Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Side 72

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Side 72
Valgerður Lísa Sigurðardóttir Valgerður Lísa Sigurðardóttir varði doktorsritgerð sína í ljósmóðurfræði við Hjúkr- unarfræðideild Háskóla Íslands 5. júní. Ritgerðin ber heitið: Neikvæð upplifun fæðingar og ljósmóðurmeðferð: Framtíðarsýn barneignarþjónustu (Negative birth experience and midwifery counselling intervention: A vision for maternity care). Aðalmarkmið rannsóknarinnar var að þróa ljósmóðurmeðferð fyrir konur sem hafa þörf fyrir að fara yfir upplifun fæðingar. Í fyrsta hluta voru markmiðin að lýsa fæð - ingar upplifun kvenna fyrstu tvö árin eir fæðingu og skoða áhrif stuðnings á upp - lifun fæðingar. Markmið annars hluta var að skoða væntingar og reynslu kvenna af að fara yfir upplifun fæðingar með ljósmóður í Ljáðu mér eyra (LME) þjónustu á Landspítala. Markmið þriðja hluta var að lýsa uppbyggingu og forprófa meðferð sem fól í sér að konur í áhættumeðgöngu skrifuðu um fæðingarupplifun og komu í viðtal eir fæðingu til ljósmóður sem sinnti þeim í meðgönguvernd. Andmælendur voru dr. Mirjam Lukasse, prófessor við Oslo Metropolitan Uni- versity, Deild hjúkrunar og heilsueflingar, Ósló, og dr. Inga Dóra Sigfúsdóttir, pró- fessor við Sálfræðideild Háskólans í Reykjavík. * * * Ásta Bjarney Pétursdóttir Ásta Bjarney Pétursdóttir varði doktorsritgerð sína í hjúkrunarfræði við Hjúkrunar - fræðideild Háskóla Íslands 11. júní. Ritgerðin ber heitið: Styrkleikamiðuð ölskyldu- stuðningsmeðferð í sérhæfðri líknarheimaþjónustu (Family Nursing Strengths- Oriented Supportive Intervention in Specialized Palliative Home Care). Aðalmarkmið rannsóknarinnar var að þróa, innleiða og meta árangur íhlutunar sem felur í sér styrkleikamiðaðar meðferðarsamræður fyrir nána aðstandendur sjúk- linga með lífsógnandi krabbamein, auk þess að meta langtímaáhrif á andlega líðan aðstandenda eir andlát sjúklingsins. Einnig að þróa sértækt innleiðingarferli fyrir hjúkrunarfræðinga sem sinna líknarheimaþjónustu. Aðstandendur sjúklinga með lífsógnandi krabbamein þurfa á sérhæfðum stuðningi að halda, vegna þess álags sem getur fylgt veikindaferlinu og alvarlegum afleiðingum þess. Íhlutun í formi með - ferðarsamræðna getur styrkt aðstandendur í að vera betur í stakk búnir til að takast á við aðstæðurnar. Umsjónarkennari og leiðbeinandi var dr. Erla Kolbrún Svavarsdóttir, prófessor við Hjúkrunarfræðideild. Auk hennar sátu í doktorsnefnd þau Valgerður Sigurðar- dóttir, Erna Haraldsdóttir, Mary Kay Rayens og Arna Hauksdóttir. Andmælendur voru dr. Carole Robinson, prófessor emeritus við Faculty of Health and Social Development University of British Columbia, Kanada, og dr. Bryndís Björk Ásgeirsdóttir, prófessor og deildarforseti við Sálfræðideild Háskólans í Reykja- vík. 72 tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 97. árg. 2021 Nýlegar doktorsvarnir Fjallað var um doktorsritgerðir Valgerðar Lísu Sigurðardóttur og Ástu Bjarneyjar Pétursdóttur í síðasta tölublaði en þær vörðu doktorsrannsókn sína við Háskóla Íslands í júní á síðasta ári. Þau leiðu mistök urðu að ekki var farið rétt með heiti og markmið rannsóknar þeirra og því er það endurbirt í þessu tölublaði. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum.

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.