Úrval - 01.06.1942, Blaðsíða 119
ÖRLAGASTUND ENGLANDS
117
um ekki flugvélarnar, en við
heyrðum orustugnýinn og sáum
kjölfar þeirra eins og hvít
skautaför á ís. Orustan barst
fram og aftur. Þegar hún nálg-
aðist, tóku loftvarnabyssurnar
til og reistu varnarvegg með
skothríð sinni með fram strönd-
inni. Kúlnabrotum tók að rigna
niður í kringum okkur, svo að
við urðum að leita hælis undir
járnplötu í skurðinum. Heil
þýzk flugdeild kom nú í augsýn
og flaug lágt og stefndi beint
á loftvarnarbelgina, sem um-
kringdu Dover. Tveir þeirra
féllu niður í ljósum logum. En
ein þýzk flugvél fylgdi þeim.
Hún féll eins og laufblað og datt
í sundur í fallinu. Skömmu
seinna féll önnur þýzk flugvél
í sjóinn. I fallinu sáum við flug-
manninn stökkva út — en fall-
hlífin opnaðist ekki.
Við lágum í grasinu og fiðr-
ildin flögruðu allt í kringum
okkur á meðan örlög heimsins
voru ráðin uppi yfir höfðum
okkar. Við horfðum á orustuna
frá byrjun til enda, og við sáum
tundurskeytabátana bruna út á
sundið til þess að bjarga flug-
mönnunum, sem fallið höfðu í
sjóinn. Útsýnið frá höfðanum
var svo gott, að það var líkast
því sem við værum áhorfendur
í leikhúsi, enda höfðu blaða-
menn hvaðanæfa úr heiminum
safnazt þar saman.
Dagarnir, sem ég dvaldi
þarna höfðu mikil áhrif á mig
— breyttu mér raunverulega
sem einstakling. Mér hvarf allur
ótti um eigin persónu, af því
að ég fann, hve óendanlega litlu
máli það skipti, hvað um mig
yrði. Gildi okkar sem einstakl-
inga var aðeins fólgið í þætti
okkar í rás sögunnar. Ég skildi,
hvað dauðinn gat stundum haft
mikla þýðingu. Líf okkar var
eins og það var, af því að alltaf
höfðu verið til menn, sem af
fásum vilja fórnuðu lífi sínu, og
ég fann þungu fargi létta af
mér, þegar mér varð Ijóst, að
ég mundi fúslega fórna lífinu,
ef á þyrfti að halda — ég skildi
orð postulans, þar sem hann tal-
ar um að deyja til að öðlast líf-
ið. Ég fæ ekki séð, að ég þurfi
nokkurn tíma að finna til
hræðslu framar.
I hópi blaðamannanna þarna
á höfðanum voru margir ágætir
félagar. Þar var Art Menken
með kvikmyndavélina sína, allt-
af reiðubúinn til að taka myndir
— eða tala um sambandið á
milli þessarar styrjaldar og kín-