Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Side 55
var að starfa innan um hið mikla stigveldi sem þar á sér stað.
Þarna ríkir ákveðin virðingar röð sem gengur út á að aðgreina
störf og ábyrgð og meta til virðingar. Störf eru sannarlega mis-
vel metin og það endurspeglast ekki bara í launaumslaginu
heldur gegnsýrir líka samskipti og starfshætti. Þetta er ekki
bundið við Landspítalann sérstaklega, þetta er ekki einu sinni
séríslenskt fyrirbæri heldur alþekkt vandamál. Heilbrigðis-
stofnanir eru oft mjög stórir vinnustaðir og þar fyrirfinnast
sannarlega sömu fordómar og annars staðar í samfélaginu.
Niðurstöður erlendra rannsókna hafa leitt í ljós að hinsegin
karlar og konur í hjúkrunarstarfi upplifi gjarnan neikvæð
viðhorf og mismunun og verða jafnvel fyrir ofbeldi, sem bygg-
ist á hómófóbíu, í starfi sínu. Þá hefur lesbískum hjúkrunar-
fræðingum verið meinað að sinna ákveðnum hluta starfa eftir
að þær komu út úr skápn um, þ.e.a.s. að sinna líkamlegri um -
önnun kvenna. Aðrar rannsóknir sýna að karlkynshjúkrunar-
fræðingum hafi verið meinað að sinna umönnun kvenna af
ótta við að snerting þeirra væri túlkuð sem kynferðisleg. Við
höfum ekki gert sambærilegar rannsóknir á Íslandi en það
væri ábyrgðarlaust að ganga út frá því að mismunun fyrir -
finnist ekki innan sjúkrastofnana hérlendis.
Víðsýni fremur en rótgróið
og kynjað gildismat
Ég held að það hljóti að vera forgangsatriði að beina sjónum í
auknu mæli að starfsumhverfinu og viðteknu verklagi á
vinnustöðum og að þar sé unnið markvisst gegn rótgrónu gild-
ismati sem endurspeglar og viðheldur ríkjandi valdamisræmi.
Að vinna sé lögð í að stuðla að jákvæðum viðhorfum og gild -
um sem endurspegla víðsýni og þar sem fjölbreytileiki starfs-
fólks er álitinn kostur og honum er fagnað, þar sem vel er tekið
á móti starfsfólki sem ekki fellur innan ramma viðtekinna
staðalmynda.
Ég tel að kynningarstarf sé jákvætt og mikilvægt að karlar
finni að það sé talað sérstaklega til þeirra, án þess þó að það
sé gert með þeim hætti að aðgreina störf þeirra frá störfum og
framlagi kvenna. Þá er enn fremur tímabært að líta til fleiri
hópa í þessu samhengi. Loks þarf að breyta viðhorfum í garð
hjúkrunarfræðinga og annarra heilbrigðisstétta þar sem konur
eru í miklum meirihluta, því það er sannarlega kerfislægt van-
mat á þessum störfum. Það endurspeglast m.a. í launum hjúkr-
unarfræðinga sem hafa alltaf verið lág í samanburði við viðmið-
unarstéttir með sambærilega menntun og ábyrgð.
hugleiðingar um jafnréttisstarf og átaksverkefni til að fjölga körlum í hjúkrun
tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 97. árg. 2021 55
LIÐS VIÐ ÖFLUGA TILT ÞÚ GANGAVIL
VIÐ SJÚKRA HJÚKRUNARFRÆÐINGA HÚSIÐ Á
Akureyri veitir almenna og sérhæfða heilbrig Sjúkrahúsið á
. Það er annað tveggja sérgreinasjúkra sérgreinameðferðir
Sjúkrahúsið er kennslusjúkrahús og fyrsta heilbrigðisstofn
J f f t SAk ð ISO tt á ll i i i t f i
N HÓP
AKUREYRI?
ðisþjónustu, þar sem áhersla er lögð á bráðaþjónustu og helstu
húsa landsins.
unin á Íslandi til að hljóta alþjóðlega gæðavottun á starfsemi sinni.
- FRAM
SÆ
KNI
YGGI - SAM
VINNA
A
ÖRRY
a n ram er me vo un a r s nn s ar sem .
. Hann státar af blómleguAkureyri er fjölskylduvænn bær með góða möguleika til afþreyingar jafnt sumar sem vetur
Ef þú vilt koma og vinna á skemmtilegum vinnustað þar sem áhersla er lögð á heilsu og vellíðan starfsmanna og gott
ið tökum vel á móti þér!V