Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Qupperneq 69
Hugtökin geta staðið ein og sér (t.d. sár) eða tengst öðrum
hugtökum (t.d. sykursýkifótasár) til að ná fram sértækari
merk ingu. Ávallt þarf hugtök úr tveimur ásum hið minnsta,
oftast eru ásarnir aðalhugtak og afstaða/ákvörðun notaðir fyrir
hjúkrunargreiningu og aðalhugtak og framkvæmd fyrir hjúkr-
unarmeðferð. Dæmi um þetta eru:
Hjúkrunargreining: Skert (afstaða) hreyfigeta (aðalhugtak)
Hjúkrunaríhlutun/-meðferð: Mæla (framkvæmd) blóð -
þrýsting (aðalhugtak)
Í töflu 2 á næstu opnu má sjá dæmi um hjúkrunargreiningar,
útkomur og -með ferð eða íhlutun sem lýst hefur verið hjá
börnum með verki (Coenen o.fl., 2017). Flestar hjúkrunar-
greiningar sem þarna koma fram ættu að koma hjúkrunar-
fræðingum kunnug lega fyrir sjónir enda keimlíkar NANDA-
greiningum. Hjúkr unar meðferð og -íhlutun eru einnig áþekkar
því sem er í NIC-flokkunarkerfinu, til dæmis súrefnismeðferð
og vökvagjöf í æð, en þó er ýmis meðferð skráð á svipaðan hátt
og hjúkrunarfræðingar þekkja sem verkþætti. Í töflu 2 hafa
ásar verið settir saman til að mynda hjúkrunargreiningar og
-með ferð. Á vefsíðu Rannsókna- og þróunarseturs um ICNP
má finna fræðsluefni og dæmi um hjúkrunargreiningar og
-með ferð samkvæmt ICNP.
Hvernig verður ICNP notað?
Í dagsdaglegu starfi ættu hjúkrunarfræðingar ekki að verða
varir við miklar breytingar þegar ICNP verður komið inn í
sjúkraskrá. Talsverða undirbúningsvinnu þarf að inna af hendi
áður en til þess kemur. Hún felst meðal annars í því að deildir
og sérsvið hjúkrunar þurfa að taka þátt í því að velja viðeigandi
hjúkrunargreiningar og -meðferð sem oftast er notuð svipað
og nú er í Sögu undir Ferli á deild.
Nánari upplýsingar um ICNP
Ákvörðun hefur verið tekin um að ICNP verði notað í
framtíðinni við skráningu í hjúkrun á Íslandi. ICNP kemur því
til með að snerta alla starfandi hjúkrunarfræðinga. Rann-
sókna- og þróunarsetur um ICNP mun leggja fram ýmiss
konar fræðsluefni, til dæmis örnámskeið og greinar, á næstu
vikum á vefsíðu setursins, https://icnp.hi.is. Einnig má finna
efni á vefsíðu Alþjóðaráðs hjúkrunarfræðinga, ICN, http://icn.ch.
Þeim sem hafa áhuga á að kynna sér ICNP betur eða vinna að
efni því tengdu er velkomið að hafa samband á netfangið
icnp@hi.is.
Heimildir
Ásta Thoroddsen. (2011). Eru hjúkrunargreiningar nægilega lýsandi? Tímarit
hjúkrunarfræðinga, 87(4), 12–16
Coenen, A., Feetham, S., Hinds, P.S., Jansen, K., Keller, S., Kim, T.Y. og fleiri.
(2017). Pain Management for Paediatric Population. Genf, International
Council of Nurses.
icnp, alþjóðlegt flokkunarkerfi í hjúkrun
tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 97. árg. 2021 69
Heiti ása Lýsing
Aðalhugtak (focus) Hugtak eða viðfangsefni sem skiptir máli fyrir hjúkrun (verkur, útskilnaður, þekking)
Afstaða, ákvörðun (judgement ) Hugtak sem lýsir klínísku áliti eða ákvörðun sem tengist aðalhugtaki (truflað, skortur
á, hætta á, minnkað, aukið)
Hjúkrunarþegi (client) Hugtak sem á við þann er nýtur hjúkrunar/meðferðar (einstaklingur, fjölskylda)
Framkvæmd (action) Hugtak sem lýsir því sem gert er fyrir eða með þeim sem nýtur hjúkrunar (að kenna,
hagræða, skola)
Aðferðir (means) Hugtak sem lýsir því sem notað er til að framkvæma (áhöld eða þjónusta)
Staðsetning á líkama eða í rúmi (location) Hugtak sem lýsir líkamlegri staðsetningu út frá miðpunkti líkama (vi/hæ) (vi. auga,
hæ. fótur) eða staðsetningu í rými (heima, vinnustaður)
Tími (time) Hugtak sem lýsir tímapunkti, tímabili (við útskrift, í aðgerð)
Ákvörðun hefur verið tekin um að ICNP verði
notað í framtíðinni við skráningu í hjúkrun á
Íslandi. ICNP kemur því til með að snerta alla
starfandi hjúkrunarfræðinga. Rannsókna- og
þróunarsetur um ICNP mun leggja fram ýmiss
konar fræðsluefni, til dæmis örnámskeið og
greinar, á næstu vikum á vefsíðu setursins,
https://icnp.hi.is.
Tafla 1. Sjö ásar sem ICNP er byggt upp af