Bændablaðið - 12.01.2023, Blaðsíða 29

Bændablaðið - 12.01.2023, Blaðsíða 29
29Bændablaðið | Fimmtudagur 12. janúar 2023 Okkur tókst að fá aukasendin gu og vallarbraut.is S-4540050 vallarbraut@vallarbraut.is Trönuhrauni 5 220 Hafnarfirði SOLIS 26 HST með stiglausri vökvaskiptingu VERÐ: 1.865.000+vsk Með ámoksturstækjum 2.480.000+vsk SOLIS 90 Væntanleg SOLIS 50 Væntanleg Solis mest selda dráttarvélin 3ja árið í röð www.vallarbraut.is Trönuhraun 5, 220 Hfj S: 454-0050 Eigum vélar á lager Við þökkum viðskiptin á liðnu ári Landbúnaðarverðlaun matvælaráðuneytisins Matvælaráðherra veitir landbúnaðarverðlaun árlega í tengslum við Búnaðarþing. Úthlutunarnefnd á vegum matvælaráðuneytisins óskar eftir tilnefningum um bændabýli, önnur landbúnaðarfyrirtæki eða félög sem talin eru hafa verið á einhvern hátt til fyrir- myndar í íslenskum landbúnaði á næstliðnu ári. Stutt greinargerð skal fylgja með tilnefningum. Þar skulu koma fram helstu upplýsingar um starfsemi tilnefndra ásamt rökstuðningi fyrir tilnefningunni. Verðlaunahafar geta verið allt að þrír og mun úthlutunarnefndin velja verðlaunahafa. Við valið er litið til þátta eins og frumkvöðlastarfs, nýjunga í starfsháttum eða annars árangurs sem getur verið öðrum fyrirmynd í landbúnaði svo sem á sviði umhverfisstjórnunar, loftslagsmála, ræktunarstarfs eða annarra þátta í starfseminni. Tillögur skulu berast eigi síðar en 1. mars 2023, merktar „Landbúnaðarverðlaun“ á netfangið mar@mar.is eða bréflega til matvælaráðuneytisins, Borgartúni 26, 105 Reykjavík. Ráðherra landbúnaðarmála veitti landbúnaðarverðlaun fyrst 1997 og þau hafa verið veitt flest ár síðan eða alls í 24 skipti. Stjórnarráð Íslands Matvælaráðuneytið Hafrannsóknastofnun: Kaldsjávarspendýr og fiskar leita norðar Breytingar í sjávar- vistkerfum hafa leitt til þess að óvæntur fjöldi langreyða og hnúfubaka hafa haldið til undanfarin ár á áður ísilögðum hafsvæðum við Suðaustur-Grænland. Bendir það til þess að umhverfisskilyrði og vistkerfi hafi farið fram yfir ákveðinn vendipunkt. Í umfjöllun á vef Hafrannsókna-stofnunar segir að vistkerfi við Suðaustur-Grænland einkenndust af miklu magni af rekís en hafa breyst mikið undanfarin ár og áratugi í átt að tempraðra kerfi með auknum sjávarhita og minni hafís sem nú er nánast horfinn yfir sumarmánuðina. Breytingar að þessu tagi gera svæðið að hentugra búsvæði fyrir hvalategundir eins og langreyði og hnúfubak, auk makríls, túnfisks og annarra uppsjávarfisktegunda en fækkað hefur í stofnum norðlægari tegunda á svæðinu, eins og náhvala og rostunga. Víðtækar breytingar á vistkerfum eins og þessar kallast „regime shift” á ensku, og geta verið óafturkræfar þegar kerfi fara fram fyrir ákveðinn vendipunkt. Þættir eins og hörfun hafíss geta haft víðtæk áhrif á vistkerfi á stórum hafsvæðum. Þetta eru niðurstöður nýrrar vísindarannsóknar sem birtar voru í Global Change Biology. Rannsókninni var stýrt af Mads Peter Heide Jørgensen hjá Greenland Institute of Natural Resources í Danmörku, í samvinnu við vísindamenn frá Danmörku, Grænlandi, Bandaríkjunum og Íslandi. Rannsóknin byggir á fjölmörgum langtímaathugunum, þar á meðal mælingum á stofnstærð og útbreiðslu hvala- og fisktegunda, athugunum á hafís og mælingum á hita og seltu sjávar. Mæligögn frá stöðinni Faxaflói 9 sem Hafrannsóknastofnun aflaði síðastliðin 50 ár í reglubundnum mælingum á ástandi sjávar voru notuð til að meta breytingar á hitastigi og seltu í Irmingerhafinu. Mælingar Hafrannsóknastofnunar á makríl og loðnu voru nýttar í að kortleggja breytta útbreiðslu uppsjávarfiska í tengslum við hækkandi hitastig sjávar. Samkvæmt því sem segir á Heimasíðu Hafró á hvarf hafíssins við Suðaustur-Grænland sér engin fordæmi undanfarin 200 ár þegar mælingar á hafís að sumarlagi lágu fyrir á þessu svæði. /VH Hnúfubakur leitar norðar með hækkandi sjávarhita. Mynd / wikipedia
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.