Bændablaðið - 12.01.2023, Blaðsíða 44
44 Bændablaðið | Fimmtudagur 12. janúar 2023
Nautgripir eru sérstaklega við-
kvæmir fyrir ójafnvægi á raf-
magni, hvort heldur sem er spennu
eða straumi, og eru til ótal dæmi
um að minni háttar útleiðslur,
uppsöfnuð spenna ásamt slökum
jarðtengingum hafi haft veruleg
neikvæð áhrif á skepnurnar og þar
með framleiðslu viðkomandi bús.
Vandamálið er að nautgripirnir
eru t.d. miklu næmari fyrir spennu
en við mannfólkið og því átta
bændur sig oft ekki á því að þetta
sé raunverulegt vandamál.
Áhrifin á gripina geta verið
margvísleg, en líklega eru
algengustu áhrifin minni afurðir
og þá sérstaklega nyt kúa. Oftar en
ekki er það vegna spennu í kringum
drykkjarker sem valda því að þær
drekka ekki mikið meira en þær
neyðast til og það hefur bein áhrif
á afurðasemina. Þetta sést t.d. með
því að drykkjarloturnar eru fáar en
langar, enda ekki eftirsóknarvert
að fá straum í hvert skipti sem
granirnar snerta vatnsyfirborðið.
En til eru líka dæmi um færri
heimsóknir kúa í mjaltaþjón eða
það að sækja þarf margar kýr í
mjaltir, vegna þess að þær koma
ekki sjálfar inn í mjaltaþjónana
o.s.frv.
Oft byrja bændur á því að skoða
aðra þætti eins og fóðurgæðin,
orkustigið og þess háttar og grunar
mögulega ekki að framangreind
vandamál séu á ferðinni.
Ekki líklega júgurbólguvaldur
Samkvæmt úttekt áskólans í
Wisconsin er ekkert sem bendir til
þess að minni háttar smáspenna eða
straumur sé beinn júgurbólguvaldur,
en margir bændur hafa talið svo
vera. Ótal rannsóknir hafa verið
gerðar á þessu, með mismunandi
mikilli spennu, og fylgst með
áhrifum á kýrnar og heilsufar
þeirra. Hins vegar sýna sömu
rannsóknir að straumur hefur bein
áhrif á atferli gripanna. Þannig sýna
rannsóknir að jafn lítill straumur og
2,5 milliamper hefur áhrif á u.þ.b.
5% kúnna, með öðrum orðum þá
eru kýrnar misnæmar sjálfar fyrir
straumi.
Sé mælanlegur straumur 4,8
milliamper mælast viðbrögð
hjá helmingi gripanna og sé
straumurinn 8,5 milliamper má
búast við því að svo gott sem allir
gripir sýni einhver viðbrögð, en
áhrifin geta verið t.d. eyrnakippir
eða hreyfing á nösum.
Sem sagt minni háttar og til þess
að straumurinn eigi að hafa áhrif á
t.d. vatnsneyslu, þá þarf mæligildið
að vera þrefalt hærra en hæsta
gildið sem hér að framan getur.
Samkvæmt bandarískum
leiðbeiningum er bændum ráðlagt
að halda mælanlegum straumi
innréttinga undir 2 milliamperum.
Sótti þriðjung kúnna í mjaltir
Það eru til mörg sláandi dæmi um
þetta og í Danmörku hefur verið
lögð töluverð áhersla á að koma
í veg fyrir vandamálið. Oft er vel
búið að öllu þegar fjós eru tekin í
notkun en svo byrja vandamálin
mögulega hægt og rólega.
Að njóta fegurðar trjáa og runna
getur verið skemmtileg og gagnleg
iðja að vetrinum og gefur okkur
kost á að njóta garðsins allt árið.
Til þess þarf að sjálfsögðu að
vera hægt að sjá gróðurinn, en sú
hefur ekki verið raunin víða um land
undanfarið, vegna óvenju mikils
fannfergis. Snjóruðningstæki hafa
haft í mörgu að snúast og himinháir
skaflar hafa lagt undir sig marga
garða þannig að varla sést í toppinn á
runnum og jafnvel trjám, sérstaklega
sunnanlands.
Má búast við að sumir eftirlætis-
runnar láti á sjá eftir ósköpin
en alltaf vonum við það besta
og reynum að lagfæra með
klippingum særðar og brotnar
greinar, helst áður en vorar.
Garðurinn liggur í djúpum
vetrardvala. Plönturnar þreyja
þorrann og góuna og bíða þess
að vorar. Það gera garðeigendur
líka, þeir bíða vorsins af óþreyju
þar til gróðurinn laufgast á ný.
Fjölbreytileikinn ræður ríkjum
Það getur verið skemmtilegt
að þekkja útlit sumargræna
trjágróðursins að vetrarlagi.
Vaxtarlag hinna ýmsu tegunda
verður allt miklu sýnilegra þegar
laufið er fallið og leynd fegurð
þeirra kemur í ljós.
Árssprotar og dvalarbrum eru
ólík að lit og lögun eftir tegundum,
litur og áferð barkarins kemur
skýrt fram að vetri og auðvelt er
að sjá hvernig greinabygging er
ólík á milli tegunda. Á berkinum
sitja oft fléttur og mosar sem valda
trjánum ekki sérstökum ama en
getur gefið þeim sérkennilegri og
fallegri svip á veturna en á sumrin.
Sígræn tré eins og furu-, greni-
og einitegundir halda útliti sínu að
mestu á veturna, en það er gaman
að sjá köngla þeirra skreyta trén
að vetrarlagi. Þeir framleiða mikið
magn fræja sem er fæða fyrir
fuglategundir, til dæmis hinn litríka
skógarfugl krossnef, sem byggir
tilvist sína að miklu leyti á fræi sem
könglarnir geyma og er farinn að
verpa í íslenskum skógum.
Lauftré halda líka sum hver
fræreklum sínum fram á vetur, t.d.
íslenska birkið og elritegundir.
Börkur
Mjallarhyrnir, Cornus alba 'Sibirica',
skartar logarauðum berki á ungum
greinum sem sker sig úr flestum
öðrum runnagróðri á veturna.
Víðitegundir eru margar í görðum
og barkarlitur þeirra er ólíkur milli
tegunda. Sumar víðitegundir eru
með gráleitan börk á veturna eins og
viðja, aðrar hafa börk í mismunandi
grænum og brúnum litum. Áferð
barkarins er á sama hátt misjöfn.
Næfurhegg má sjá í görðum,
börkur hans er koparlitaður og
gljáandi og flagnar með tímanum
í hringlaga „næfrar“. Venjulegur
heggur er með dekkri börk og sýnir
ekki þennan eiginleika.
Gullregn er með óvenju
ljósgrænan, sléttan börk á yngri
greinum. Börkur sígrænu trjánna
hefur oft mun grófari áferð en algengt
er meðal lauftrjáa og könglarnir geta
verið mjög skrautlegir.
Íslenska birkið hefur mjög
fjölbreyttan barkarlit, sumir
einstaklingar þess hafa mjög dökkan
börk meðan aðrir eru gljábrúnir eða
nánast snjóhvítir á litinn.
Skófir og fléttur
Trjábörkur er undirlag fyrir margar
gerðir litríkra fléttna og skófna
sem gefur berkinum óvæntan og
sérkennilegan blæ. Þetta getur
verið áberandi á eldri trjám með
þykkan stofn og greinar, til dæmis
reynitegundir og birki. Ekki er
ástæða til að óttast að þessar ásætur
valdi trjánum skaða.
Brum
Dvalarbrumin hlífa vaxtarsprot-
unum yfir vetrarmánuðina. Þau
eru með ýmsu móti; sum eru lítil
og liggja þétt að stofninum meðan
önnur eru stór og áberandi, eins
og brum asksins sem eru nánast
kolsvört og gild.
Alaskaösp hefur einnig nokkuð
stór, odddregin brum. Sumar
tegundir eru þeirrar náttúru að þær
halda sölnuðu laufinu fram eftir
vetri til að hlífa brumunum enn
frekar. Dæmi um slíkar tegundir
eru eik, beyki og myrtuvíðir.
Greinabygging
Það getur verið gagnlegt að þekkja
muninn á milli tegunda og jafnvel
yrkja þegar meta skal hvernig
standa skuli að trjáklippingum,
sem oftar en ekki fara fram nú þegar
gróðurinn er í dvala. Þá er auðvelt
að meta greinabygginguna, hvernig
náttúrulegt vaxtarlag er og hvaða
greinar er rétt að fjarlægja, stytta
og snurfusa.
Sem dæmi er hægt að skoða
berjarunna. Rifsrunna þarf að
klippa reglulega til að veita
sólarbirtu inn í runnann. Á sumrin
getur þetta verið erfitt vegna þess
hversu þéttir runnarnir verða og
líkur eru á skemmdum á ungum
greinum.
Á veturna sést líka betur hvar
best er að fjarlægja elstu og grófustu
greinarnar og móta runnann rétt.
Hindberjarunna er sömuleiðis
auðveldara að klippa að vetri. Þar er
nauðsynlegt að fjarlægja reglulega
elstu greinar þeirra til að viðhalda
frjósemi runnanna.
Eldri greinar er hægt að þekkja á
því að börkur þeirra er dekkri en þær
yngri og með grunnum lóðréttum
rákum. Sumir skrautrunnar eru með
greinarnar beinar, aðrir bogsveigðar
og jafnvel slútandi. Hin sjaldséða
hengibjörk vekur alltaf athygli með
sínum hangandi greinum.
Ingólfur Guðnason, brautarstjóri
garðyrkjuframleiðslu, Reykjum.
Tré og runnar eru líka
falleg á veturna
Gagnlegt er að þekkja muninn á milli tegunda og jafnvel yrkja þegar
meta skal hvernig standa skuli að trjáklippingum, sem oftar en ekki
fara fram nú þegar gróðurinn er í dvala. Mynd / Björgvin Örn Eggertsson
Snorri Sigurðsson
snorri.sigurdsson@outlook.com
Á FAGLEGUM NÓTUM
Áhrif ójafnvægis á rafmagni á nautgripi geta verið margvísleg og geta til dæmis valdið minni nyt kúa. Mynd / GBE
Dýravelferð:
Jarðtengingar innréttinga og
tækja í fjósum mikilvægar
– Straumur hefur bein áhrif á atferli gripa
Jarðtengingar þurfa að vera gerðar af fagfólki og ekki eins og hér sést.
Í Urriðaholti í Garðabæ hefur verið
sérstaklega horft til góðs jarð-
sambands og er þar notað 5 víra
dreifikerfi.
GARÐYRKJA