Bændablaðið - 12.01.2023, Blaðsíða 51

Bændablaðið - 12.01.2023, Blaðsíða 51
51Bændablaðið | Fimmtudagur 12. janúar 2023 Þjóðháttafræðingur skammast út í Þjóðminjasafnið fyrir að gefa rangri ímynd víkinga undir fótinn sl. menningarnótt. Frægur rit­ höfundur þekk ir til málsins, er alls ósammála og kemur m.a. með ábendingu um að skandinavísku b æ n d u r n i r „lögðust allavega ekki „í bónda“. Dr.Árni Björnsson og Einar Kárason tala auðvitað af viti. Af hverju ætla ég þá að blanda mér í umræðuna? Yngri, vitlausari og eflaust lágvaxnari í þokkabót! Nei, hér er nefnilega á ferð annars konar víkingasaga. Röltandi á reykvískum vordegi hitti ég kínverskan víking. Ekki finnast traustar heimildir fyrir víkingum í Kína á víkingaöld, en nútíminn er auðvitað annað mál. Í ljós kom að hann var fæddur í Hollandi, en foreldrar hans báðir frá Kína. Wilson‘s: Muriel Móðir hans kynntist árið 1907 breskum manni, E.H. Wilson, sem var á ferðalagi um Kína. Þremur árum síðar flytur hún með honum til Bretlands. Síðar skilja þeirra leiðir, en minning um kynni þeirra lifir áfram, því hún hafði tekið upp sama nafn og dóttir Wilson‘s: Muriel. Faðir hans kynntist Muriel í Hollandi á efri árum. Þar urðu þau háöldruð saman og með aðstoð tæknifrjóvgunar tókst þeim að eignast börn. Víkingurinn fæddist árið 2005 en því miður létu foreldrarnir lífið um svipað leyti. Móðurættin á sér smá sögu á Íslandi og kom hann hingað í von um að komast í samband við ættingja á Íslandi. Fyrir algera tilviljun reyndust nokkrir þeirra vera nágrannar mínir og bauð ég honum því á eins konar „ættarmót“ í garðinum heima. Hann endaði með að flytja til ættingjanna og býr þar kátur í dag. Nágranni minn, víkingurinn sjálfur. Hafi einhver gaman af smáatriðum get ég bætt við að víkingurinn er raunar bambusplanta. Faðir hans var svartbambus (F.nitida), móðirin gulbambus (F.murielae) og fullt nafn hans er því „Fargesia murielae x nitida 'Viking'“. Víkingsnafnið var honum gefið af Hollendingi sem hjálpaði foreldrunum með barneignir. Ættingjar á Íslandi Nokkrir meðlimir móðurættarinnar voru búsettir nærri Ísafirði snemma á síðustu öld. Lifandi eintök af gulbambus má í dag finna í Lystigarði Akureyrar, Grasagarði Reykjavíkur og heimilisgörðum um land allt. Það er nefnilega sú tegund sem best gengur hér. Þetta virðist koma mörgum á óvart, þar sem viðbrögðin við því að sjá bambus sem dafnar vel á Íslandi eru oft á svipaða leið og ef þau hefðu séð 17 ára kínverskan víking í garðinum. Ættkvíslin Fergesia Blendingar við svartbambus hafa dekkri sprota, geta haft örlítið minna frostþol, en virðast ganga ágætlega, a.m.k. sunnanlands, í skjóli. Fyrir íslenska garða mæli ég eindregið með því að velja bara bambusplöntur úr Fargesia ættkvísl. Að mestu má líka leggja til að taka ekkert mark á erlendum textum um bambusrækt. Plönturnar fást oft í gróðrar stöðvum og plöntusölum hér og þar um landið og eru fínasta framandi skraut í garðinn. Mold sem heldur raka, án þess að vera sírök eins og mýri, í bland við einhverja sólargeisla og gott skjól frá næðingi eru grunnkröfurnar. Næringarríkur jarðvegur, eða 2­3 áburðargjafir að sumri, gefa plöntunni svo aukinn kraft. Finnið plöntunni góðan stað og vökvið vel eftir gróðursetningu. Sérstaklega fyrsta árið er mikilvægt að passa vel upp á vökvun og áburðargjöf. Ólíkt flestum fjölæringum er bambus sígrænn og megnið af orku og forða