Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.12.2022, Síða 83

Ljósmæðrablaðið - 01.12.2022, Síða 83
ljósmæðrablaðið ljósmæðrablaðið 1. tölublað · 100. árgangur · desember 2022 8382 1. tölublað · 100. árgangur · desember 2022 fullt leyfi fyrir sína starfsemi í Amish byggðunum. Talið var að mótmælin hefðu skipt þar sköpum, enda vöktu þau athygli þar sem Amish konur eru ekki vanar að láta í sér heyra. Heidi lést í júní á síðasta ári, þannig að Diane er oft eina ljósmóðirin á þessu svæði. Nú hefur Christine ljósmóðir frá Wasington fylki bæst í hópinn, en hún hefur verið með Diane fyrri hluta þessa árs. Þegar ég sjálf kom í janúar var hins vegar bara einn ljósmóðurnemi og aðstæður voru þannig hjá Diane að hún þurfti skyndilega að taka sér frí. Ég fór því í fullt af fæðingum, stundum bara með ljósmóðurnema með mér. Eitt langar mig til að segja og það er það að það er mjög fallegur siður hjá Amish fólkinu að þegar barn fæðist í fjölskylduna, þá er kölluð til amma, vin kona eða frænka, jafnvel yngri systur sem koma til að sinna heimilinu. Konurnar eru því að hjálpa hver annarri og sængurkonan á að vera í fríi í 6 vikur Hvernig var að vinna við þessar aðstæður? Það er mjög skrýtið að þekkja ekki sitt bakland, en ég vissi samt að ég gat alltaf hringt í Diane og Christine ef ég þyrfti á þeim að halda. Konurnar þarna kvarta ekki og það er mikil auðmýkt gagn- vart fæðingunni og æðruleysi. Það er eiginlega það sem maður lærir svo mikið af og treystir jafnframt á. Það var til dæmis ein kona sem var að eiga sitt áttunda barn og hafði alltaf átt langan, leiðin- legan rembing. Heidi hafði tekið á móti hjá henni nokkrum sinnum og í næst síðustu, í sjöttu fæðingunni, þá tók rembingurinn fimm klukku tíma. Það eru nú ekki margir hér heima sem hefðu beðið svona lengi. Í þessari fæðingu var konan með nánast búna útvíkkun þegar hún kom upp á klíník. Konan kom á klíníkina seint um kvöld og ég, Diane, Christine og ljósmóðurneminn tókum á móti henni. Diane vill ekki kalla þetta fæðingar- heimili því þá þarf meiri leyfi. Á klíníkinni er rekin mæðravernd tvo daga í viku og svo eru til dæmis gerðar ómskoðanir af ómskoðunartæknum sem eru mjög færir og hafa lengi unnið með læknum. Það var lítið að gerast og rembingur hafði verið í rúma í tvo tíma. Konan var búin að vera í góðan tíma í baðinu, en það eru mjög skemmtileg bað- ker á fæðingarstofunum. Þegar hér var komið sögu fór Christine aðeins frá og Diane ákvað að skreppa út í bíl að ná í rebozo sjalið. Þá ákvað konan að prófa stellingu sem henni var ráðlögð í baðinu og pabbinn kom hlaupandi og sagði að konan sín haldi að barnið sé að koma. Þá fór neminn inn til hennar og ég fylgdi henni. Ég hafði ekki hitt þetta par en þar sem neminn hafði ekki verið lengi í verknáminu, og var óreynd, fór ég með. Fæðingunni lauk með því að barnið fæddist bara í baðinu og ég lét nemann grípa barnið, hún var í betri stöðu og mér fannst þetta ekki vera mitt. Hún greip barnið og fékk sína fyrstu fæðingu hjá Diane. Þetta var mjög gaman og var líka sigur fyrir konuna. Fyrri börnin höfðu verið stór, um 20 merkur, þetta var mun nettara. Kristbjörg segir að á sínum tíma hafi hún ákveðið að fara ekki í meistarnám, en fyrir hana er það sann­ kölluð endur­ eða framhaldsmenntun að fara út og læra hjá ljósmóður eins og Diane. Ég fer út til að læra af lærimeistaraljósmóður sem hefur verið með yfir 200 nema sem fá síðan sín fag legu starfsréttindi. Hún er með 10 þúsund fæðingar og klíníkin hennar er eiginlega jafnstór fæðingar staður og Akranes. Ég get unnið í Pennsylvaníu með mína menntun og íslenskt leyfi á