Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.06.2005, Síða 59

Tímarit lögfræðinga - 01.06.2005, Síða 59
að minnsta kosti meirihluta Alþingis til þess að geta setið í ráðherrastóli. Eina raunhæfa „refsitegundin“ sem fylgir hinni pólitísku ábyrgð er að ráðherra láti af störfum. Hin tegund ráðherraábyrgðar, og sú sem rætt er um hér, er hin lagalega ábyrgð, þ.e. refsi- og eftir atvikum bótaábyrgð ráðherra, sem mælt er fyrir um í lögum nr. 4/1963 um ráðherraábyrgð.118 4.3 Almennt um lög nr. 4/1963 um ráðherraábyrgð Lög nr. 4/1963 um ráðherraábyrgð geyma efnisreglur um skilyrði fyrir refsi- ábyrgð ráðherra vegna tiltekinna brota í embætti. Einnig er í 13. gr. rbl. mælt fyrir um réttarfarshagræði varðandi greiðslu skaðabóta í tilefni af refsiverðri háttsemi ráðherra en þar segir að skaðabótaskylda ráðherra fari eftir almennum reglum. Hafa verður í huga að efnisreglur rbl. beinast að ráðherra sem einstak- lingi en ekki sem stofnun og verður því að gæta allra þeirra stjórnarskrárbundnu mannréttindareglna við túlkun og beitingu almennra laga sem tryggja réttar- stöðu manna sem sakaðir eru um refsiverða háttsemi. Ráðherra tapar ekki mannréttindum sínum þegar hann tekur við ráðherrastóli. Orðalag 2. málsl. 14. gr. stjórnarskrárinnar er með þeim hætti að löggjaf- anum er skylt að setja reglur um ráðherraábyrgð. Stjórnarskrárgjafinn hefur með ákvæðinu tekið af skarið með það að ráðherra skuli sæta lagalegri ábyrgð enda þótt athafnir hans kunni einnig að hafa í för með sér hina þinglegu ábyrgð sem að framan var nefnd.119 Samkvæmt 2. málsl. 14. gr. stjórnarskrárinnar er ráðherraábyrgð ákveðin með lögum og verður að skýra þetta ákvæði m.a. með hliðsjón af öðrum ákvæðum stjórnarskrárinnar sem hafa þýðingu þegar löggjafinn setur refsi- ákvæði. Fyrir utan það að hugtakið lög í 14. gr. stjórnarskrárinnar kunni að girða fyrir þann möguleika að löggjafinn framselji framkvæmdavaldinu, þ.e. ráðherra, vald til þess að ákvarða efni og inntak ráðherraábyrgðar,120 leiðir það af samræmisskýringu þessa ákvæðis og 1. mgr. 69. gr. stjórnarskrárinnar að meginafmörkun efnisreglna um ráðherrábyrgð verður að vera í settum lögum 118 Sjá nánar Ólafur Jóhannesson: Stjórnskipun Íslands, bls. 162. 119 Um rökin að baki þessari stefnu, sjá eftirfarandi athugasemdir úr greinargerð með frumvarpi því er varð að lögum nr. 4/1963, sbr. Alþt. 1962, A-deild, bls. 167: „Þinglega ábyrgðin veitir ráð- herra vissulega mikið aðhald, og samkvæmt þingræðisreglunni getur Alþingi eða meiri hluti þess hvenær sem er, losað sig við misvitran ráðherra. Lagalegu ábyrgðinni má þó aldrei sleppa. Að sjálf- sögðu er ekki ástæða til, að aðrar reglur gildi um embættisbrot ráðherra heldur en um samkynja brot annarra embættis- og sýslunarmanna. Meginstefna hlýtur að vera sú, að um sambærileg brot gildi sömu reglur, hver sem í hlut á. En staða ráðherra er svo sérstæð, að þeir geta orðið sekir um það misferli í starfi, sem vart eða ekki er hugsanlegt hjá öðrum opinberum starfsmönnum. Hinar sér- stöku embættisskyldur ráðherra hafa naumast verið hafðar í huga við samningu almennra hegning- arlaga“. 120 Um takmörk framsals lagasetningarvalds á sviði refsiréttar sjá Jónatan Þórmundsson: Afbrot og refsiábyrgð I, bls. 187-191 og Róbert R. Spanó: „Stjórnarskráin og refsiábyrgð“ (fyrri hluti), kafli 7. 59
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.