Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.2006, Blaðsíða 105

Tímarit lögfræðinga - 01.12.2006, Blaðsíða 105
448 anda á hendur stefnda er ekki um efndir kaupskyldu samkvæmt samkomulaginu heldur um bætur vegna vanefnda. Þar sem ekki er í samkomulaginu með skýrum hætti gert ráð fyrir slíku vanefndaúrræði verður að fallast á með héraðsdómara að ekki sé unnt að skilja samkomulagið á þá leið, að hæstbjóðandi yrði bóta- skyldur ef hann af einhverjum ástæðum stæði ekki við boð sitt. Að þessu athug- uðu og með vísan til héraðsdóms að öðru leyti verður hann staðfestur um annað en málskostnað. Í hinum tilvitnuðu orðum felst, að rétturinn lítur ekki svo á, að með gerð samkomulagsins 13. júní 2005, sem sannarlega felur í sér tilboð um kaup á hluta í fasteign fyrir tiltekið verð og er samþykkt með skuldbindingu um afhendingu, allt með þeim formlega hætti, sem tilskilið er í 7. gr. fkpl., hafi aðiljarnir óhjákvæmilega undirgengizt þær skyldur og öðlast þau réttindi, sem fkpl. mæla fyrir um. Rétturinn nálgast viðfangsefnið þannig, að aðilj- arnir hafi þurft að semja um tilgreind vanefndaúrræði. Hér er talið að þessi nálgun fái ekki staðizt og fari í bága við þær grundvallarreglur í samninga- rétti um túlkun, sem lýst er að framan. Þá skal áréttað, að vandséð er, hvaða þýðingu orðin: ,,Krafa áfrýjanda á hendur stefnda er ekki um efndir kaup- skyldu samkvæmt samkomulaginu heldur um bætur vegna vanefnda.“ hafa miðað við rökstuðning Hæstaréttar að öðru leyti. Hér er fallizt á meginatriðin í rökstuðningi í sératkvæði eins dómenda, þar sem segir um samkomulagið: Orðalagið er skýrt og ekkert er fram komið varðandi atvik við samningsgerðina eða orðalag samkomulagsins að öðru leyti, sem leitt getur til þess að stefndi sé ekki skuldbundinn í samræmi við tilboð sitt. Samkvæmt því tel ég að taka beri kröfu áfrýjanda til greina og dæma stefnda til að greiða honum málskostnað á báðum dómstigum. 6.3 Batt málatilbúnaður J hendur dómstóla? Það er vandasamt að gagnrýna niðurstöður dómstóla í einstökum mál- um og rökstuðning fyrir þeim, þar sem dómari er bundinn af málatilbúnaði aðilja. Í 2. mgr. 111. gr. eml. segir svo: Dómari má ekki byggja niðurstöðu sína á málsástæðu eða mótmælum sem hefðu átt að koma fram en gerðu það ekki við meðferð máls. Málsástæða er staðhæfing málsaðilja um atvik eða staðreyndir, sem hann telur að eigi eftir réttarreglum að leiða til þess, að kröfur hans verði teknar til greina.18 Málsástæða hefur einnig verið skilgreind með nokkuð þrengri hætti, þ.e., að það séu málsatvik, sem kröfur séu reistar á.19 Aðalatriðið er, að málsaðilinn þarf að hafa tilgreint málsatvikin og hann þarf að reisa mála- 18 Markús Sigurbjörnsson: Einkamálaréttarfar, bls. 22. 19 Þór Vilhjálmsson: Réttarfar I, bls. 25.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.