undergo an Emergency
Caesarean Section
Bakgrunnur
Konur sem enda í bráðakeisaraskurði eru
líklegri til þess að upplifa neikvæða fæð
ingarreynslu en konur sem fæða eðli lega
eða fæða með valkeisaraskurði. Þær fá
gjarnan þá tilfinningu að þær séu búnar
að missa stjórn, óttast jafnvel um líf sitt
og barnsins og finna fyrir kvíða og von
brigðum yfir því að fæðingin hafi ekki
endað eins og þær vonuðust til.
Tilgangur
Að öðlast dýpri skilning á reynslu kvenna
sem byrja í eðlilegri fæðingu en þurfa að
fara í bráðakeisaraskurð.
Aðferð
Þessi rannsókn var gerð með fyrirbæra
fræði legri nálgun og stuðst var við að ferð
Vancouverskólans. Úrtakið var tilgangs
úrtak þar sem skilyrði fyrir þátttöku voru:
að tala íslensku, að hafa byrjað í eðlilegri
fæðingu og endað í bráðakeisaraskurði,
að minnsta kosti sex mánuðir og í mesta
lagi fimm ár væru liðin frá fæðingu. Aug
lýst var eftir þátttakendum í Facebook
hópnum Mæðratips og tekið var eitt við
tal við hvern þátttakanda, þar sem stuðst
var við viðtalsramma, samtals 12 viðtöl.
Niðurstöður
Konurnar lýstu blendnum tilfinningum
eins og vonbrigðum, hræðslu og því að
óttast um líf sitt og barnsins, auk þess
sem þær fundu fyrir ákveðnum létti. Yfir
þema rannsóknarinnar, erfið reynsla:
eitt hvað sem maður gerir ekki endilega ráð
fyrir að gerist, lýsir því hvernig konurnar
upplifuðu það sem áfall að þurfa að fara
í bráðakeisaraskurð og að þær hefðu verið
lengi að vinna úr þeirri lífs reynslu. Megin
þemun voru sjö: að þurfa að fara í bráða
keisara skurð, andleg líðan, áhrifa þættir,
líkamleg líðan, fræðsla og eftir fylgni, maki og
stuðningsaðilar og líðan í dag. Síðan voru
greind undirþemu undir meginþemunum.
Ályktun
Það að byrja í eðlilegri fæðingu og fara í
bráðakeisaraskurð reynist konum erfið og
oft flókin lífsreynsla þar sem stuðningur
ljósmæðra getur haft mikil áhrif á upp
lifun kvennanna.
Lykilorð
bráðakeisaraskurður
fæðingarupplifun
andleg líðan
ljósmóðurfræði
fyrirbærafræði
ÁgripHöfundar
María Sunna Einarsdóttir,
ljósmóðir og hjúkrunar-
fræðingur BS, MS 1
Dr. Sigfríður Inga Karlsdóttir,
prófessor, ljósmóðir og
hjúkrunarfræðingur BS, MS,
PhD 2
1 Landspítali.
2 Heilbrigðis-, viðskipta- og raun-
vísinda svið, Háskólinn á Akureyri.
tengiliður inga@unak.is
Inngangur
Það er mjög mismunandi eftir löndum og heimsálfum hversu
há keisaratíðni er, en hún hefur haldið áfram að aukast undan
farin ár og samkvæmt tölum frá Alþjóðaheilbrigðismála
stofnuninni (World Health Organization, 2021) var tíðnin á
heimsvísu komin upp í 21% árið 2021, samanborið við 7% árið
1990. Undanfarin ár hefur keisaratíðni á Íslandi verið 14.0%
17.5% og árið 2020 var hún 16.1% en það ár voru 65% keisara
skurða bráðakeisaraskurðir og 35% valkeisaraskurðir. Þegar
ákveðið er að framkvæma keisaraskurð áður en fæðing hefst, og
að minnsta kosti átta klukkustundir hafa liðið frá ákvörðun um
keisara þar til aðgerð er framkvæmd, flokkast keisaraskurðurinn
sem valkeisaraskurður. Þeir keisaraskurðir sem ekki falla undir
þessa skilgreiningu teljast til bráðakeisaraskurða (Védís Helga
Eiríksdóttir og Hildur Björk Sigbjörnsdóttir, 2021). Í þessum
aðstæðum getur upplifun kvenna af fæðingunni orðið töluvert
frábrugðin upphaflegum væntingum þeirra (Coates o.fl., 2019;
Yokote, 2008). Mikilvægt er fyrir ljósmæður að auka þekkingu
sína á því hver reynsla kvenna sem fara í bráðakeisaraskurð
er, þar sem hann eykur líkur á neikvæðri fæðingarreynslu
(Karlström, 2017). Þar að auki getur hann haft neikvæð áhrif
á við horf kvenna til frekari barneigna (Coates o.fl., 2019).
