Ljósmæðrablaðið - 01.12.2022, Page 97
ljósmæðrablaðið ljósmæðrablaðið
1. tölublað · 100. árgangur · desember 2022 9796 1. tölublað · 100. árgangur · desember 2022
fyrirburi eða nýburi var í hvíld. Raskaðar aðstæður (R), við
bleyju skipti, hitamælingu, hagræðingu eða annað. Sársaukafullar
aðstæður (S), við hælstungu, blóðprufu úr blá æð, upp setningu
æðaleggja, sogun í nef/kok, ísetningu magasondu og fleiri inn
grip sem talin eru sársaukafull.
Fyrirfram var ákveðin röðun að stæðna sem var ólík í
hvert sinn. Röðun var því ýmist HRS, SRH, RSH, RHS, SHR
eða HSR og þeim raðað tilviljanakennt en réðst þó að hluta af
aðstæðum hverju sinni. Upplýsingum um röðun var komið fyrir
á minnisblaði í möppu hvers barns sem valið var til þátttöku.
Strikað var yfir þegar mælingu í viðkomandi aðstæðum var lokið
og var þannig auðvelt að fylgja eftir hvaða að stæður voru eftir
til mælingar. Að lág marki var klukkustund milli mælinga svo að
fyrri aðstæður lituðu ekki upplifun barns við aðrar aðstæður.
Mælitæki
PIPPR (e. Premature Infant Pain Profile – Revised) er fjölþátta
verkjamatskvarði sem metur bráðaverki hjá fyrirburum og
ný burum og hefur gefist vel við rann sóknir og við klínískar
aðstæður. PIPPRverkja matskvarðinn hefur verið rann sakaður
mikið með tilliti til áreiðan leika og rétt mætis við verkja mat við
inn grip hjá fyrir burum og veikum nýburum. Mats kvarðinn tekur
til greina lífeðlislegar breytur, auk hegðunar og bakgrunns
breyta. Líf eðlis legar breytur eru hjartsláttartíðni (slög/mínútu)
og súrefnismettun (SaO2). Hegðunarbreyturnar eru þrjár (augu
kreist aftur, setur í brýnnar og skora frá nasavæng að munnviki).
Bakgrunnsbreyturnar eru leiðréttur meðgöngualdur (vikur
+ dagar) og vökustig barns við upphaf inngrips. Hver breyta
er metin á fjögurra stiga kvarða (0,1,2,3) sem endurspeglar
breytingar frá grunngildi og ætlað er að heildarstigagjöf gefi til
kynna styrk verkja sem barnið upp lifir. Leiðbeiningar og viðmið
fyrir mats kvarða eru sýnd í mynd 1.
Niðurstöður
Þátttakendur, alls 50 börn, voru metnir í tveimur áföngum. Alls
19 börn voru fyrst prófuð árið 2018 og árið 2021 bættist við 31
barn. Öll börnin voru metin í þremur mismunandi að stæðum
af tveimur rannsakendum samtímis og alls voru 150 mælingar
framkvæmdar; 50 í hlutlausum, 50 í röskuðum og 50 í sárs auka
fullum aðstæðum. Í töflu 1 hér á eftir má sjá um hverfisaðstæður
fyrir hverja mælingu, stoðmeðferðir, tíma frá síðustu fæðu gjöf
og loks tegund inngripa við þrenns konar aðstæður. Fæst börn
(12) voru yfir meðgöngulengd 36 vikur.
Réttmæti
Munur á milli mælingaaðstæðna
Settar voru fram tilgátur til að athuga hvort væri marktækur
munur á mælingum við þrenns konar aðstæður sem fóru fram
í prófun á íslPIPPR verkjamatskvarðanum. Aðaltilgátan snerist
um að það væri munur á milli aðstæðnanna þriggja við heildar
stigagjöf íslPIPPR. Notað var meðaltal heildarstiga til að bera
saman íslPIPPR í hlutlausum, röskuðum og sárs auka fullum
Aðstæður Hlutlausar Raskaðar Sársaukafullar
n=50 n=50 n=50
Umhverfi
Vagga 20 20 12
Hitakassi 20 19 19
Hitaborð 6 9 18
Í fangi 4 2 1
Klst. frá fæðugjöf
3 tímar 14 18 16
2 tímar 24 21 19
< 1 klukkustund 12 11 15
Stoðmeðferð við inngrip
Engin 33 26 0
Súkrósa 0 0 4
Stutt við legu 12 14 2
Reifun, snuð
og súkrósa 0 0 11
Stutt við legu, snuð,
súkrósa og/eða reifun 0 0 18
Brjóstagjöf 1 0 0
Snuð og súkrósa 0 2 10
Reifun og snuð 0 2 0
Stutt við legu, snuð
og eða súkrósa 1 2 4
Stutt við legu og reifun 2 2 0
Reifun 1 2 1
Tegund inngripa
Ekkert inngrip 50 1 1
Hitamæling 0 22 0
Blóðprufa úr bláæð 0 2 35
Bleyjuskipti 0 9 0
Nálaruppsetning 0 0 7
Hælstunga 0 0 4
Sogun í kok 0 0 1
Ísetning magasondu 0 0 1
Annað (Hagræðing,
úr fangi í hitakassa
og öfugt) 0 16 1
Tafla 1 Lýsing á umhverfi og aðstæðum fyrirbura
og veikra nýbura, stoðmeðferðir við inngrip
og tegund inngripa.
