Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Side 91

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Side 91
Fyrst og fremst þakka ég viðmælendum mínum sem voru tilbúnir að veita ítarleg viðtöl með upplýsingum úr reynsluheimi sínum í starfi. Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga þakka ég fyrir fjárstyrk og ritstjórn greinar. ÞAKKIR leiðandi er lífsnauðsynleg þörf á úrbótum. Þessi staða er óásættanleg og það er dapurleg tilhugsun að þetta skuli vera staðreynd. Aðstandendur eru oft á tíðum ráðþrota, þeir upplifa umönnunarbyrði, telja sig vera í pattstöðu og í sumum tilfellum koma þeir í veg fyrir útskrift til að stuðla að því að þeirra nánasti komist á hjúkrunarheimili sem fyrst. Þetta ástand leiðir til erfiðra samskipta starfsfólks við aðstandendur. Þessar niðurstöður samræmast rannsókn Koren og félaga (2018), en þar kom fram að þótt starfsfólk teldi suma aðstandendur krefjandi væri orsökin ónóg þjónusta heilbrigðisyfirvalda við aldraða. Svipaða niðurstöðu má finna í hérlendum rannsóknum, þar sem fram kemur að ekki er ólíklegt að álag á aðstandendur hafi aukist vegna úrræðaleysis (Sigurdardottir o.fl., 2016). Pattstaða aðstandenda er því líklegast lýsandi fyrir stöðu þeirra, en vegna úrræðaleysis í þjónustu við aldraða eru margir að bugast og treysta sér ekki til að stuðla að heimferð aðstandenda sinna. Þeir telja spítalann öruggan stað en eins og fram hefur komið er spítalinn ekki ákjósanlegur staður fyrir aldraða einstaklinga til lengri tíma og því er um falskt öryggi að ræða. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að viðmælendur telja mikla vöntun á úrbótum í heilbrigðiskerfinu þegar kemur að málefnum aldraðra. Að mati viðmælenda er þörf á nýrri sýn í málefnum aldraðra, heildrænni stefnu sem fylgt er eftir ásamt aukinni aðkomu fagaðila og aldraðra. Ávinningur ætti að vera í einföldun og samvinnu milli kerfa og þjónustuaðila. Auðvelda þarf boðleiðir, efla þverfaglega samvinnu og klára samþættingu heimaþjónustu. Auka þarf fræðslu, þjálfun og menntun starfsfólks í heilbrigðisþjónustu sem sinnir öldruðum til að mæta betur þörfum þeirra. Létta þarf álagi á Landspítalanum svo að hægt sé að veita sjúklingum þjónustu á viðeigandi þjónustustigi. Starfsfólk Landspítalans ætti að hefja útskriftarferlið fyrr, samvinnu milli deilda má bæta og vanda betur til við skráningu og uppvinnslu ásamt því að passa upp á að sjúklingum sé ekki mismunað vegna aldurs. Þörf er á róttækum breytingum, en án þeirra er hætta á að vegna fyrirsjáanlegra breytinga í mannfjöldaþróun muni álag á spítalann eingöngu aukast. Spítalar þurfa að geta veitt sjúklingum sínum þjónustu á viðeigandi þjónustustigi, en það er markmið heilbrigðisstefnu eigi síðar en árið 2030 ásamt því að hægt verði að útskrifa sjúklinga án tafa eftir að meðferð þeirra er lokið (Heilbrigðisráðuneytið, 2019). Það verður að teljast óásættanlegt að þessu markmiði verði jafnvel ekki náð fyrr en eftir tæpan áratug, ef það næst á annað borð, og því er augljós þörf á úrbótum hið fyrsta. Mikil áhersla var lögð á úrbætur utan Landspítalans að sögn viðmælenda, nýta mætti betur þau úrræði sem væru til staðar, efla þau en jafnframt fjölga. Með enn frekari stuðningi til heimahjúkrunar og heimaþjónustu almennt væri sjálfsagt hægt að koma betur til móts við aldraða og veita einstaklingsmiðaða þjónustu ásamt því að styðja við sjálfstæða búsetu, sem væri réttur þeirra. Þá væri löngu tímabært að endurskoða hlutskiptingu á kostnaði í langtímaþjónustu hérlendis og horfa til annarra Norðurlanda sem verðu mun hærra hlutfalli í heimaþjónustu. Það mætti þó ekki vera á kostnað gæða og þjónustu hjúkrunarheimila, sem nú þegar stæðu mörg höllum fæti og þörfnuðust einnig sárlega úrbóta. Rannsóknin byggir á viðtölum við sex starfsmenn sem hafa mikla reynslu af útskriftarmálum Landspítalans. Takmarkanir rannsóknarinnar eru þær að viðmælendur eru fáir og því er ekki hægt að alhæfa út frá niðurstöðum. Styrkleiki rannsóknarinnar er að viðmælendur koma úr mismunandi starfsstéttum sem koma að umönnun og útskriftum aldraðra sjúklinga á ólíkan hátt. Álykta má út frá niðurstöðum að þörf sé á átaki innan spítalans um breytt verklag og að utan spítalans þurfi að stórefla þjónustu við aldraða ásamt því að skerpa hlutverk og ábyrgð þjónustuaðila. Bjóða þarf upp á fjölbreyttari úrræði og fjölga þeim og efla samvinnu allra kerfa, en gott og traust skipulag öldrunarþjónustu eykur ekki einungis öryggi þeirra öldruðu sem þurfa á þjónustu að halda heldur einnig aðstandenda þeirra og starfsfólks bæði innan og utan Landspítala. Mikilvægt er að horft sé á heildarmyndina og unnið áfram að úrbótum í heilbrigðiskerfinu til að ná fram hagkvæmum ávinningi fyrir alla í samfélaginu.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.