Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.2006, Side 20

Tímarit lögfræðinga - 01.12.2006, Side 20
363 Þá hélt dómstóllinn því fram, eftir að hafa sett sig í spor enskumælandi neyt- anda, að þótt orðin tvö gætu hvort um sig verið notuð í daglegu máli til að lýsa virkni bleyja fyrir börn, væri „óvenjuleg setningaskipun“ þeirra ekki þekkt orðatiltæki í ensku máli, hvorki til að lýsa bleyjum fyrir börn né mikil- vægum eiginleikum þeirra.81 Dómstóllinn ályktaði því að orðasamsetningar eins og Baby-Dry væru ekki lýsandi heldur væru þær nýyrði sem gæfu merk- inu sem þær mynduðu sérkenni og að ekki ætti að synja umsókn um skrán- ingu merkisins á grundvelli c-liðar 1. mgr. 7. gr.82 Dómstóllinn ræddi ekki sérkenni Baby-Dry beint af réttarfarslegum ástæðum. Jacobs aðallögsögumaður hélt því fram um þetta atriði að ekki væri byggt á ákvæði b-liðar 1. mgr. 7. gr. í málinu og engin ástæða væri til þess. Upphafleg ákvörðun skráningarskrifstofu ESB væri eingöngu byggð á c-lið 1. mgr. 7. gr. og úrskurður áfrýjunarnefndarinnar um að vísa málinu frá hefði ekki bætt við ákvæði b-liðar 1. mgr. 7. gr. sem viðbótarskilyrði fyrir synjun skráningar. Hann benti síðan á að undirrétturinn hefði ekki tekið á þessu skilyrði í dómi sínum.83 Áfrýjunarnefndin hafði hins vegar bent á í úrskurði sínum að ákveðin skörun væri milli ákvæða b- og c-liðar 1. mgr. 7. gr., um skort á sérkenni og því hvort merki gæti talist lýsandi. Vörumerki sem eingöngu lýsti gerð, gæðum eða áætlaðri notkun umræddrar vöru væri ekki hæft til að greina hana frá annarri vöru.84 Í kjölfar niðurstöðu dómstólsins var málinu í heild vísað að nýju til áfrýj- unarnefndar skráningarskrifstofu ESB sem taldi sig bundna af því mati dómstólsins að hugtakið Baby-Dry teldist hafa sérkenni. Því skyldi upphaf- leg ákvörðun skráningaryfirvalda ógilt og merkið skráð.85 5. LÝSANDI MERKI SKV. C-LIÐ 1. MGR. 7. GR. REGLUGERÐARINNAR 5.1 Almennt Skilyrði þess að merki geti talist lýsandi er að finna í c-lið 1. mgr. 7. gr. reglugerðarinnar og samhljóða ákvæði er í c-lið 1. mgr. 3. gr. tilskipunarinn- ar. Samkvæmt þessum ákvæðum skal synja umsókn um skráningu merkis sem eingöngu er samansett úr táknum eða upplýsingum sem geta í viðskipt- um gefið til kynna gerð, gæði, fjölda, áætlaða notkun, verð, upprunaland eða framleiðslutíma vöru, tíma þegar þjónusta var innt af hendi eða aðra eiginleika vöru eða þjónustu. Þessi ákvæði eiga rætur sínar að rekja til liðar essential characteristics is apt to confer distinctive character on the word combination enabling it to be registered as a trade mark.“ 81 Sami dómur, 43. mgr., þar sem segir m.a. „…their syntactically unusual juxtaposition is not a familiar expression in the English language…“ 82 Sami dómur, 44. mgr. 83 Sami dómur, 56. mgr. 84 Úrskurður R 35/1998-1, Baby-Dry, 14. mgr. 85 Úrskurður R 35/1998-3 frá 17. júlí 2002, Baby-Dry, 44. mgr.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.