aðstæðum. Það ætti að segja til um hvort íslPIPPR sé í raun að
mæla það sem honum er ætlað að mæla – verki hjá fyrirburum
og nýburum. Hér er verið að athuga réttmæti íslPIPPR. Stuðst
var við ANOVApróf til að komast að hvort mark tækur munur
væri á meðaltali mælinga milli aðstæðna og Tukeypróf til að
mæla nákvæmlega á milli hvaða hópa væri marktækur munur.
Niðurstöður meðaltals heildarstiga sýndu að marktækur
munur var á milli þrenns konar aðstæðna og heildarstigagjafar
beggja rannsakenda. Hæstu stigin voru gefin að meðaltali í sárs
auka fullum aðstæðum og fæst stigin voru gefin að meðaltali í
hlutl ausum aðstæðum hjá báðum rannsakendum (tafla 2). Núll
tilgátunni (T0) um að ekki sé munur á heildarstigagjöf milli
þriggja ólíkra aðstæðna við mat á sársauka með íslPIPPR er
því hafnað. Þar með stenst rannsóknartilgátan (T1) að munur
sé á heildar stigagjöf milli þrenns konar aðstæðna við mat á sárs
auka með íslPIPPR verkjamatskvarðanum.
Samkvæmt fylgniprófi ANOVA var marktækur munur
milli heildarstiga íslPIPPR í öllum aðstæðum þar sem mældist
(p<0,001) hjá báðum rannsakendum (Sjá töflu 3). Hjá rann
sakanda A var (F(2,147)= 85,45), p<0,001) og hjá rann sakanda
B var (F(2,148)= 78,67, p<0,001). Hægt er að staðhæfa að
ísl PIPPR greini á milli aðstæðna þar sem munur á stigagjöf
beggja rannsakenda var tölfræðilega marktækur eftir aðstæðum.
Áreiðanleiki
Munur á milli rannsakenda
Settar voru fram tilgátur um mun á milli rannsakenda og fundin
meðaltalsgildi rannsakenda í öllum þremur aðstæðum. Voru þau
síðan borin saman með pöruðu tprófi.
Matsþættir Pearson’s r fylgni Pearson’s r fylgni Pearson’s r fylgni
í íslPIPP-R við hlutlausar við raskaðar við sársaukafullar
aðstæður aðstæður aðstæður
Breyting á
hjartsláttartíðni 0,937** 0,968** 0,918**
Lækkuð
súrefnismettun 0,939** 0,956** 0,992**
Setur í brýnnar (-) 0,771** 0,661**
Augu kreist aftur 0,700** 0,825** 0,775**
Skora frá nasavæng
að munnviki/efri vör
dregst upp (-) 0,889** 0,749**
Leiðrétt
meðgöngulengd 1,000** 1,000** 1,000**
Vökustig 1,000** 1,000** 1,000**
** Fylgni er marktæk á 0,001 stigi. <0,3 er veikt samband, <0,31-0,6 er miðlungs sam-
band, >0,6 er sterkt samband.
(-) stendur fyrir að ekki hafi verið hægt að reikna fylgni fyrir þennan matsþátt þar sem
öll börn hjá rannsakanda í þessum aðstæðum fengu sama stig (0 stig).
Tafla 2 Meðaltal heildarstiga íslPIPP-R
milli rann sakenda í þrenns konar
aðstæðum (N=50).
Aðstæður Rannsakandi A Rannsakandi B
Meðaltal Staðalfrávik Meðaltal Staðalfrávik
Hlutlausar 1,70 2,46 1,70 2,57
Raskaðar 4,12 2,39 4,28 2,60
Sársaukafullar 8,64 3,36 8,64 3,38
Tafla 3 Fylgni (ANOVA) milli heildarstiga
íslPIPP-R í þrenns konar aðstæðum
(N=50).
Heildarstig Hlutlausar Raskaðar Sársauka- F-gildi P-gildi
fullar
Rannsakandi A 1,70 4,12 8,64 85,45 <0,001
Rannsakandi B 1,72 4,28 8,64 78,67 <0,001
Tafla 4 Fylgni milli allra mats þátta
íslPIPP-R við þrenns konar
aðstæður og stiga gjafar
rannsakenda (N=50).