Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Page 36
ungur maður var nýverið viðstaddur þegar verið var að hefja bólusetningu 90 ára
og eldri við covid-19. ummæli hans vöktu sannarlega athygli mína: „hversu flottir
eru þeir sem eru orðnir 90 ára! Einn þeirra var í alveg eins bol og ég, vatnsgreiddur,
í toppstandi og sveiflaði bíllyklun um með vísifingri.“ Þarna virðist heilsuefling og
heilbrigðisþjónusta án efa vera að skila sér. Og eflaust í einhverjum tilfellum góð
genasamsetning.
En af hverju finnst okkur það vera skrítið að aldraðir séu jafningjar okkar og eigi
framtíð? flest okkar ná þeim áfanga að eldast og á afmælisdögum tölum við um það
sem forréttindi að eldast og að heilsan sé góð. Svo eigum við aldraða ættingja eða
vini sem við njótum þess að vera í samskiptum við sem jafningja.
Eftir að hafa starfað við öldrunarþjónustu undanfarin ár segi ég hiklaust: já, það
er framtíð í að eldast. En samfélagið virðist ekki alltaf vera á sama máli. Ákveðið
viðhorf gagnvart öldruðum virðist sveima yfir í samfélaginu og endurspeglast víða.
Eldra fólk og aldraðir, það er ekki alltaf gott að átta sig á um hvaða aldurshóp er verið
að ræða.
67 ára skilgreindir aldraðir
Samkvæmt lögum er maður skilgreindur aldraður þegar 67 ára aldri er náð. En sem
betur fer hefur heilsuefling, þekking á eigin heilsu og heilbrigðis- og velferðarþjón-
usta þróast til hins betra. Sem dæmi má nefna tannheilsu, en þeim fer ört fækkandi
sem eru ekki með eigin tennur. Það var ekki raunin þegar ég vann mitt fyrsta sumar
á hjúkrunarheimili sem sumarstarfsmaður. hver gervigómurinn á fætur öðrum var
burst aður á kvöldin að undanskildu einu tilfelli þar sem ómögu legt var að ná neðri
gómnum úr einum íbúanna. Eftir ítrekaðar tilraunir kom í ljós að viðkomandi var
með eigin tennur, mér til mikillar undrunar.
36 tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 97. árg. 2021
Þankastrik
Er framtíð í að eldast?
Þóra Sif Sigurðardóttir
Viðhorf okkar gagnvart öldruðum litast oft af umræðunni í sam-
félaginu og ýmiss konar fréttaflutningi. Fréttaflutningurinn „aum-
ingja aldraðir“ er ekki alltaf jákvæður hvort sem um ræðir frá-
flæðisvanda, heimsendan mat að ekki sé minnst á hver á eiginlega
að sjá um allt þetta gamla fólk þegar aldurshóparnir fara ört stækk-
andi og lífeyririnn dugir ekki til að framfleyta þeim.
Þóra Sif Sigurðardóttir, forstöðumaður
Lögmannshlíðar og starfandi hjúkrunar-
forstjóri hjá Öldrunarheimilum Akureyrar.
Þankastrik er fastur dálkur í blaðinu og höfundur hvers pistils stingur upp á þeim næsta. Í
þanka striki gefst hjúkrunarfræðingum færi á að tjá sig um ýmislegt er varðar hjúkrun og er
þeim hjartfólgið. Pistlarnir geta fjallað um ákveðin málefni, sögur af kynnum við sjúklinga eða
starfsfólk, eitt hvað sem hefur orðið höfundum til hugljómunar eða hvað eina annað sem teng-
ist starfinu og hugmyndafræði þess.