Bændablaðið - 12.01.2023, Blaðsíða 30
30 Bændablaðið | Fimmtudagur 12. janúar 2023
Lukas Jokumssen er 22 ára Dani ,
sem keypti í sumar kúabúið Voð-
múlastaði í Austur-Landeyjum, af
þeim Hlyni Snæ Theódórssyni og
Guðlaugu Björk Guðlaugsdóttur.
Á Voðmúlastöðum hefur verið
rekið myndarlegt kúabú, en á síðasta
ári voru Voðmúlastaðir 10. nythæsta
bú landsins, með 8.117 kíló eftir
hverja árskú.
Bætt aðstaða
„Það gengur allt vel, núna er ég bara
á fullu við að smíða 11 nýja bása
inn í nýrra fjósið og var reyndar að
flytja róbótann úr gamla fjósinu í
það nýja.
Fjósin liggja saman en ég ætla að
nota líka eldri hlutann og því þarf ég
að uppfæra hann dálítið. Svo, eftir
svona tíu ár, byggjum við kannski
alveg nýtt og stórt fjós.
Svo eru verkefni fram undan í
að laga aðstöðuna fyrir geldkýrnar,“
segir Lukas, sem segist ekkert
hafa verið einmana á bænum á
aðventunni.
„Það er góður friður hér til að
vinna enda þarf ég að koma ýmsu í
verk fyrir utan hefðbundin bústörf.
Ég fékk reyndar föður minn í
heimsókn um jólin sem hjálpaði til
við að koma upp þessum básum.“
Í verklegu námi á Seljavöllum
Lukas kom til Íslands fyrir um
tveimur árum til að taka verklega
hlutann af búfræðinámi sínu í
Danmörku. Hann dvaldi fyrst í
hálft ár við nám á Seljavöllum í
Hornafirði, snéri til Danmörku að
því loknu til að ljúka búfræðinámi
sínu en fór svo aftur á Seljavelli
og starfaði þar í eitt ár. Hann segist
ekki eiga neinar beinar rætur í
landbúnaði í Danmörku en einhver
ættmenni leggi þó stund á búskap.
„Ég hef alltaf haft áhuga á
landbúnaði og stefnt að því að verða
bóndi, en ég hef helst ekki viljað
stunda hann í Danmörku. Það er
svo rosalegt vesen,“ segir Lukas
og vitnar til þess skrifræðis sem
þar ríkir.
„Hér á Íslandi er ég kominn í
frelsið og ég lendi oft í því að þurfa
að útskýra fyrir bændum hér að þeir
hafi það bara mjög gott, miðað við
í Danmörku í það minnsta. Það
er líka miklu auðveldara að hefja
búskap hér.“
Markviss stækkun
Að sögn Lukasar fjármagnar hann
kaupin á Voðmúlastöðum annars
vegar með láni frá Byggðastofnun
og hins vegar láni frá föður sínum,
sem rekur verktakafyrirtæki í
Danmörku.
Hann tók formlega við jörðinni
í júlí og stefnir hann á að fjölga
mjólkandi kúm á næstu misserum.
Við yfirtökuna á búskapnum tók
hann við 38 kúm frá fyrri eigendum,
er kominn með 49 mjólkandi kýr
núna en ætlar á næstu mánuðum að
fjölga þeim upp í sextíu.
„Nytin hefur lækkað talsvert hér
frá því að ég tók við, alveg niður í
23 lítra að meðaltali á kú yfir daginn
frá um 28 lítrum þegar Hlynur og
Guðlaug voru hér. Það er út af því
að ég hef minnkað kjarnfóðurgjöf
talsvert vegna þess hversu fóðrið
hefur hækkað rosalega í verði. Ég
á samt von á því að heildarútkoman
verði góð hjá mér til lengri tíma
litið – og að mjólkin verði í
úrvalsflokki,“ segir hann.
Íslenskar kýr í of góðum holdum
Lukas hefur mjög ákveðnar
skoðanir á kúabúskapnum og
hvernig hann vill byggja upp sinn
búrekstur. Ætlunin sé að bæta eitt
og annað á næstu mánuðum og til
dæmis verði vatnsdýnur fljótlega
lagðar á 56 bása en hann áætlar að
það eitt og sér ætti að getað skilað
um tíu prósenta meiri nyt.
Hann segir að aðbúnaður og
LÍF&STARF
BYKO býður nú ýmsar stærðir steinbita
fyrir nautgripi á lager
Hvort sem verið er að endurnýja eldri fjós
eða byggja nýtt bjóðum við steinbita sem
henta fyrir öll verkefni.
Steinbitarnir eru framleiddir í vottuðum
verksmiðjum og uppfylla allar kröfur um
evrópustaðla.
Steinbitana er mögulegt að fá fyrir allt
að 6 tonna öxulþunga.
Við bjóðum einnig sérsniðin velferðagólf
fyrir steinbita.
GÓLF Í GRIPAHÚS
NAUTGRIPIR,
SVÍN OG SAUÐFÉ
Til á lager
bondi@byko.is
Austur-Landeyjar:
Ungur Dani kaupir
Voðmúlastaði
– Lukas Jokumssen er með skýra framtíðarsýn um hagkvæman búrekstur
Sigurður Már
Harðarson
smh@bondi.is
Lukas Jokumssen er 22 ára Dani sem keypti í sumar Voðmúlastaði í Austur-Landeyjum. Myndir / smh
Fjárhundurinn Spori er á Voðmúlastöðum. Honum líkaði ekki lífið hjá fyrri
eigendum í þéttbýlinu en kann mjög vel við sig hjá nautgripunum.
Lukas vann hörðum höndum að því að bæta ellefu básum við nýja fjósið þegar
blaðamann bar að garði, enda ætlar hann að fjölga mjólkandi kúm upp í 60.