Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Síða 72
Valgerður Lísa Sigurðardóttir
Valgerður Lísa Sigurðardóttir varði doktorsritgerð sína í ljósmóðurfræði við Hjúkr-
unarfræðideild Háskóla Íslands 5. júní. Ritgerðin ber heitið: Neikvæð upplifun
fæðingar og ljósmóðurmeðferð: Framtíðarsýn barneignarþjónustu (Negative birth
experience and midwifery counselling intervention: A vision for maternity care).
Aðalmarkmið rannsóknarinnar var að þróa ljósmóðurmeðferð fyrir konur sem hafa
þörf fyrir að fara yfir upplifun fæðingar. Í fyrsta hluta voru markmiðin að lýsa fæð -
ingar upplifun kvenna fyrstu tvö árin eir fæðingu og skoða áhrif stuðnings á upp -
lifun fæðingar. Markmið annars hluta var að skoða væntingar og reynslu kvenna af
að fara yfir upplifun fæðingar með ljósmóður í Ljáðu mér eyra (LME) þjónustu á
Landspítala. Markmið þriðja hluta var að lýsa uppbyggingu og forprófa meðferð sem
fól í sér að konur í áhættumeðgöngu skrifuðu um fæðingarupplifun og komu í viðtal
eir fæðingu til ljósmóður sem sinnti þeim í meðgönguvernd.
Andmælendur voru dr. Mirjam Lukasse, prófessor við Oslo Metropolitan Uni-
versity, Deild hjúkrunar og heilsueflingar, Ósló, og dr. Inga Dóra Sigfúsdóttir, pró-
fessor við Sálfræðideild Háskólans í Reykjavík.
* * *
Ásta Bjarney Pétursdóttir
Ásta Bjarney Pétursdóttir varði doktorsritgerð sína í hjúkrunarfræði við Hjúkrunar -
fræðideild Háskóla Íslands 11. júní. Ritgerðin ber heitið: Styrkleikamiðuð ölskyldu-
stuðningsmeðferð í sérhæfðri líknarheimaþjónustu (Family Nursing Strengths-
Oriented Supportive Intervention in Specialized Palliative Home Care).
Aðalmarkmið rannsóknarinnar var að þróa, innleiða og meta árangur íhlutunar
sem felur í sér styrkleikamiðaðar meðferðarsamræður fyrir nána aðstandendur sjúk-
linga með lífsógnandi krabbamein, auk þess að meta langtímaáhrif á andlega líðan
aðstandenda eir andlát sjúklingsins. Einnig að þróa sértækt innleiðingarferli fyrir
hjúkrunarfræðinga sem sinna líknarheimaþjónustu. Aðstandendur sjúklinga með
lífsógnandi krabbamein þurfa á sérhæfðum stuðningi að halda, vegna þess álags sem
getur fylgt veikindaferlinu og alvarlegum afleiðingum þess. Íhlutun í formi með -
ferðarsamræðna getur styrkt aðstandendur í að vera betur í stakk búnir til að takast
á við aðstæðurnar.
Umsjónarkennari og leiðbeinandi var dr. Erla Kolbrún Svavarsdóttir, prófessor
við Hjúkrunarfræðideild. Auk hennar sátu í doktorsnefnd þau Valgerður Sigurðar-
dóttir, Erna Haraldsdóttir, Mary Kay Rayens og Arna Hauksdóttir.
Andmælendur voru dr. Carole Robinson, prófessor emeritus við Faculty of Health
and Social Development University of British Columbia, Kanada, og dr. Bryndís
Björk Ásgeirsdóttir, prófessor og deildarforseti við Sálfræðideild Háskólans í Reykja-
vík.
72 tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 97. árg. 2021
Nýlegar doktorsvarnir
Fjallað var um doktorsritgerðir Valgerðar Lísu Sigurðardóttur og Ástu Bjarneyjar Pétursdóttur
í síðasta tölublaði en þær vörðu doktorsrannsókn sína við Háskóla Íslands í júní á síðasta ári.
Þau leiðu mistök urðu að ekki var farið rétt með heiti og markmið rannsóknar þeirra og því er
það endurbirt í þessu tölublaði. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum.