Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Page 58

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Page 58
58 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 1. tbl. 98. árg. 2022 lúta að heilsuvernd, forvörnum og aðgerðum sem grípa þarf til í því skyni að draga úr atvinnutengdum sjúkdómum og slysum, sbr. 1. mgr. 66. gr. Samkvæmt vinnuverndarlögum ber að stuðla að heilsuvernd starfsmanna gegn hvers konar heilsuvá eða heilsutjóni sem kann að stafa af vinnu þeirra eða vinnuskilyrðum. Þá ber atvinnurekanda að stuðla að verkefnum við hæfi og andlegri og líkamlegri aðlögun þeirra að starfsumhverfi. Draga skal úr fjarvistum frá vinnu vegna veikinda og slysa með því að auka öryggi og viðhalda heilsu starfsmanna á vinnustað. Loks ber að stuðla að andlegri og líkamlegri vellíðan starfsmanna. Vinnustaðir setja sér ákveðnar reglur og hafa ákveðin gildi til að vinna eftir. Þar sem Landspítalinn er stærsti vinnustaður heilbrigðisstarfmanna hér á landi verður hér aðeins vikið að stefnu hans í þessum málum. Landspítalinn hefur ákveðin gildi og hefur sett sér skýra stefnu og markmið sem unnið er að. Gildi Landspítalans eru umhyggja, öryggi, fagmennska og framþróun (Landspítali, e.d.). Landspítalinn kynnti enn fremur samskiptasáttmálann árið 2018. Samskiptasáttmálinn var unninn út frá yfir 900 ábendingum frá um 700 starfsmönnum, um hvað gera mætti betur til að bæta samskipti á spítalanum. Markmið samskiptasáttmálans fólust einkum í að bæta samskipti milli ólíkra starfsstétta spítalans og við sjúklinga og aðstandendur þeirra. Enn fremur átti sáttmálinn að stuðla að betri líðan og öryggi skjólstæðinga og starfsfólks og auka starfsánægju (Landspítali, e.d.). Undirmönnun og mikil starfsmannavelta getur komið niður á umönnun sjúklinga og haft áhrif á öryggi þeirra. Aðkoma stjórnenda og stuðningur þeirra við samstarfsmenn, rétt eins og samvinna og jákvæð samskipti, eru lykilatriði til aukinnar þátttöku og meiri starfsánægju. Í skrifum um líðan heilbrigðisstarfsmanna er oft vísað til sjálfsumönnunar og er þar átt við þær aðferðir sem hægt sé að nýta sér til að huga að eigin heilsu og líðan. Sjálfsumönnun er þannig hugsuð sem bjargráð við streitu, kulnun og þreytu. Samheiti við hugtakið sjálfsumönnun er sjálfsrækt og vísar til þess þegar einstaklingar taka upp heilbrigðari lífsstíl. Sjálfsrækt hjá hjúkrunarfræðingum er talin auka starfsánægju og jákvæðni til starfsins. Slökunar- og núvitundaræfingar eru meðal þess sem getur haft jákvæð áhrif á vellíðan og streitustjórnun hjá hjúkrunarfræðingum (Oates, 2018). Í hjúkrun reynir óumdeilanlega á ýmsa streituvaldandi þætti, en markviss sjálfsrækt getur dregið úr þeim, aukið seiglu og bætt líðan. Rannsóknir benda til þess að hjúkrunarfræðingar geti bætt líðan sína með persónulegum þroska og sjálfsumönnun. Andleg líðan hjúkrunarfræðinga, jákvætt viðhorf, von, virkni, seigla og bjartsýni eru lykilatriði í að viðhalda starfsheilbrigði. Andlegt jafnvægi hjúkrunarfræðinga hjálpar þeim að takast á við streitu og eru sjálfsþekking, sjálfstraust og seigla þar veigamiklir þættir. Þessir þættir styðja einnig við það að ná árangri, læra og verða sterkari andspænis áskorunum (Elliott og Fry, 2021). Sjúkleg streita og kulnun Mikið hefur verið fjallað um kulnun (e. burnout) undanfarin ár og mikilvægi fyrirbyggjandi aðgerða gegn henni. Kulnun er lýst sem sálrænu ástandi tilfinningalegrar örmögnunar, sem kemur í kjölfar langvarandi streitu og er oft