Fræðilegur bakgrunnur
Bráðakeisaraskurður er gerður þegar líf móður og/eða barns er
í hættu en keisaraskurður er ekki áhættulaus. Helstu ástæður
fyrir bráðakeisaraskurði eru fósturstreita og tepptur fram gangur
í fæðingu og helstu fylgikvillar keisaraskurða eru blæðing frá
legi, rifa frá legskurði og hiti í sængurlegu. Einnig er aukin
hætta á blóðtappa, blóðgjöf og sýkingu í skurðsárum (Heiðdís
Valgeirsdóttir o.fl., 2010). Tilgangur bráðakeisara skurðs er að
bjarga lífi móður og/eða barns, en mikilvægt er fyrir heilbrigðis
starfsfólk að hafa í huga hvaða áhrif bráðakeisaraskurður getur
haft á andlega og líkamlega heilsu kvenna til skemmri eða lengri
tíma (Benton o.fl., 2019). Niðurstöður rannsóknar sem fram
kvæmd var í Tyrklandi sýndu að þær konur sem höfðu byrjað
í eðlilegri fæðingu og endað í bráðakeisaraskurði upp lifðu nei
kvæðar tilfinningar eins og ótta, depurð og kvíða (Meric o.fl.,
2019) og þær upplifðu jafnframt vonbrigði, fannst þær ekki hafa
stjórn á aðstæðum og óttuðust um líf sitt og barnsins (Benton
o.fl., 2019). Auk þess hefur komið fram í rannsóknar niður
stöðum að konur upplifa gjarnan eftirsjá (KonheimKalkstein
og MironShatz, 2019). Konur sem hafa farið í keisara skurð
eru frekar með neikvæða upplifun af fæðingunni en þær konur
sem hafa fætt um fæðingarveg (Burcher o.fl., 2016; Schantz o.fl.,
2021), sérstaklega þær konur sem hafa farið í bráða keisara skurð
(Coates o.fl., 2019; Handelzalts o.fl., 2017). Sterk tengsl eru
einnig á milli þess að fara í bráðakeisaraskurð og kvíða fyrir því
að eignast aftur barn (Dencker o.fl., 2019). Ein helsta ástæða
ótta við fæðingu hjá fjölbyrjum er slæm fyrri reynsla af fæðingu
og þær konur sem verða fyrir slíkri reynslu óska frekar eftir að
fara í valkeisaraskurð (Eide o.fl., 2019; Løvåsmoen o.fl., 2018).
Barnshafandi konum finnst of litlum tíma varið í
með gönguverndinni í að ræða fæðingarmáta og undirbúa þær
fyrir þann möguleika að fæðingu ljúki með bráðakeisaraskurði
(Gottfredsdottir o.fl., 2016) og stór hluti kvenna sem leitar sér
aðstoðar vegna neikvæðrar fæðingarupplifunar hefur fætt með
bráða keisara skurði (Valgerður Lísa Sigurðardóttir o.fl., 2017).
Í fræðilegri samantekt úr 26 fræðigreinum, þar sem þátt
takendur voru alls 5.693, sýndu niðurstöður að konunum sem
höfðu endað í bráðakeisaraskurði fannst þær vera hlutgerðar og
hunsaðar og þær töldu sig ekki vera hafðar með í ákvarðanatöku.
Þeim fannst heldur ekki hafa verið hlustað á þær og upplifðu
þar af leiðandi vanmáttarkennd. Einnig þótti þeim þær ekki
nægi lega vel undirbúnar og upplifðu sig misheppnaðar vegna
þess að þær hefðu ekki fætt eðlilega. Þar að auki voru þær
með þá tilfinningu að þær hefðu misst af einhverju. Í þessari
rann sókn kom einnig fram að konunum fannst vera skortur á
upp lýsingum um gang fæðingarinnar og eftir fæðinguna fannst
þeim vanta útskýringar á ástæðu þess að þær enduðu í bráða
keisara skurði. Einnig töldu þær vanta fræðslu um bataferlið og
um önnun barnsins (Coates o.fl., 2019). Konur sem hafa farið í
bráða keisara skurð eru síður sáttar við störf heilbrigðisstarfsfólks
(Benton o.fl., 2019). Bráðakeisaraskurður er áhættuþáttur fyrir
því að konur fái áfallastreituröskun (Benton o.fl., 2019) og
allt að 3.1% kvenna fá slíka röskun eftir fæðingu (De Graff
o.fl., 2018). Einnig eru auknar líkur á því að konur sem fara í
bráða keisara skurð fái fæðingarþunglyndi (Eckerdal o.fl., 2017)
og þær eru lengur að ná sér líkamlega eftir bráðakeisaraskurð
í samanburði við annan fæðingarmáta (Benton o.fl., 2019).
Þegar konur eru með neikvæða fæðingarupplifun getur það
haft neikvæð áhrif á andlega líðan þeirra til skemmri eða lengri
tíma (Simpson og Catling, 2016). Helsta markmið ljósmæðra
og annars heilbrigðis starfsfólks sem kemur að fæðingu er að
móðir og barn komist heil í gegnum fæðingu en eins og fram
hefur komið sýna rannsóknir að þessu getur verið ábótavant
þegar kemur að upplifun kvenna af bráðakeisaraskurði (Burcher
o.fl., 2016; Carquillat o.fl., 2016; Boorman o.fl., 2014). Því er
mikilvægt að rannsaka og fá aukinn skilning á því hver reynsla
kvenna sem fara í bráðakeisaraskurð er og hvernig hægt er að
styðja þær konur sem best.
Markmið rannsóknar og rannsóknarspurning
Takmörkuð þekking er til staðar á reynslu kvenna sem byrjað
hafa í eðlilegri fæðingu og endað í bráðakeisaraskurði. Til
gangur þessarar rannsóknar er að fá betri og dýpri skilning á
reynslu kvenna sem byrja í eðlilegri fæðingu en enda í bráða
keisaraskurði, hvernig þær upplifa þá reynslu og hvernig þeim
farnast eftir fæðinguna. Sett var fram rannsóknarspurningin:
Hver er reynsla kvenna sem byrja í eðlilegri fæðingu en enda
í bráðakeisaraskurði?