Bændablaðið - 12.01.2023, Blaðsíða 58
58 Bændablaðið | Fimmtudagur 12. janúar 2023
Spámenn tískunnar telja að
á nýju ári muni ókynbundin
tíska öðlast frekari vinsældir
á almennum mörkuðum, þar
sem vörumerki og smásalar
endurspegla breytt viðhorf
neytenda til kyns.
Er það viðhorf aðallega knúið
áfram af kynslóðinni sem kallast
Gen-Z. (fædd 1996–2015), en
glöggir tískuunnendur muna e.t.v.
eftir tímabili fyrir um hálfri öld
eða svo, þegar svokölluð „blurred
bounderies“ þóttu hámóðins. Var
þá kynbundinni markaðssetningu
kollvarpað og hetjur á borð við Boy
George skutu upp kollinum.
Ókynbundin tíska áranna áður
Í gegnum söguna hefur auðvitað
verið hrist hressilega upp í
kynhlutverkunum og því vert að
muna að hvorki árið 1983 né núna,
árið 2023, er
verið að finna
upp hjólið.
Í raun þvert
á móti.
Flappertískan svokallaða í
kringum 1920 er dæmi, svona
ef öldin síðasta er tekin fyrir, en
þá kitluðu hönnuðir á borð við
Coco Chanel, kvenkyns neytendur
sína með hönnun strandarbuxna og
buxnadragta.
Hár þótti mest móðins klippt rétt
niður fyrir eyru og margar konur
reyktu opinberlega, þá gjarnan með
munnstykki.
Snemma á fjórða áratugnum
klæddist leikkonan Marlene
Dietrich buxum á frumsýningu og
þótti afar djörf, en tók þó skrefið
og fylgdu aðrar á eftir.
Sem önnur dæmi má nefna
nöfn á borð við Elvis Presley sem
notaði andlits- og augnfarða auk
Mick Jagger og David Bowie sem
báðir eru þekkt nöfn er kemur að
kynlausri tísku.
Unisex-hönnun óþarfi
En aftur að deginum í dag. Eitthvað
hefur verið um á síðustu tveimur
árum eða svo, að tískuhönnuðir
hafi reynt að fóta sig við hönnun
þess sem þeir kalla „unisex“.
Hafa þær tilraunir fengið frekar
neikvæða gagnrýni fremur en hitt
og ekki talin þörf á slíkum fatnaði
þótt sjónarhorn unga fólksins í dag
sé á þeirri línu.
Frekar ætti að hætta að flokka
þann fatnað sem hannaður er,
eftir kynjum, enda skilgreinir
fjöldinn í dag sig helst eftir litrófi
kynvitundar.
Núnú, með það bak við
eyrað hafa tískurisar á borð við
Calvin Klein og Gucci tekið nýja
stefnu. Samstarf CK við (fata-
og hjólabrettafyrirtækið) Palace
bauð upp á línu gallafatnaðar
í svokallaðri yfirstærð, hettupeysur
og nærfatnað þar sem ekkert
var flokkað eftir kyni, heldur ætlað
þeim öllum.
Gucci hefur getið sér gott orð
varðandi hönnun og framleiðslu
ókynbundins fatnaðar og hefur unnið
bæði með kven- og karlstærðir til
jafns. Samstarf Uniglo á síðastliðnu
ári við Marni, kom einnig sterkt inn,
en auglýsingaherferðir sýndu flíkur
einungis ótengdar kyni.
Kynleysi innan vörumerkja
Í síauknum mæli fjarlægja nú
vörumerki kynjaflokka fyrir að
minnsta kosti einhvern hluta
framleiðslu sinnar. Merkið Phluid
Project frá New York, kynskiptir t.d.
ekki fatnaði sínum heldur fer hönnun
þeirra eftir sérsniðnu stærðarlíkani.
Uniqlo hannaði „Made For All“
safn þar sem karl- og kventísku var
blandað saman í verslunum þeirra,
bæði á netinu og annars staðar.
Merkjarisarnir hafa svo undan-
farið tekið sinn eigin snúning á
tískupöllunum. Fyrirsætur hafi
klæðst fatnaði óháð hvaða kyni
hönnunin er upphaflega ætluð.
Strunsuðu karlkyns fyrirsætur
Raf Simons niður pallana í kjólum
með nýlakkaðar neglur og hjá
Maison Margiela klæddust þeir
pilsum og háum stígvélum.
Í kjölfar þeirra orða má segja frá
skóhönnuðinum fræga, Christian
Louboutin, sem býður nú upp
á takmarkað magn háhælaðra
ökklastígvéla fyrir karlmenn. (Með
rauða sólanum að sjálfsögðu.)
Og svona áður en fólk krossar
sig í bak og fyrir má minna á
diskótímabilið þar sem annar hver
karlmaður gekk í háhæluðum skóm.
Má ætla að áframhaldandi
þróun ókynbundinnar tísku verði
því einn af hápunktum hönnunar
og markaðssetningar á árinu
sem nú er að hefjast – og haldist
í hendur við innkaup og áhuga
stærsta neytendahópsins – sem
er víst Z-kynslóðin eins og áður
wwvar nefnt. /SP
Snjótittlingur er smár en harðgerður spörfugl sem finnst hér allt árið. Hann er að mestu staðfugl en hluti stofnsins hefur vetursetu í Skotlandi og hingað koma grænlenskir snjótittlingar og ýmist dvelja hér
yfir veturinn eða stoppa við á leið sinni til Bretlandseyja þar sem þeir hafa sínar vetrarstöðvar. Þeirra helstu varpstöðvar eru á hálendinu og upp til fjalla, en þeir finnast einnig í grýttu landslagi við ströndina.
Þegar á varptímanum stendur eru skordýr hluti af mikilvægri fæðu fyrir ungana en snjótittlingar eru annars fræætur. Snjótittlingar skipta um búning þegar vorar. Fuglinn sem er á myndinni er í vetrarbúningi,
þá líta kynin nánast eins út. Þegar vorar skerpast litirnir í búningi kvenfuglsins en karlfuglinn tekur aðeins dramatískari breytingar. Á sumrin verður karlinn nánast alhvítur en svartur á baki og vængjum að
hluta. Karlfugl í sumarbúningi nefnist sólskríkja. Þeir hópast saman þegar vetrar og eru mjög félagslyndir. Þegar jarðbönn verða þá leita þeir niður í byggð, oft í stórum hópum. Þegar þeir leita niður í byggð á
veturna er kærkomið að gefa þeim alls konar fræ. Þeir eru mjög hrifnir af kurluðum maís en þiggja einnig hveitikorn og brauðmola. Þetta getur verið mikilvægt fyrir þessa litlu fugla í mestu vetrarhörkunni þegar
birtutíminn er lítill og næturnar langar og kaldar. Mynd og texti / Óskar Andri Víðisson
Af tískupöllunum:
Ókynbundin tíska árið 2023
Þessir 12 cm hælaskór eftir Christian Louboutin heita Stage O Rioca og eru
fáanlegir í stærðum 36-46.
FRÆÐSLA