Tímarit lögfræðinga - 01.12.2006, Qupperneq 102
445
orðalag samkomulags sameigendanna um skuldbindingargildi tilboðs, bæri sam-
komulagið ekki með sér önnur vanefndaúrræði en þau, að ef ekki yrði staðið við
tilboð, skyldi sá, er ætti næsta tilboð þar fyrir neðan, eiga rétt á að leysa til sín
jörðina. Er sérstaklega tekið fram, að krafa J á hendur stefnda sé ekki um efndir
kaupskyldu, heldur um skaðabætur vegna vanefnda. Þar sem ekki væri í sam-
komulaginu með skýrum hætti gert ráð fyrir slíku vanefndaúrræði, yrði að fallast
á, að ekki væri unnt að skilja samkomulagið á þá leið, að hæstbjóðandi yrði bóta-
skyldur ef hann, af einhverjum ástæðum, stæði ekki við boð sitt.
Einn þriggja dómenda skilaði sératkvæði, þar sem hann komst að þeirri
niðurstöðu, að tilboð hæstbjóðanda væri skuldbindandi, og hefðu allir sam-
eigendur staðfest það skriflega eftir opnun umslaga með tilboðum þeirra.
Taldi þessi dómari orðalagið skýrt, og að ekkert hefði komið fram við samn-
ingsgerðina, sem leitt gæti til þess, að S væri ekki skuldbundinn í samræmi
við tilboð hans. Taldi hann því, að fallast bæri á skaðabótakröfu J.
Rétt þykir að taka upp það sem máli skiptir í téðu samkomulagi og við-
bótarsamkomulagi:
,,Eigendur jarðarinnar Hamraenda í Breiðuvík,
[...]
hafa orðið sammála um að slíta sameign sinni á jörðinni ásamt öllu því er henni
fylgir með eftirfarandi hætti:
1. Aðiljar gera hvorir öðrum tilboð í eignarhluta sinn með þeim hætti að á lok-
uðum fundi aðilja með lögmönnum sínum að Suðurlandsbraut 4, Reykjavík,
mánudaginn 13. júní 2005 kl. 13:00 leggur hver um sig fram tilboð í lokuðu um-
slagi sem þeir rita nöfn sín utan á. Í hverju umslagi er tilgreind sú fjárhæð sem
viðkomandi aðili verðmetur jörðina á.
2. Sá aðili sem tilgreinir hæst verð skuldbindur sig til að greiða hinum út eign-
arhluta þeirra sem hlutfall af verðmæti jarðarinnar. Skal greiðslan fara fram
eigi síðar en 13. ágúst 2005. Berist greiðslan ekki á eigandi næsthæsta verðmats-
ins rétt á að leysa hina aðiljana út á því verði sem hann sjálfur tilgreindi sem
verðmæti jarðarinnar í sínu tilboði, innan tveggja mánaða frá því ljóst var að
greiðslufall yrði af hálfu gagnaðiljans. Berist greiðsla ekki frá honum á sá sem
tilgreindi lægstu fjárhæðina rétt á að leysa [...] Sá sem rétt á að leysa hina út skal
hafa umráðarétt yfir eigninni frá þeim degi sem tilboðin eru opnuð.
3. Gegn greiðslu samkvæmt 2. tölulið skal kaupandi fá afsal fyrir hinum seldu
eignarhlutum. Verði annar en JS kaupandi samkvæmt samkomulagi þessu skal
hluti kaupverðs ganga beint til að greiða upp áhvílandi lán á eignarhluta JS, hafi
hann ekki aflétt þeim áður en til greiðslu kemur.
4. Í kaupunum telst innifalið [...]
Reykjavík 13. júní 2005.
[undirskriftir og vottar]