Úrval - 01.06.1942, Blaðsíða 74
'72
ÚRVAL
minna en þriðjungur þess, sem
«r í gufuhvolfi jarðarinnar.
Hinn rauðleiti litur á Marz gæti
bent til, að í jarðveginum eða
klettunum væri bundið súrefni.
Ef til vill hefir hið óbundna súr-
efni bundizt súrefnissambönd-
um við veðrun, eins og t. d.
í rauðjárnssteininum hér á jörð-
inni.
Kolsýra hefir heldur ekki
fundizt, en til þess, að hún sé
mælanleg þarf hún að vera í
allstórum stíl. Þessar rannsókn-
ir benda ekki á hagkvæm skil-
yrði fyrir líf. En ekki er þó
óhugsandi, að einhver tegund af
frumstæðu lífi geti þrifizt við
þessi skilyrði.
Hitinn hefir mælzt frekar
lágur, jafnvel um hádegið. Við
miðbaug kemst hitinn upp fyrir
frostmark, ef til vill 10° á C. eða
meira. Við heimskautin er hit-
inn á veturna um -r-70°, en á
sumrin kemst hann upp fyrir 0.
Þegar sólin lækkar á lofti, fellur
hitinn ört, því að gufuhvolfið
heldur ekki vel hita. Það er
sama fyrirbrigðið og við þekkj-
um hér á jörðinni, t. d. uppi á
háum fjöllum, þar sem loftið er
þunnt. Á næturnar getur hitinn
í ,,hitabeltinu“ jafnvel komizt
miður í -^75° á C.
Þetta er þá sú vitneskja, sem
vísindin hafa aflað sér á undan-
fömum árum. Á þeim verðum
við að byggja bollaleggingar
okkar um líf á Marz. Hvaða skil-
yrði teljum við nauðsynleg til að
líf geti þrifist? Og þegar við
tölum um líf, eigum við þá við
jurtalíf, dýralíf eða skynsemi-
gæddar verur?
Fyrsta skilyrðið er, að á
stjörnunni sé andrúmsloft, sem
geti stuðlað að brennslu. Við
vitum, að á Marz er andrúms-
loft, þó að það sé mjög þunnt, en
við vitum líka, að íbúar jarðar-
innar geta vanizt á að lifa í
mikilli hæð, þar sem loftið er til-
töluiega þunnt. Súrefnisskort-
urinn er auðvitað erfiður þránd-
ur í götu, en ekki er óhugsan-
legt, að lífið gæti lagað sig eftir
kringumstæðunum og komizt af
með mun minna súrefni en er
hér á jörðinni. Allar líkur benda
til, að einhver vatnsgufa sé á
Marz. Þó að hún sé af mjög
skornum skammti, ætti jurtalíf
hæglega að geta lagað sig eftir
slíku ástandi og jafnvel dýr
líka.
Ef jurtagróður er á Marz, þá
er þar fengín fæða handa dýr-
um. Ef dýr gætu því að öðru
leyti lagað sig eftir skilyrðun-