Bændablaðið - 12.01.2023, Blaðsíða 39

Bændablaðið - 12.01.2023, Blaðsíða 39
39Bændablaðið | Fimmtudagur 12. janúar 2023 Fyrir jól gaf Landbúnaðarháskóli Íslands út ritið Fóðurgildi nokkurra nýrra grastegunda, í ritröð háskólans. Í ritinu kanna höfundarnir Guðni Þorvaldsson og Tryggvi Eiríksson hvernig fjórar grastegundir, sem hafa nýlega verið teknar í notkun í íslenskri túnrækt, standa sig í samanburði við tvær hefðbundnar tegundir hvað fóðurgildi varðar. Guðni segir að vallarrýgresi hafi verið ákveðið draumagras, en notkun á því hér á Íslandi er þeim vandkvæðum bundið að það hefur lítið vetrarþol. Að sögn Guðna voru fjórar nýjar tegundir skoðaðar; vallarrýgresi, hávingull, tágavingull og axhnoðapuntur. Þær voru síðan bornar saman við vallarfoxgras og vallarsveifgras sem hafa verið í notkun lengi. Fóðurgildi var metið út frá meltanleika, heildartréni og hrápróteininnihaldi – skoðað var hvernig þessir fóðurþættir breyttust með tíma bæði í fyrri og seinni slætti. Meiri meltanleiki og lægra trénishlutfall Guðni segir að vallarrýgresi sé mikið notað á suðlægari slóðum álfunnar. „Gallinn við það hefur verið sá að það hefur ekki mikið vetrarþol. Það verður því framtíðarmarkmið að kynbæta það í átt til meira vetrarþols og það sama gildir einnig um hinar tegundirnar. Allar þessar fjórar tegundir þyrftu meira þol gagnvart okkar löngu og umhleypingasömu vetrum,“ segir Guðni. Hann bendir einnig á að umræða um loftslagsbreytingar hafi ýtt undir áhuga á að skoða nýjar tegundir sem myndu henta betur hlýrra veðurfari. Í niðurstöðum ritsins kemur fram að vallarrýgresi hafi haldið háum meltanleika lengur en aðrar tegundir í rannsókninni og trénishlutfall var lægra en hjá hinum tegundunum. Hávingull mældist einnig með ágætan meltanleika og frekar lágt tréni. Meltanleiki axhnoðapunts og tága- vinguls var heldur lægri en hjá hinum tegundunum. Axhnoðapuntur var með hæst hlutfall trénis í báðum sláttum. Prófa þarf grastegundirnar í fóðurtilraunum „Þó svo að tréni, meltanleiki og prótein segi mikið til um gæði grasa til fóðurs þá kemur fleira til, þannig getur bragð og áferð grasanna haft áhrif á lystugleika,“ segir Guðni. „Það væri því æskilegt að prófa þessar tegundir í fóðrunartilraunum einnig. Einnig er mikilvægt að hafa í huga að ekki þarf allt fóður að vera í hæsta gæðaflokki. Það eru fyrst og fremst mjólkandi gripir sem þurfa hágæða fóður og það getur verið skaðlegt að gefa gripum sem ekki eru í vexti eða mjólkurframleiðslu of kjarnmikið hey. Það skiptir miklu máli að þekkja eiginleika tegundanna á ýmsum sviðum, til dæmis vetrarþol, uppskeru, endurvöxt og fóðurgildi. Það nýtist okkur við val á tegundum til sáningar og þegar þær eru komnar í túnin, nýtingarmöguleika þeirra. Sumar tegundir henta betur sem hágæða fóður en aðrar. Þær sem gefa lakara fóður má þá nýta til að fóðra fénað sem ekki þarf hágæðafóður. Þessi rannsókn er liður í því að kortleggja þessar tegundir með tilliti til fóðurgæða yfir sprettutímann. Við fáum yfirsýn yfir fóðurgæðin í upphafi sprettu og hversu hratt þau breytast með tímanum. Þetta ferli er mismunandi eftir tegundum,“ segir Guðni. /smh Íslensk framleiðsla á Bílskúrs- og Iðnaðarhurðum 564-0013 | 865-1237 Aðgerðaráætlunum um eflingu kornræktar á Íslandi - Bændafundir Matvælaráðherra fól starfshóp á vegum Landbúnaðarháskóla Íslands að skrifa aðgerðaáætlun um eflingu kornræktar á Íslandi í ágúst sl. Tillögur um aðgerðir eru nú vel á veg komnar en stefnt er að skilum á þeim 1.mars nk. Starfshópurinn mun kynna drög aðgerðar- áætlunarinnar fyrir bændum og hvetur því bændur og áhugafólk um kornrækt til þess að mæta á fundi til þess að ná samtali um tilllögurnar. Starfshópinn skipa Helgi Eyleifur Þorvaldsson, Hrannar Smári Hilmarsson og Egill Gautason. Fundirnir fara fram á tveimur stöðum: • Þingborg í Flóahreppi kl 14:00, miðvikudaginn 18. janúar • Búgarði, Óseyri 2 á Akureyri kl 14:00, fimmtudaginn 19. janúar BORGARPLAST hefur framleitt rotþrær, skiljur og geyma sem hafa margvísleg notagildi fyrir vatn, efnavöru og fleira, í yfir 50 ár. BORGARPLAST sérmíðar risarotþrær, -skiljur og -vatnsgeyma fyrir sveitarfélög og sumarhúsafélög. Borgarplast.is borgarplast@borgarplast.is ROTÞRÆR, VATNSTANKAR OG SKILJUR – MARGAR STÆRÐIR OG TEGUNDIR ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA Í YFIR 50 ÁR Axhnoðapuntur 16. júlí, mörg blöðin farin að sölna. Grastegundarannsóknir: Vallarrýgresi ákveðið draumagras Guðni Þorvaldsson hefur lengi fengist við rannsóknir á grösum hjá LbhÍ, bæði fóðurgrösum og grösum fyrir íþróttavelli. Mynd / Aðsend Skráið smáauglýsingar á www.bbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.