Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Page 12

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Page 12
12 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 1. tbl. 98. árg. 2022 Í lok árs 2019 byrjaði ég svo í starfi framkvæmdastjóra hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Þar tók ég við góðu búi af Þórunni Ólafsdóttur sem hafði sinnt starfinu af alúð í nær 20 ár. Það byrjaði nú nokkuð harkalega því þegar ég var búin að vera þrjá mánuði í starfi kom upp mislingafaraldur. Mánuði síðar komu svo upp berklar í Klettaskóla. Mér fannst þetta frekar skrýtið; að þessir smitsjúkdómar væru að koma upp á þessum tíma en áherslan undanfarin ár hafði verið á lífsstílssjúkdóma. Ári síðar þá er COVID-19 að byrja. Ég man það svo vel þegar ég sá fyrstu fréttirnar um COVID-19, þá var ég úti á Ítalíu á skíðum að drekka morgunkaffið mitt. Samferðafólk mitt fór að benda mér á fréttir um þessa veiru og spurði hvort við þyrftum að hafa einhverjar áhyggjur af henni. Ég hélt nú ekki. Næstu daga fór ég svo að heyra meira frá samstarfsfólki mínu sem var farið að ókyrrast heima á Íslandi, það þurfi að fara að panta hlífðarbúninga, hanska og grímur. Þetta vatt svo heldur betur upp á sig eins og við þekkjum. Árið fyrir COVID-19 var litað af smitsjúkdómum sem var frekar sérstakt, tveir fyrirvarar áður en faraldurinn skall á. Ég ætla nú samt að vona að það verði eitthvað annað en smitsjúkdómar sem við þurfum að kljást við. verkefnum eða innleiða ferla, gefa endurgjöf og að fá verkefnin til að fljúga. Ég fór þá að leita að námi í verkefnastjórnun eða einhvers konar stjórnunarnámi og skráði mig í meistaranám í mannauðstjórnun, með áherslu á stjórnun og stefnumótun, sem ég kláraði 2004. Síðar sá ég auglýsta stöðu sviðsstjóra á Heilsu- gæslunni í skólaheilsugæslu árið 2004 og fyrir algjöra rælni sótti ég um en ég var ekkert endilega ákveðin í að skipta um starf á þeim tímapunkti. Ég var mjög ánægð á Barnaspítalanum og fannst starf mitt skemmtilegt. Geir Gunnlaugsson læknir var þá yfir Miðstöð heilsuverndar barna og hann var ákveðinn í að að ráða mig. Ég ákvað að slá til og ég sé alls ekki eftir því, þessi ár hjá heilsugæslunni hafa verið mjög skemmtileg og ég sá strax að þar voru fjölmörg tækifæri. Það hafði verið mikil þróun á spítalanum og þar var allt komið í fastar skorður að mér fannst en heilsugæslan vera meira fljótandi. Hjúkrunarfræðingar eru um allt í samfélaginu og forvarnarþátturinn er stór en svo erum við líka að vinna með allt æviskeiðið. Það heillaði mig hvað það er ótrúlega fjölbreytt starf innan heilsugæslunnar. Ég var lengi með skólaheilsugæsluna á landsvísu og þar fékk ég tækifæri til að heimsækja öll sveitarfélögin og vera í sambandi við hjúkrunarfræðinga á öllu landinu. Mér fannst það mjög gefandi og skemmtilegt starf. Viðtal Skrifstofuaðstaða Ragnheiðar í Laugardalshöll.Svalirnar út af skrifstofu Ragnheiðar í Mjóddinni.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.