Úrval - 01.06.1942, Blaðsíða 4
2
ÚRVAL
um degi. En annir hinna dag-
legu starfa leyfa okkur næsta
lítinn tíma til lesturs. Eina skyn-
samlega lausnin er vitanlega að
nýta þennan nauma tíma sem
bezt. Flest okkar eyða til einskis
frá þriðjung og allt að helrning
af lestrartímanum.
Ef þér eruð sannfærður um,
að þér séuð þegar búinn að ná
svo miklum leshraða, að við
hann verði ekki aukið, þá skuluð
þér gera eftirfarandi tilraun:
Veljið tvo dálka, sem þér hafið
ekki lesið fyrr, í þessu tímariti.
Lesið annan þeirra í hljóði og
hinn upphátt og takið tímann í
bæði skiptin. Ef þér hafið ekki
verið helmingi fljótari að lesa í
hljóði en upphátt, þá vantar
mikið á, að þér hafið náð full-
um leshraða. Sennilega getið
þér aukið hraðann svo mikið, að
þér lesið þrisvar til f jórum sinn-
um hraðara í hljóði en upphátt.
Meðal leshraði fullorðinna
manna er um 250 orð á mínútu.
Eftir stutta og einfalda þjálfun
á að vera hægt að auka þann
hraða upp í 400 til 600 orð á
mínútu.
Fyrsta og þýðingarmesta æf-
ingin til að ná auknum hraða í
lestri er þessi: Takið yður bók
í hönd í fimm mínútur á dag
í einn mánuð og neyðið yður til
að lesa snöggtum hraðar en
yður er eiginlegt eða finnst
þægilegt. Látið það ekki á yður
fá, þó að einstaka setning, jafn-
vel heilar málsgreinar, fari að
einhverju leyti fyrir ofan garð
og neðan. Haldið ótrauðir áfram
og látið yður nægja, ef þér get-
ið náð aðalþræðinum.
Teljið, hve mörg orð þér lesið
í hvert skipti á þessum firnrn
mínútum. Fyrsta daginn mun
skilningur yðar á því, sem þér
lásuð vera æði þokukenndur.
Eftir tíu daga er framförin aug-
Ijós og í lok mánaðarins verður
skilningur yðar og minni í þessu
efni orðið meira og betra en í
upphafi — þó að leshraði yðar
hafi sennilega aukizt um allt að
helming.
En þessi æfing er aðeins byrj-
unin. Sú lestraraðferð að lesa
hvert orð fyrir sig er algengasta
orsökin að seinalestri manna.
Þegar við vorum börn, var okk-
ur kennt að kveða að orðunum
og lesa þau eitt og eitt í einu.
Mörg okkar hafa aldrei komizt
lengra. Ef þér viljið sannprófa,
hvort þér eruð einn í þeim hópi,
skuluð þér reyna eftirfarandi:
1. Lesið í hljóði í 5 mínútur?
teljið síðan orðin og deilið töl-