tengd starfi. Tilfinningaleg örmögnun vísar til þess að einstaklingnum finnst kröfurnar til hans vera of miklar og hann hefur ekki kraft til að standa undir þeim væntingum. Ástandið getur komið í kjölfar langvarandi sálrænnar og líkamlegrar vanlíðunar (Guo o.fl., 2017). Heilbrigðisstarfsmenn eru taldir í aukinni áhættu á að þróa með sér kulnun vegna eðlis starfs þeirra. Þeir verða fyrir miklum og oft tilfinningalega lýjandi streituvöldum við að veita flókna hjúkrun og meðferð. Verkefnaálag og of mikil vinna, óreglulegur vinnutími, yfirvinna, vaktaskipti og undirmönnun eru allt áhættuþættir kulnunar. Einkenni kulnunar geta verið líkamleg einkenni eins og t.d. þreyta, kvíði, svefntruflanir, höfuðverkur, veikindi, minnkuð einbeiting og minnistap (Woo o.fl., 2020). Takmarkaður stuðningur frá yfirmönnum er einnig veigamikill áhrifaþáttur sem ýtir undir kulnun. Stuðningur, góð stjórnun og hvatning frá yfirmönnum geta hins vegar dregið úr streitu og hjálpað hjúkrunarfræðingum að takast á við vinnuálag og kulnun (Chen og Chen, 2018). Kulnun er ástand sem getur leitt til alvarlegs heilsubrests, t.d. svefnleysis, vímuefnaneyslu, sálrænnar vanlíðunar, minni starfsánægju og meiri starfs- mannaveltu. Kulnun getur orsakað skerðingu á gæðum hjúkrunar og umönnunar skjólstæðinga og haft neikvæð áhrif á upplifun skjólstæðinga, umönnun og öryggi þeirra (Geuens o.fl., 2017; Guo o.fl., 2017). Áskoranir heimsfaraldurs Um fátt hefur verið meira fjallað en kórónuveirufaraldurinn COVID-19 frá því að smit fóru að dreifast um heimsbyggðina í ársbyrjun 2020. Sú umfjöllun hefur m.a. beinst að því gríðarlega álagi sem hefur myndast í heilbrigðiskerfum víða um heim og ógnar bæði öryggi og velferð einstaklinga. Ekki síst þegar horft er til viðkvæmra hópa og fjölmennra samfélaga. Samhliða þessu hafa heilbrigðisstarfsmenn víða þurft að starfa við bæði óöruggar og oft á tíðum ómanneskjulegar aðstæður. Í sumum löndum hefur ekki verið unnt að sinna öllum sem hafa þurft á bráðri læknisþjónustu að halda og fjöldi fólks hefur dáið vegna skorts á sjúkrarúmum og nauðsynlegum læknabúnaði. Greind tilfelli á heimsvísu í apríl 2021 nálgast 148 milljónir manna, þar af eru meira en þrjár milljónir látnar (Ueda o.fl., 2020; World Health Organization, e.d.). Allt frá því COVID-19 uppgötvaðist hafa farið fram viðamiklar rannsóknir á veirunni SARS-CoV-2, bæði í tengslum við faraldsfræði og erfðafræði ásamt efnahagslegum, samfélagslegum og sálfélagslegum áhrifum. Þá hafa áhrif COVID-19 einnig verið skoðuð í tengslum við heilsufar og starfsheilbrigði framlínustarfsfólks, þar með talið hjúkrunarfræðinga. Í skýrslu Alþjóðaráðs hjúkrunarfræðinga (e. International Council of Nurses) kemur fram, að við árslok 2020 voru skráð dauðsföll hjúkrunarfræðinga í 59 löndum orðin 2.262. Sú tala hefur síðan farið hækkandi og kann raunverulega að vera mun hærri þar sem skortur er á haldbærum gögnum um smit og áhrif meðal heilbrigðisstarfsmanna (International Council of Nurses, 2021). Enn fremur bendir ýmislegt til þess að COVID-19 hafi með beinum eða óbeinum hætti haft verulega íþyngjandi og skaðleg áhrif á geðheilsu þeirra. Margt kemur þar til sem eykur á streitu meðal hjúkrunarfræðinga, svo sem fyrirvaralausar og endurteknar breytingar og endurskipulagning á bæði starfsemi og starfsháttum ásamt ótta við að smitast af Að verja starfsheilbrigði í krefjandi starfsumhverfi hjúkrunarfræðinga
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.