Úrval - 01.06.1942, Qupperneq 90
88
ÚRVAL
mitt. Ég horfi á hann út um
gluggann, þar sem hann er að
moka fjósið, og segi við sjálfan
mig: ,,Þetta er sonur minn.“
Stundum vaknar hjá mér
löngun til þess að taka hann í
faðm mér. Ég hefi þó aldrei svo
mikið sem snert óhreina hönd
hans.
Háskólakennarinn þagnaði,
en vinur hans, þingmaðurinn,
sagði: „Já, við ættum að gefa
meiri gaum að börnum þeim,
sem engan föður eiga.“
Vindkviða þaut um lauf stóra
trésins, sem þeir stóðu undir.
Loftið var enn þrungið blóma-
angan.
Og þingmaðurinn bætti við:
,,Það er gott að vera tuttugu
og fimm ára, og það er jafnvel
einnig gott að eiga svona börn.“
00^03
N áttúrufegnrð.
Dag nokkurn, þegar ég var stödd í hinum undurfagra Yose-
mite dal, var mér sagt, að á hótelinu væri gamall maður, sem
hefði verið í hópi þeirra manna, er fyrstir fundu dalinn árið
1851. Mér lék forvitni á að sjá þann mann, sem fyrstur hvítra
manna hafði séð þetta dásamlega náttúru-undur.
„Lað hlýtur að hafa verið dásamlegt að sjá Yosemite dalinn
allt í einu breiðast út fyrir framan sig,“ sagði ég við gamla
manninn.
Gamli maðurinn spýtti út yfir altanvegginn og horfði hugs-
andi frarn fyrir sig. ,,Tja-á’“ sagði hann. „Ég skal segja yður, ef
ég hefði vitað, að dalurinn ætti eftir að verða svona frægur,
mundi ég hafa horft á hann.“
Florence Fineh Kelly í „Flower Stream".
☆
Hópur manna hafði farið í ferðalag austur að Gullfossi og
Geysi. Einn þátttakandinn var að segja frá ferðinni, og varð
tíðræddara um samferðafólkið en fegurð þessara fornfrægu
staða. „Fannst þér ekki fallegt landslag austur við Gullfoss?"
spurði áheyrandinn. Sögumanni fannst þetta sýnilega kjána-
lega spurt. „Fallegt? Nú, svona rétt eins og hvert annað lands-
lag,“ sagði hann.