Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Page 6
Það er gefandi og gott að vinna að málefnum hjúkrunarfræðinga þó vinnan sé ekki
alltaf dans á rósum — ekki frekar en önnur vinna hjúkrunarfræðinga og ber síðasta
ár, sem einkenndist af kjarabaráttu og covid-faraldri, þess glögglega merki. reynsla
mín sem formaður síðustu ár, sem og áralöng reynsla innan heilbrigðis- og mennta-
kerfisins, hefur nýst mér vel í starfinu, auk tengsla við fólk og stofnanir sem myndast
hafa í áranna rás, jafnt innan stéttar sem utan. Ég mun áfram gera mitt besta til að
tryggja hagsmuni hjúkrunarfræðinga og vinna ötullega að eflingu hjúkrunar.
Stytting vinnuvikunnar er hagur allra
Eitt stærsta málið sem varðar hjúkrunarfræðinga þessa mánuðina er stytting vinnu-
vikunnar. Á þessum tímapunkti eru eflaust flestir hjúkrunarfræðingar búnir að
kynna sér þetta vel enda hefur mikil umræða átt sér stað, bæði meðal atvinnurekenda
og félagsins. hjúkrunarfræðingar eru langölmennasta stéttin í vaktavinnu enda
meginþorri stéttarinnar skilgreind sem vaktavinnufólk. Þessar breytingar hafa því
gífurleg áhrif á vinnuumhverfi hjúkrunarfræðinga. Ég vil því brýna fyrir ykkur að
kynna ykkur efnið mjög vel og er allað um styttingu vinnuvikunnar í þessu
tölublaði. jafnframt er heilmikið efni inni á vef- og facebooksíðunni betrivinnutimi.is,
sem og inni á mínum síðum og facebooksíðu félagsins. hagurinn er allra, bæði
hjúkrunarfræðinga og atvinnurekenda. Verkefnið er afskaplega umfangsmikið og
eigum við fulltrúa í stýrihópnum, sem ber ábyrgð á og sér um eirfylgni út af verk-
efninu, og gætir hann hagsmuna hjúkrunarfræðinga. En það er með þetta stórvirki
eins og önnur, það felur í sér ýmis ný verkefni í framkvæmdaferlinu sem hingað til
hefur tekist að leysa og hef ég fulla trú á að við klárum þetta öll saman — enda ávinn-
ingurinn gífurlegur.
Einnig vil ég upplýsa félagsmenn um að verið er að vinna að þeim stofnanasamn-
ingum sem eir eru. Vonumst við til að ljúka þeim sem allra fyrst og eru trúnaðar-
menn upplýstir reglulega um stöðu mála.
nú eru breytingar hjá félaginu en sviðsstjóri kjara- og réttindasviðs fíh, gunnar
helgason, sem sinnt hefur starfinu af einurð og mikill festu, hefur nú látið af störfum
eir tæplega sex ára farsælt starf. hann hefur áorkað miklu í baráttunni fyrir bættum
kjörum hjúkrunarfræðinga í annars kreandi starfi og óska ég honum alls hins besta
á nýjum starfsvettvangi.
Fjölbreytt tölvunámskeið fyrir hjúkrunarfræðinga
Eins og hjúkrunarfræðingar vita hafa nær allir viðburðir á vegum félagsins fallið
niður síðastliðið ár vegna covid-faraldursins. Við stefnum þó ótrauð á að halda aðal-
fund félagsins 12. maí næstkomandi, á alþjóðadegi hjúkrunarfræðinga, bæði í vef-
6 tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 97. árg. 2021
Guðbjörg Pálsdóttir, formaður Félags
íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Formannspistill
Hagsmunir hjúkrunarfræðinga og efling hjúkrunar
Hjúkrunarfræðingum
standa nú til boða meira en
30 tölvunámskeið í heilt ár
þeim að kostnaðarlausu til
að ná betri tökum á tölvu-
tækni og nýjungum.
Ég vil byrja á því að þakka traustið og þá hvatningu sem þið hafið sýnt mér til áframhaldandi
starfa sem formaður félagsins en samkvæmt lögum félagsins er tímabilið nú fjögur ár. Ákvörð -
unin um framboð var langt í frá sjálfgefin enda mikið og krefjandi starf. Ég er þó mjög ánægð
með að hafa tekið þessa ákvörðun og fundið fyrir stuðningi gífurlegs fjölda hjúkrunarfræðinga
til að gegna formennsku áfram í félaginu.