Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Side 38
38 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 1. tbl. 98. árg. 2022
Farteymi
stundum verið fluttir án samráðs við nýburagjörgæsluna. Því fór nýburagjörgæslan í
átaksverkefni, í samstarfi við miðstöð sjúkraflugs á Akureyri, með það að markmiði
að kynna teymið á fæðingarstöðum á Íslandi og það áhersluatriði að flutningsteymið
sjái um flutninginn. Til er verklag um að flutningur á veikum nýburum skuli vera í
höndum flutningsteymisins. Teymið vill gjarnan mæta á staðinn, meta börnin, gera þau
flutningshæf og sjá um flutninginn. Kynningarstarfið hefur borið árangur en bráðum
sjúkraflutningum innanlands hefur fjölgað síðastliðin fjögur ár,“ segir Elín. „Við komum
með gjörgæslumeðferðina til barnsins og flytjum það til áframhaldandi meðferðar á
Vökudeildina. Það hefur verið sýnt fram á bætta útkomu hjá börnum þegar sérhæfð
flutningsteymi sjá um flutning á veikum nýburum og fyrirburum. Bættar lífslíkur, færri
fylgikvillar og minni líkur á óvæntum uppákomum í flutningi. Fyrir flutning gefur
teymið sér tíma til að undirbúa sjúklinginn fyrir flutning. Það eru teknar röntgenmyndir
og blóðprufur ef þarf. Settir upp æðaleggir, sjúklingar barkaþræddir og sett dren ef
ástæða er til. Það getur tekið tvær til þrjár klukkustundir að undirbúa fyrir flutning því
meðan á flutningi stendur er best að gera sem minnst og oft ekki hægt að gera allt. Sem
dæmi er ekki hægt að hlusta lungu í þyrlu því það er of mikill hávaði og titringur. Þau
eru í viðkvæmu ástandi eftir fæðingu og að bæta flutningi ofan á getur verið mikið álag.
Oftast fara foreldrar með í bráðan flutning en stundum eru mæðurnar ekki í ástandi til
að fara með svo skömmu eftir fæðingu. Þá fær móðirin tækifæri til að ferðast til barnsins
um leið og hún getur.“
Nýburar á Saga Class
Elín segir að öllu jöfnu sé hægt að skipuleggja flutninga á börnum sem þurfa að fara
erlendis með nokkurra daga fyrirvara en þá er flogið með farþegaflugi. „Við eigum í
góðu samstarfi við Icelandair. Ég á góða vinkonu þar sem ég get hringt í nánast hvenær
sem er sólarhrings og hún reddar flugi. Við fljúgum þá á Saga Class en flugfélagið
tekur úr sætaraðir fremst fyrir flutningskassann. Við sitjum þá fyrir aftan barnið og
foreldrarnir eru að sjálfsögðu með líka. Það kostar mikinn undirbúning að fara í svona
flug. Fyrst þarf að skipuleggja flutninginn til Keflavíkur með sjúkrabíl þar sem þarf að
fara í gegnum öryggiseftirlit og landamæraskoðun. Svo kemur sjúkrabíll frá Lundi í
Svíþjóð til Kastrup í Danmörku til að sækja nýburann, flutningsteymið og foreldrana.
Þaðan er ekið yfir Eyrarsundsbrúna á barnagjörgæsluna í Lundi.“
Viðkvæmir flutningar
„Nýburar eru viðkvæmir fyrir áreiti eins og ljósi,
hitabreytingum, titringi og hávaða. Besti flutningsmáti
fyrir nýbura er í móðurkviði en það er að sjálfsögðu ekki
alltaf hægt. Hitastjórnun getur verið krefjandi. Við erum
með hitakassa sem heldur á þeim hita en það má stilla
hitastigið frá 26 gráðum upp í 37 gráður allt eftir því
hver þörf barnsins er. Svo er sett yfir kassann yfirbreiðsla
sem verndar barnið gegn ljósi og hjálpar hitakassanum
að halda uppi hitastigi í köldu veðri. Það eru líka litlar
eyrnahlífar sem er sett á eyrun en þær taka að sjálfsögðu
bara hluta af hljóðinu. Til að halda hita og raka á litlum
fyrirburum eru þeir settir í plastpoka. Það er allt reynt
til að gera flutninginn bærilegan, í hitakassanum liggja
börnin á sérstakri grjónadýnu sem er lofttæmd og þá
liggur hún fullkomlega við líkama þeirra. Einnig fer net
yfir líkamann sem skorðar hann þannig af. Þá er öruggt
að barnið hreyfist ekki til í ókyrrð og lítil hætta er á að
línur og leggir færist úr stað,“ útskýrir Elín. Hún segir að
viðmið fyrir lífsmörk breytist í flugi. „Súrefnismettun
lækkar í háloftunum og við getum þurft að sætta okkur
við lægri súrefnismettun. Ef barn mettar illa á jörðu niðri
þá mettar það verr í flugi. Í öllum holrýmum líkamans
þenst loft út sem getur valdið vandræðum fyrir barnið.
Þau hafa til dæmis ekki getu til að losa loft sem þenst út
í maganum. Þess vegna þarf að setja magasondu fyrir
flutning til að koma í veg fyrir uppþembdan maga. Það
sama gildir um loftbrjóst, það getur versnað mikið í
flugi og því þarf að útiloka slíkt og meðhöndla sé það til
staðar.“
„Það hefur verið sýnt fram á bætta útkomu hjá börnum
þegar sérhæfð flutningsteymi sjá um flutning á
veikum nýburum og fyrirburum. Bættar lífslíkur, færri
fylgikvillar og minni líkur á óvæntum uppákomum í
flutningi.“
Elín Ögmundsdóttir Hrólfur Brynjarsson nýburalæknir og Sigríður María Atladóttir
hjúkrunarfræðingur sinna nýbura