bambusplöntu finnst ekki í rótunum, heldur ofanjarðar, í sprotunum. Yfir veturinn er því ágætt að binda þá saman í knippi eða gefa þeim vetrarskjól og hafa orkuforðann í huga þegar bambus er snyrtur til. Kristján Friðbertsson plöntunörd. Kínversk pandaynja að nafni Tian Tian sést hér gæða sér á bambus í Edinborg. Fargesia tegundirnar eru sérlega vinsæl pandafæða og því ekki útilokað að hér sé um að ræða ættingja víkingsins. Mynd / Royal Zoological Society of Scotland Kínverskur víkingur á Íslandi Framandi plöntur frábærar saman: broddhlynur, bambus, vatnsberi og sumareik. Myndir / Kr. Fr Gulbambus er sannkölluð garðprýði og getur orðið ansi hávaxinn hér á landi. Yrkið Jumbo er hér á mynd í garði Mary og Ægis á Selfossi. Kristján Friðbertsson. sp ör e hf . — Lago Maggiore & Chamonix — 9. - 16. júní | Sumar 7 Fararstjóri: Unnur Jensdóttir Það er ævintýri líkast að ferðast um Alpafjöll Ítalíu, Frakklands og Sviss og ekki er síðra að dvelja við annað stærsta vatn Ítalíu, Lago Maggiore, sem er umvafið fjallafegurð. Við hefjum ferðina í ljúfa bænum Stresa en seinni hluta ferðarinnar dveljum við í bænum Chamonix sem stendur við rætur hæsta fjalls Vestur-Evrópu, Mont Blanc. Verð: 319.900 kr. á mann í tvíbýli. Mjög mikið innifalið! Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 Reykjavík Gylfaflöt 32 • 112 Reykjavík • Sími 580 8200 • www.velfang.is • Frostagata 2a • 600 Akureyri • www.claas.is VERKIN TALA FR U M - w w w .fr um .is Þetta snýst allt um þig… Nýja CLAAS – ARION 400 vélin er alveg eins og þú vilt hafa hana. Hver dagur færir þér ný verkefni og það ert þú sem þarft að takast á við þau. Þegar þú kaupir dráttarvél þá þarf hún að vera alveg eins og þú vilt hafa hana. Þú vilt dráttarvél sem gerir einmitt það sem þú vilt að hún geri og að hún uppfylli allar þínar kröfur og væntingar. Hvorki meira og örugglega ekki minna. Þess vegna vilt þú ekki bara næstu dráttarvél sem er til á lager. Þú færð nýju ARION 400 dráttarvélina nákvæmlega eins og þú vilt hafa hana ARION 460 / 450 / 440 / 430 / 420 / 410 66–103 kW (90–140 hö). www.arion400.claas.com Hefur þú brennandi áhuga á vélum og vilt vinna í lifandi og skemm� legu umhverfi ? Vélfang leitar að öfl ugum og ábyrgum viðgerðamanni í fullt starf á vélaverkstæðið okkar í Reykjavík. Nánari upplýsingar veita Eyjólfur 8400 820 Umsóknir sendist á eyjolfur@velfang.is Vélfang ehf. er sölu- og þjónustuaði l i á sviði v innu- og landbúnaðarvéla. Hjá Vélfangi starfar hópur fólks sem hefur það að markmiði að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustu. Hæfniskröfur: • Reynsla af vélaviðgerðum er kostur. • Menntun við hæfi kostur. • Rík þjónustulund, jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum. • Frumkvæði og sjálf tæði í vinnubrögðum. • Gott með að vinna í teymi. Viðkomandi þarf að geta hafi ð störf sem allra fyrst. Öllum umsóknum verður svarað og farið með þær sem trúnaðarmál. Gylfaflöt 32 • 112 Reykjavík • Sími 580 8200 • velfang.is Óseyri 8 • 603 Akureyri • velfang@velfang.is -VERKIN TALA Viðgerðarmaður á vélaverkstæði Vélfangs í Reykjavík Alhliða fasteignasala Kynslóða- / eigendaskipti bújarða Stofnun og skráning landspildna og lóða Loftur Erlingsson Löggiltur fasteignasali GSM 896-9565 loftur@husfasteign.is Hús Fasteignasala · Austurvegi 26 · 800 Selfoss Sími: 497 1155 · www.husfasteign.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.