meðan ég vinn með Diane, en ef ég vil formlega taka að mér nema, þarf ég amerískt ljósmóðurleyfi og ég er að sækja um það í Washington fylki. Grunnviðmiðin þar eru svipuð og í Evrópustaðlinum. Kristbjörg segir að starfsvettvangur Diane sé á breiðu sviði innan heilsugæslunnar. Diane veitir alhliða kyn­ heilbrigðisþjónustu og sinnir konum bæði fyrir og Úr dagbók Kristbjargar. eftir meðgöngu. Hún sinnir til dæmis konum sem eru að missa fóstur og lenda í mikilli blæðingu. Diane veitir líka ráðgjöf til að koma í veg fyrir fóstur lát og hefur sérþekkingu í að mæla hormón eins og pró­ gesteron og HCG. Hún vinnur með læknum og lyfja fræðingum, gerir blöndur og gefur hormóna lyf. Þá er hún með fæðingar fræðslu nám skeið og almennt með nákvæma og mjög góða fræðslu í sam hengi við bakgrunn, samfélag og menningu Amish fólksins sem fróðlegt sé að læra um. Í heima þjónustu í sængur­ legu er yfirleitt farið á þriðja degi eftir fæðinguna. Það er löng vitjun og þá er meðal annars tekið PKU, heyrnar mælt og veitt mikil fræðsla. Konurnar geta komið í eftirskoðun, fyrst eftir tvær vikur og svo aftur eftir sex vikur. Þá hjálpar Diane konunum í tengslum við að takmarka barn eignir til dæmis með því að kenna þeim að fylgjast með tíða hringnum, slíminu í leg hálsinum og hún mátar og mælir líka fyrir hettu. Diane tekur á móti hjá konum með sögu um fyrri keisara og hjá konum sem eru með börn í sitjanda­ stöðu. Það gera ekki allar ljósmæður á þessum slóðum. Diane er með mikla sérþekkingu á sitjandafæðingum og hefur tekið á móti yfir 600 börnum í sitjandi stöðu. Konur koma langt að til að þiggja hennar ljósmóður­ þjónustu. Hún mælir með að frumbyrjur séu með doulu, auk þess sem hún vill að konurnar fari á fæðingar fræðslu námskeið hjá sér. Þá geta margar fæðingarsögur komið upp í sam­ tölum í mæðraverndinni og sumar konurnar lýsa erfiðri reynslu. Amish konurnar hafa ekki bak land í heil brigðis kerfinu og ef þarf að flytja þær á sjúkra­ hús þurfa þær að borga sjálfar þar sem þær eru ekki tryggðar. Þó er lægra gjald fyrir Amish fólk og mennoníta. Ég var hjá einni konu sem missti fóstur 10-12 vikur og það blæddi mikið og hún þurfti flutning. Amish fólkið keyrir ekki sjálft bíl og er með á kveðin síma númer sem það hringir í til að fá akstur. Þetta fólk er ekki með síma og verður að hringja í síma klefum og það er mislangt að komast í þá. En það er hægt að flýta fyrir og fara á sér stöku hlaupa hjóli, eins og pabbinn í þessari sögu gerði. Konan var svo í aftursætinu og bíl- stjórinn var með síma til að hringja í okkur ef blæðingin yrði meiri. Við hringdum svo á undan þeim svo þau fengju þjónustu strax þegar þau kæmu á spítalann. Margar Amish konur mæta seint og sjaldan í mæðra vernd. Ég hitti eina sem var rúmar 30 vikur þegar hún kom í fyrstu skoðun og átti von á níunda eða tíunda barni. Það voru vand ræði í hennar hjóna bandi. Hún hafði ekki verið hjá Diane í fyrri meðgöngum. Hún var líka fyrri Fæðingarstofa og fæðingarlaug úr klíník Diane. Kristbjörg ásamt ljósmóðurnemum í Lancaster. keisari vegna sitjandastöðu. Við vorum í áfalli ég og neminn að heyra hennar sögu um heimilis- ofbeldi en það var ekki á planinu að eignast þetta barn. Hjá Amish fólkinu er skilnaður ekki í boði. Hjón eru áfram gift og þannig er það bara. Kristbjörg talar mikið um æðruleysið og þetta sterka samband við Guð sem hún finnur hjá konunum sem fæða næstum allar heima. Hún telur ástæðuna fyrir því að konurnar kvarta ekki vera að þær bara viti hvað
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Ljósmæðrablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.