Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Side 60
rætt í norrænu samstarfi, ráðstefnur og kynningar voru haldnar og um það skrifað
(Elín Eggerz-Stefánsson, 1981; Gréta Aðalsteinsdóttir o.fl., 1976; Guðrún Eggerts-
dóttir, 1977; Þóra Arnfinnsdóttir, 1980; Þórunn Kjartansdóttir, 1988).
Árið 1986 sendi deild hjúkrunarforstjóra innan Hjúkrunarfélags Íslands land-
læknisembættinu áskorun þess efnis að unnið yrði að stöðlun hjúkrunargreininga
til skráningar í hjúkrun og til að undirbúa tölvuskráningu. Í kjölfarið var stofnaður
vinnuhópur heilsugæsluhjúkrunarfræðinga sem gaf út handbók um hjúkrunarskrán-
ingu árið 1991 á vegum embættisins. Vinnuhópinn skipuðu Anna Björg Aradóttir,
Bryndís Halldórsdóttir, Guðrún Broddadóttir, Kristín Axelsdóttir, Kristín Pálsdóttir,
María Guðmundsdóttir, Sigrún Gunnarsdóttir og Vilborg Ingólfsdóttir, en Rut Jóns-
dóttir frumþýddi texta (Vilborg Ingólfsdóttir o.fl., 1997). Það var í fyrsta sinn sem
NANDA-flokkunarkerfið í hjúkrun var þýtt í heild á íslensku (Landlæknisembættið,
1991) en Steinunn Garðarsdóttir (1985) hafði áður grófþýtt heiti hjúkrunargreininga.
Þessi útgáfa var mikil framsýni.
Vinnu- og ráðgjafarhópar um skráningu hjúkrunar voru starfandi hjá landlæknis -
embættinu í um 25 ár með Vilborgu Ingólfsdóttur og Önnu Björgu Aradóttur hjúkr-
unarfræðinga í broddi fylkingar. Ásta Thoroddsen bættist í hópinn og ritstýrði síðari
útgáfum af handbókinni. Á þessum árum var Handbók um skráningu hjúkrunar
gefin út þrisvar af embættinu, 1991, 1997, viðauki við þá útgáfu árið 2000, og aukin
og viðamesta útgáfan árið 2002 (Anna Björg Aradóttir og Ásta Thoroddsen, 1997;
Ásta Thoroddsen, 2002; Landlæknisembættið, 1991). Þýðing á bandarísku flokkunar-
kerfi um hjúkrunarmeðferð, Nursing Interventions Classification (NIC), leit fyrst
dagsins ljós árið 1997 (Ásta Thoroddsen, 2002; 2005). Fjöldi hjúkrunarfræðinga
starfaði í vinnuhóp um skráningu hjúkrunar hjá embættinu og lagði af mörkum
ómetanlega vinnu til viðbótar þeim sem að ofan eru nefndir. Þeir eru: Brynja Ör-
lygsdóttir, Elísabet Guðmundsdóttir, Ingibjörg Hjaltadóttir, Jóhanna Fjóla Jóhann-
esdóttir, Júlía Sigurveig Jónsdóttir, Kristín Þórarinsdóttir, Laura Sch. Thorsteinsson,
Lilja Björk Kristinsdóttir, Lilja Stefánsdóttir, Lilja Þorsteinsdóttir og Matthildur Val-
fells.
Á Íslandi hafa heilsufarslyklar verið notaðir sem rammi til stuðnings við skipulega
söfnun upplýsinga um aðalþætti virkni og heilbrigðis hjá sjúklingum og til að flokka
saman skyldar hjúkrunargreiningar. Heilsufarslyklarnir (Functional Health Patterns),
áður oft kallaðir Gordons-lyklar, byggjast á hugmyndum Marjorie Gordon (Gordon,
1987). Lyklarnir eru 11 talsins og taldi Gordon að notkun þeirra stuðlaði að réttri
framsetningu hjúkrunargreininga. Hún lagði áherslu á að maðurinn tileinkar sér líf-
erni og virkni til að viðhalda heilbrigði sínu, lífsgæðum og ná því besta út úr lífinu.
Það er okkar, hjúkrunarfræðinga, að afla upplýsinga og meta hvenær þetta mynstur
breytist þannig að grípa þurfi inn í, greina breytinguna eða vandann, sem er þá sett
fram sem hjúkrunargreining. Heilsufarslyklarnir hafa náð mikilli útbreiðslu hér á
landi, notaðir í námi og kennslu, rannsóknum og klínísku starfi, og má segja að
upplýsingaskrá sjúklings byggist á þeim á nær öllum heilbrigðisstofnunum. Heilsu-
farslyklar Gordon voru gefnir út í vasabroti af Kristínu Þórarinsdóttur árið 2000 og
síðar af Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri (FSA) og Landspítala. Áður höfðu upp -
lýsingar um sjúklinga verið skráðar eftir líffærakerfum. Það þótti ekki nógu hjúkr-
unarfræðileg nálgun. Frá fyrstu útgáfu á Handbók um skráningu hjúkrunar hafa
hjúkrunargreiningar verið flokkaðar samkvæmt heilsufarslyklunum.
Á árinu 2009 var ýmislegt að gerast í rafrænum sjúkraskrármálum, kröfulýsing
gerð þar að lútandi og tilheyrandi kóðamál hjá heilbrigðisráðuneytinu og unnið var
að nýrri útgáfu á lágmarksskráningu vistunarupplýsinga á Íslandi hjá landlæknis-
embættinu. Dregist hafði úr hömlu að uppfæra kóðakerfin í hjúkrun í sjúkraskrá og
hjúkrunarfræðingar kölluðu eftir nýrri útgáfu af Handbók um skráningu hjúkrunar.
Á sama tíma var verið að vinna að nýrri stefnu Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
(Fíh), m.a. í upplýsingatækni í hjúkrun. Í minnisblaði til formanns Fíh, dagsettu 15.
september 2009 frá formanni vinnuhóps um upplýsingatækni í hjúkrun (Ásta Thor-
oddsen, 15. sept. 2009a), kemur þetta fram:
ásta thoroddsen
60 tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 97. árg. 2021
Heilsufarslyklarnir hafa
náð mikilli útbreiðslu hér
á landi, notaðir í námi og
kennslu, rannsóknum og
klínísku starfi, og má segja
að upplýsingaskrá sjúk-
lings byggist á þeim á nær
öllum heilbrigðisstofn-
unum. Áður höfðu
upplýsingar um sjúklinga
verið skráðar eftir líffæra-
kerfum. Það þótti ekki
nógu hjúkrunarfræðileg
nálgun. Frá fyrstu útgáfu á
Handbók um skráningu
hjúkrunar hafa hjúkrunar-
greiningar verið flokkaðar
samkvæmt heilsufars-
lyklunum.