Tímarit lögfræðinga - 01.12.2006, Blaðsíða 49
392
sæmilega vel upplýstur, athugull og gætinn.213 Ef tákn eru t.d. samsett úr
enskum orðum er hinn almenni neytandi enskumælandi. Út frá enskumæl-
andi neytanda taldi dómstóllinn að jafnvel þótt hugtakið Baby-Dry ýjaði
óumdeilanlega að hlutverki vörunnar og orðin tvö í samsetningunni gætu
hvort um sig verið hluti setningar sem í daglegu máli gæfi til kynna hlutverk
bleyja fyrir börn væri „óvenjuleg setningaskipun“ þeirra ekki þekkt fram-
setning í ensku máli, hvorki til að gefa til kynna bleyjur fyrir börn né til að
lýsa grundvallareiginleikum þeirra.214
Í Baby-Dry-málinu voru bleyjurnar ekki ætlaðar öllum neytendum og því
var hinn almenni neytandi í þessu máli foreldrar smábarna. Markmið þeirra
er væntanlega að halda börnum sínum þurrum og af hagnýtum ástæðum
eru þeir, eða ættu að minnsta kosti að vera, gagnrýnir á gæði vörunnar. Ekki
var metið í Baby-Dry-málinu hvort hægt væri að villast á vöru frá Procter
& Gamble og vörum annarra framleiðenda og til of mikils mælst að halda
því fram að hinn almenni enskumælandi neytandi geti gert ráð fyrir því að
Baby-Dry-bleyjur, hvort sem hugtakið er nýyrði eða ekki, séu Pampers Baby-
Dry og því megi rekja viðskiptauppruna til fyrirtækisins Procter & Gamble.
Skilyrðin um mat á lýsandi merki og sérkenni voru spyrt saman með þeim
hætti að útkoman olli óvissu um túlkun.
Í þessu samhengi má einnig nefna að það getur verið mjög erfitt fyrir hinn
almenna neytanda að vita hvaða vöru hann er að kaupa. Svokallaðir OEM-
samningar215 eru t.d. notaðir um vörur sem þegar eru til á markaði, venjulega
undir þekktu vörumerki. Kaupandinn, t.d. Bónus- eða Hagkaups-verslanir,
setur síðan sitt eigið vörumerki á þessa vöru þegar hann setur hana á mark-
að, stundum í samkeppni við upprunalegu vöruna.216 Það er enginn hægð-
arleikur að uppgötva að sama varan er seld undir fleiri en einu vörumerki því
vörurnar eru ekki alltaf merktar uppruna. Því er hægt að finna sömu vöruna
hlið við hlið í verslun með mismunandi vörumerkjum án þess að neytandinn
taki almennt eftir því. Þrátt fyrir þá staðreynd að margir almennir neytendur
hugsi mest um vöruverð er þetta óásættanlegt fyrir þá sem vilja þekkja upp-
runa vörunnar og hugsanlega greiða aðeins meira fyrir gæði.
Gera má ráð fyrir að foreldrar sem almennir neytendur við kaup á
bleyjum vilji vita t.d. hvort Bónus-bleyjur eru Pampers Baby-Dry og því frá
bandaríska fyrirtækinu Procter & Gamble, Libero-bleyjur frá sænska fyrir-
tækinu SCA eða bleyjur frá enn öðrum framleiðanda. Upplýsingarnar sem
felast í hugtakinu Baby-Dry fyrir bleyjur tengja það ekkert við fyrirtækið
sem framleiðir þær og höfða aðeins til notagildis en varla gæða. Því getur
213 Mál nr. C-329/02 P, Sat.2, 24. mgr. dómsins.
214 Mál nr. C-383/99 P, Baby-Dry, 43. mgr. dómsins.
215 Enska: Original Equipment Manufacturer-Agreements.
216 Lidgard, H.H.: Competition Classics, Material & Cases on European Competition Law
and Practices, Part I, 2004/2005. Lundur 2004, bls. 226.