Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Qupperneq 17
í kerfinu eru nýtt á annan hátt með viðbótarfjármagni sem
fylgir kjarasamningum vegna þessa. úr því verður til nýtt kerfi
með styttri vinnuviku og auknum möguleikum á því að vera í
fullu starfi í vaktavinnu, fá hærra vaktaálag á nóttunni og
vaktahvata. Það er tekið sérstaklega fram að hjúkrunarfræð-
ingar eiga ekki að lækka í launum við þessar breytingar, enda
stytting vinnuvikunnar án launaskerðingar ófrávíkjanleg krafa
fíh í samningsferlinu.
Á einstaka vinnustöðum, sem ekki eru með vaktir allan sól-
arhringinn eða aðra sérstöðu, þarf að bregðast sérstaklega við
til að tryggja að starfshópar lækki ekki í launum við kerfis-
breytinguna. um það er full sátt milli aðila í stýrihóp verkefnis
um betri vinnutíma og hefur verið stofnaður starfshópur með
fulltrúum samningsaðila, þ. á m. fíh og launagreiðendum, til
að meta og bregðast við slíkum hópum. Dæmi um slíkan hóp
eru hjúkrunarfræðingar sem eru í 49,9% starfi samhliða töku
lífeyris.
félag íslenskra hjúkrunarfræðinga og önnur samtök launa-
fólks og launagreiðenda hafa sameinast í að veita fræðslu,
leiðbeiningar og stuðning við vinnustaði við innleiðingu nýs
vaktavinnukerfis. Þá fræðslu má til dæmis finna inni á vefnum
betrivinnutimi.is en það er sameiginlegur vettvangur fyrir alla
til að fá frekari upplýsingar og fræðslu, þ.m.t. hjúkrunarfræð-
inga. Einnig er þessar upplýsingar að finna á Mínum síðum á
vef fíh. Á flestum vaktavinnustöðum verður til svokallað
mönnunargat og því þarf að fjölga stöðugildum hjúkrunar-
fræðinga. Á sama tíma vantar fleiri hjúkrunarfræðinga til
starfa þó það sé ekki algilt á öllum vinnustöðum. Stjórnendur
á hverjum vinnustað standa frammi fyrir því verkefni að meta
þörfina fyrir hjúkrunarfræðinga og annað starfsfólk, breyta
vaktakerfum og auglýsa eftir nýju starfsfólki til að bregðast við
styttingunni þar sem þörf er á.
Tækifærin eru mikil
Stytting vinnuvikunnar í vaktavinnu gerist ekki sjálfkrafa. Það
er sameiginlegt verkefni stjórnenda og hjúkrunarfræðinga að
finna hvaða útfærslur á vinnutíma henta best á hverjum
vinnustað. Oftast þarf að breyta vaktaskipulagi og er þá
nauðsynlegt að taka fyrst mið af þörfum starfseminnar og
starfsmannahópsins og óskum starfsfólks. Mikilvæg forsenda
er virkt samtal á milli stjórnenda og hjúkrunarfræðinga á
meðan á innleiðingunni stendur og góð samvinna um að finna
bestu leiðina til að bæta vinnutímann.
Það felast gífurleg tækifæri í styttingu vinnuvikunnar í
vaktavinnu, rétt eins og í dagvinnu. Þetta eru tækifæri sem
hjúkrunarfræðingar í vaktavinnu, sem og þeirra stjórnendur,
munu vonandi nýta sér í endurbætt skipulag sem gagnast
öllum vel. Því er nauðsynlegt að allir hjúkrunarfræðingar nýti
þetta tækifæri vel og leggist á eitt að tryggja sem bestan ávinn-
ing af styttingu vinnuvikunnar.
stytting vinnuvikunnar
tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 97. árg. 2021 17
Takk, hjúkrunarfræðingar