Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Page 53
Ég tel að flestir séu þeirrar skoðunar að það sé alla jafna vænlegra til árangurs að
einblína á ytra umhverfið, stuðninginn og ríkjandi viðhorf. Ef planta nær ekki að
vaxa og dafna í garðinum þá byrjum við ekki á því að kenna plöntunni sjálfri um
heldur leitum við ástæðna í umhverfi hennar, jarðveginum, vatninu, veðurfarinu og
áburðinum (Eileen Byrne). Í auknum mæli felast áherslur átaksverkefna í gagnlegri
rýni á námsumhverfið og ríkjandi staðalmyndir í garð greinanna.
Staðalmyndir eiga djúpar rætur
í lífseigum og rótgrónum þankagangi
Það er ekki hægt að neita því að það ríkja mjög kynjaðar staðal myndir um hjúkr-
unarfræðinga. Staðalmyndir eru ekki tilviljunarkenndar heldur samofnar ríkjandi
valdatengslum og eiga djúpar rætur í lífseigum og rótgrónum þankagangi. Rétt eins
og alltaf þá verða staðalmyndir til þess að smætta og einfalda og við nánari greiningu
endurspegla þær gjarnan gagnkyn hneigðarrembu, kynjaðar, rasískar og „ableískar“
hugmyndir. Það er af því að staðalmyndir spretta upp úr og vinna að því að viðhalda
ríkjandi valdatengslum.
Hugmyndir um hjúkrunarfræðinga hafa lengst af, ef ekki alltaf, verið nátengdar
hugmyndum um konur. Hjúkrunarkonur eru umhyggjuríkar og styðjandi. Þær eru
undirbúnar undir alvarlegustu verkefni lífsins (sem lúta að heilsu) og þær eru ráða-
og skilningsgóðar. Þetta er sannarlega ekki ljót mynd sem er dregin þarna upp en við
megum ekki gleyma að þetta er einn hluti tvíhyggjunnar. Á hinum enda ássins eru
hugmyndir okkar um karlmennsku, því þetta er jú andstæðupar. Karlinn (lesist einnig
læknirinn) er yfirvegaður, rökfastur, hlutlaus, hefur frumkvæði og sýnir jafnvel fálæti.
Þetta er sum sé hið sígilda tvenndarpar: karlar og konur, læknar og hjúkrunarfræðingar.
Í tvíhyggjunni felst ávallt stigveldi því andstæðir þættir tvenndarparsins eru mishátt
metnir. Framlag kvenna er vanmetið. Þetta er arfleifðin okkar, partur af sögu okkar og
bergmálar enn í dag.
Rætur þessarar tvíhyggju liggja djúpt í menningu okkar og sögu og lita hvernig
framlag og vinna er metin, hvaða störf eru talin meira virði og hvaða störf eru minna
metin. Af því að þessar hugmyndir eiga sér svo djúpar rætur eru þær jafnframt svo
kunnuglegar, við rennum einhvern veginn svo ljúflega inn í þessi þrástef óafvitandi
ef við gætum okkar ekki.
hugleiðingar um jafnréttisstarf og átaksverkefni til að fjölga körlum í hjúkrun
tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 97. árg. 2021 53