Bændablaðið - 12.01.2023, Blaðsíða 49

Bændablaðið - 12.01.2023, Blaðsíða 49
49Bændablaðið | Fimmtudagur 12. janúar 2023 Víkurhvarf 5 Vagnar og stálgrindahús frá WECKMAN Steel STÁLGRINDAHÚS Fjöldi stærða og gerða í boði Stærð palls 2,55 x 8,60 m Verð kr. 1.890.000,- með virðisaukaskatti Weckman flatvagnar / löndunarvagnar RÚLLUVAGNAR – LÖNDUNARVAGNAR Stærð palls 2,55 x 9,0m Vagnar 6,5 - 17 tonn. Verðdæmi: 8 tonn kr. 1.250.000,- með virðisaukaskatti. 12 tonn kr. 1.590.000,- með virðisaukaskatti. STURTUVAGNAR Burðargeta 6,5 – 17 tonn þak og veggstál galvaniserað og litað Bárað• Kantað• Stallað• Fjöldi lita í boði Víkurhvarfi 5 • Kópavogi • Sími 588 1130 hhaukssonehf@simnet.is Víkurhvarf 5 SK ES SU H O R N 2 01 2 Ögurhva fi 8 130 h auksson@hhauksson.is 7-18 tonn Davíð og Stefán eru syngjandi veislustjórar stefanhelgi@gmail.com eða s. 896-9410. Þorrablót og skemmtanir um allt land LESENDARÝNI Hvar eru Bændasamtökin? „Hvar eru Bændasamtökin?“ er algeng spurning sem heyrist oft á meðal bænda og í flestum tilvikum með neikvæðum undirtón. Flestir þeir sem hafa starfað og starfa í félagsmálum af einhverju tagi vita að aðeins hluti þess sem er gert er sýnilegt. Þetta er eins og með ísjakann að aðeins lítill hluti sést á yfirborðinu. Niðurtröppun á greiðslumarki sauðfjárbænda var mikið í umræðunni á síðastliðnu ári sem og árin á undan. Fram hefur komið í greinaskrifum bænda og formanns búgreinadeildar sauðfjárbænda að söguleg sátt náðist um þetta tiltekna mál. Málið á sér nokkuð langan aðdraganda og því mikil vonbrigði þegar matvælaráðherra hafnaði beiðni bænda um að stöðva niðurtröppun sem gekk núna í gegn um áramót. Í þessu máli fóru Bænda- samtökin fram með miklum krafti. Stjórn BÍ óskaði eftir því við framkvæmdanefnd búvörusamninga að nýta heimild nefndarinnar, skv. 7. gr. reglugerðar nr. 144/2022 um stuðning við sauðfjárrækt, til að færa fjármuni milli einstakra samningsliða. Þar er átt við að færa 20% framlaga ársins 2023 til býlisstuðnings, ullarnýtingar og fjárfestingarstuðnings yfir á beingreiðslur ársins. Tillagan felur í sér að um helmingur niðurtröppunar greiðslumarks verði fluttur til baka og þannig minnka áhrif niðurtröppunar á greiðslumarkið. Matvælaráðuneytinu hafði þó ítrekað verið bent á möguleika þann að rýmka reglugerðina þannig að hægt væri að flytja alla upphæðina aftur yfir á greiðslumarkið. Fundað var um málið 14. desember sl. og aftur viku seinna. Ekki náðist samstaða um þessa túlkun reglugerðar af hálfu matvælaráðuneytis og því farin sú leið að skjóta því til gerðardóms. Það má ýmislegt segja um málsmeðferð matvælaráðherra í þessu máli en í öllu falli eru það mikil vonbrigði að hún hafi hunsað skýran vilja Bændasamtakanna sem samkvæmt búvörulögum fara með samningsumboð bænda. Ég vil þakka Bændasamtökum Íslands fyrir framgöngu sína í þessu máli og fylgja eftir samþykktum frá búgreinaþingi sauðfjárbænda. Ég hvet þau til að fylgja málinu fast eftir á komandi misserum og þannig standa með vilja bændanna sem standa þeim að baki. Þökkum það sem vel er gert og Bændasamtökin hafa sannarlega unnið vel í þessu máli. Annað mál sem sauðfjárbændur ræða mikið og kom m.a. fram á búgreinaþingi sauðfjárbænda er hækkun á afurðaverði. Ég tel að Bændasamtökin hafi fylgt því máli vel eftir sem skilaði sér í hækkuðu afurðaverði síðastliðið haust. Réttlátt afurðaverð á að vera aðal baráttumál sauðfjárbænda hverju sinni. Birgir Þór Haraldsson, Kornsá í Vatnsdal. Birgir Þór Haraldsson. www.hardskafi.is Janúar 2023 Sími 555 6520 sala@hardskafi.is Sturtuvagn 2ja tonna Þrjár fellanlegar hliðar Kúlutengi og traktorstengi Kr 595.200 m. vsk Kr 480.000 án vsk Beltagrafa 1,2 tonn Frábær vél í sveitina Kr 2.207.200 m. vsk Kr 1,780.000 án vsk Kurlari 6,5hp bensínvél Fyrir mest 8cm sverar greinar Frábær í sumarbústaðinn til að breyta greinum í kurl til að setja í beð og stíga. Kr 229.400 m. vsk Kr 185.000 án vsk Hnífatætari PTO 230cm - RPM 540 – 70HP+ Kr 861.800 m. vsk Kr 695.000 án vsk Kurlari fyrir traktorinn RPM 540 - max 14,8cm – 25HP+ Kr 886.600 m. vsk Kr 715.000 án vsk Dreifari 59L Kr 68.200 m. vsk Kr 55.000 án vsk Dreifari 56L Kr 59.520 m. vsk Kr 48.000 án vsk Sveiflukóngurinn Sláttuvél 240cm fyrir hagasláttinn AGF 240 – RPM 540 – 60HP+ 65°↓90°↑ Snyrtir hagann, vegaxlir og hverskyns órækt Kr 1.233.800 m. vsk Kr 995.000 án vsk Fellikassi 200cm Kr 248.000 m. vsk Kr 200.000 án vsk Stubbatætari Kr 353.400 m. vsk Kr 285.000 án vsk Dreifari 26L Kr 74.400 m. vsk Kr 60.000 án vsk Rafbörur 4x4 48V Kr 520.800 m. vsk Kr 420.000 án vsk Skrapatól 180cm Kr 279.000 m. vsk Kr 225.000 án vsk Skógarkló Kr 179.800 m. vsk Kr 145.000 án vsk Snjóblásari PTO 210cm Kr 985.800 m. vsk Kr 795.000 án vsk Kurlari PTO Kr 452.600 m. vsk Kr 365.000 án vsk Sveitakassi 150cm Kr 161.200 m. vsk Kr 130.000 án vsk Sláttuvél ATV EL 120 Kr 527.000 m. vsk Kr 425.000 án vsk Kurlari fyrir traktorinn RPM 1000 - max 25cm – 90HP+ Kr 1.457.000 m. vsk Kr 1.175.000 án vsk
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.