Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.2006, Page 100

Tímarit lögfræðinga - 01.12.2006, Page 100
443 stofnazt um 33.33% eignarhlut GG lóðinni og í því sambandi vísað til þess, að umboðsskortur hans gæti ekki leitt til þeirrar niðurstöðu að milli hans og L hefði komizt á samningur, annars efnis en fólst í gagntilboði því, er áður greinir. Það er ekki óhugsandi að umbjóðandi hafi sérstaka hagsmuni af því, að ekki liggi ljóst fyrir hver hann er, þegar gert er tilboð í fasteign. Vera kann, að hann telji, að það gæti haft áhrif á hugsanlegt kaupverð. Það er ekki útilokað, að slíkar ástæður hafi legið að baki í framangreindu máli. Er ástæðulaust að gera það að skilyrði, að upplýst sé hver hann er, enda ábyrg- ist umboðsmaðurinn sjálfur, að hann hafi umboð til þeirra ráðstafana, sem hann gerir í nafni umbjóðanda síns, sbr. 1. mgr. 25. gr. laga nr. 7/1936. Í framangreindum dómi voru skilyrði skaðabóta fyrir hendi, en vegna grand- semi fulltrúa tjónþola (tilboðsgjafa/umbjóðanda) var kröfu um skaðabæt- ur hafnað. Ef tilboðsmóttakandi telur mikilvægt að fá upplýst, þrátt fyrir ábyrgð umboðsmanns, hver tilboðsgjafi er, getur hann krafizt að fá að vita það. Sé vitneskjan ákvörðunarástæða fyrir hann, getur hann eftir atvikum hafnað tilboðinu, ef neitað er að upplýsa um tilboðsgjafann. 4. SKULDBINDINGAR SAMKVÆMT KAUPSAMNINGI UM FAST- EIGN. RÉTTARÁHRIF Þegar kaupsamningur um fasteign hefur stofnazt samkvæmt þeim reglum, sem fkpl. mæla fyrir um, er hann skuldbindandi. Með tilboði og samþykki þess hafa aðiljarnir samþykkt að undirgangast þær reglur, sem gilda um fasteignakaup samkvæmt fkpl. Enn fremur hafa þeir skuldbundið sig til þess að hlíta reglum í öðrum lögum, sem varða þessa tegund samninga og geta haft þýðingu, t.d. lög um skráningu og mat fasteigna, nr. 6/2001, þinglýsingalög, nr. 38/1978, og lög um samningsveð, nr. 75/1997. Eins og áður segir, geta aðiljar samið sig undan ákvæðum fkpl., sbr. 1. mgr. 5. gr. laganna, enda sé ekki um neytendakaup að ræða, sbr. 6. gr. þeirra. Í þeim tilvikum eru takmarkanir á frelsi til að semja sig undan lögunum, þ.e. í þeim tilvikum, sem slíkir samningar myndu skerða réttindi kaupanda, sbr. 2. mgr. 5. gr. laganna. Þegar metið er efni og réttaráhrif samnings, hér samnings um kaup á fasteign, er það gert með túlkun á samningnum. Túkun felst í tvennu. Ann- ars vegar í skýringu á efni samningsins, en markmið hennar er að leiða í ljós, hvers efnis samningurinn er, þ.e. um hvað aðiljarnir voru í raun að semja. Hins vegar fyllingu, en markmið hennar er að marka samningi réttaráhrif á grundvelli réttarreglna eða annarra réttarheimilda.12 Sú tvígreining, sem fram kemur að ofan, þ.e. að greina túlkun í skýr- ingu og fyllingu, er viðhöfð í flestum norrænum fræðiritum, þótt yfirleitt séu 12 Framangreind hugtakanotkun er í samræmi við þá, sem notuð er í riti Páls Sigurðssonar: Samningaréttur, bls. 46 og áfram, sbr. einkum bls. 52-56.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.