Árbók frjálsíþróttamanna - 01.05.1944, Blaðsíða 12
eins og t. d. Þorgeir Jónsson frá Varmadal, Þorgils Guð-
mundsson frá Valdastöðum o. fl.
Þriðja héraðsmótið, senf einnig mun hafa verið háð árlega
síðan á fyrra-stríðsárunum, er leikmót Borgarfjarðar, sem
háð var fyrst á Hvítárvöllum, en síðar ætíð hjá Ferjukoti.
Var þar keppt í ýmsum frjálsum íþróttum, auk glímu og
sunds. Hefir það mót ætíð verið fjölsótt, bæði af keppendum
og áhorfendum.
Auk þessara þriggja héraðamóta i nærsveitum Reykjavík-
ur, voru og mót háð hér og þar um allt land, t. d. á Akur-
eyri, Austfjörðum, Fljótsdalshéraði (Egilsstöðum), Þingeyjar-
sýslum og víðar, en varla eins reglulega eins og hin áður-
töldu, og verður ekki gerð tilraun til að skýra nánar írá
þeim hér.
Framkvæmdir og forgöngu fyrir mótum þessum höfðu
venjulegast hin staðbundnu ungmennafélög eða héraðssam-
bönd þeirra, því að íþróttafélög voru þá mjög óvíða. Þurfti
oft talsverðar framkvæmdir, áður en hægt væri að halda leik-
mót, þótt í smáum stíl væri, einkanlega fyrsta sinn. Óviða
hagaði svo vel til, að ekki þyrfti meiri og minni vinnu við
að laga til eða byggja íþróttasvæði, útvega áhöld o. fl., og
voru þessi ungmennasamtök því alveg nauðsynleg til slíkra
framkvæmda og átaka.
Eitt var það líka, sem mjög háði áhugamönnum í frjáls-
um íþróttum úti um land. Það var kunnáttuleysið og erfiðleik-
ar á að fá tilsögn. Enginn kennari var til í landinu á þessu
sviði íþróttanna. Tilsögn var því helzt að fá hjá íþróttamönn-
um þeim, sem kynnt höfðu sér íþróttirnar af bókum og eigin
reynslu og öðlazt nokkurn þroska í þessum íþróttum. Ýms
ungmennafélög og sambönd þeirra gengust því fyrir nám-
skeiðum fyrir félaga sína og fengu íþróttamenn úr Reykja-
vík sem kennara. Voru það einkum þeir landshlutar, sem fjar-
lægari voru höfuðstaðnum, sem mestan áhuga sýndu i því, að
afla meðlimum sínum kunnáttu á þennan hátt. Ungmenna-
samband Þingeyinga var líklega fyrsta félagið, sem réð
reykvíkskan íþróttamann til íþróttakennslu, snemma árs 1915.
Var það Guðm. Kr. Guðmundsson, hinn góðkunni og ágæti
íþróttamaður, er unnið hafði flest stig á leikmóti Umf. ís-
8