Úrval - 01.06.1942, Blaðsíða 82
80
ÚRVAL
svo að hann gæti algerlega
blekkt Rússa.“
,,Og faðir hans?“
,,Hann framdi auðvitað sjálfs-
morð. Það var líka mikill heiður
fyrir hann.“
Þannig töpuðum við rússnesk-
japanska stríðinu. En hver get-
ur sigrað þjóð, sem á þegna, er
glaðir standa andspænis byssu-
kjöftunum eða fremja sjálfs-
morð, einungis til þess að
blekkja óvinina?
Um þessa sögu segir höfundurinn:
„Þegar ég heyrði hana fyrst af vör-
um rússneska hershöfðingjans, hélt
ég að hún væri uppspuni, sem orðið
hefði til í heila hans sjálfs, en seinna
hitti ég aðra Rússa, sem einu sinni
höfðu verið i her keisarans, og heyrt
höfðu söguna. Sögðu þeir, að ýmsir
hefðu lagt trúnað á hana.“
♦ ♦♦
Falleg leikkona kom í heimsókn á hermannaspítala.
„Drápuð þér nazista?" spurði hún hermanninn i fyrsta rúminu.
„Já, einn,“ sagði hann.
„Hvora hendina notuðuð þér?“ spurði hún.
„Hægri hendina."
Leikkonan laut þá niður og kyssti á hægri hönd hans.
Hún gekk að næsta rúmi og spurði sömu spumingar.
„Já, ég drap mörg hundruð nazista,“ sagði hermaðurinn.
„Og með hvorri hendinni drápuð þér þá?“
Hermaðurinn reis ákafur upp við dogg og sagði: „Hg beit þá
alla á barkann." „Magazine Digest".
☆
Englendingur, sem kallaður var í herinn, var í skoðun hjá
augnlækni. Læknirinn bað hann að lesa fyrir sig það sem
stæði á spjaldinu. „Hvaða spjaldi?" spurði maðurinn. „Setjist
þarna i stólinn, ég skal sýna yður það,“ sagði læknirinn. „Hvaða
stól?" spurði maðurinn. Það var ekki um að villast, maðurinn
var óhæfur til herþjónustu. Þegar hann kom út frá lækninum
brá hann sér i bíó þar í grendinni. Þegar kveikt var á ljósun-
um, sá hann, sér til mikillar skelfingar, að augnlæknirinn sat
við hliðina á honum. „Afsakið," sagði maðurinn eins rólega
og hann gat, „getið þér sagt mér, hvort þessi strætisvagn fer
til Shipley ?“