Úrval - 01.06.1942, Síða 16
14
ÚRVAL
Afleiðing þessarar nýju kenn-
ingar er sú, að nauðsynlegt er
að vandað sé til umhverfis
manna, einkum þó barna, sem
gædd eru einkar góðum gáfum.
Mjög gáfaðir menn eru oft
nefndir afburðamenn, „genius“,
án tillits til þess, sem eftir þá
kann að liggja. Jafnvel vísinda-
menn gera sig oft seka um
þetta, enda þótt hitt sé algeng-
ara, að þeir segi um þá, að þeir
séu ,,stór-gáfaðir“. Segja má, að
maður, sem er 40 af hundraði
gáfaðri en almennt gerist, sé af-
burðamaður. Foreldrar slíkra
manna eru nálega alltaf mjög
gáfað fólk, og börn þeirra eru
venjulegast meira en meðal-
menn. En hins vegar er það
ekki ávallt svo, að börnum af-
burðamanna kippi í kynið.
Samkvæmt fyrrnefndri skýr-
greiningu eru nú í Bandaríkjun-
um nálega 1 milljón afburða-
manna, og þar af um það bil
2700 menn, sem standa á mjög
háu þroskastigi. En þúsundir
þeirra eru óþekktir með öllu, og
hæfileikar þeirra fá að engu
notið sín. Þeir lifa og deyja sem
óbreyttir meðlimir þjóðfélags-
ins, og eina viðurkenningin, sem
þeir fá, er ef til vill eitthvað á
þessa leið: „Hann var óvenju-
legur maður — af öskukarli að
vera.“ Eða: „Hún gat sett sam-
an 300 læknislyf án þess að líta
á lyfseðilinn.“ í þessu sambandi
er mjög athyglisverð tilraun ein,
sem gerð var með 8000 negra-
börn í Chicago, er vahn höfðu
verið af handahófi. Eitt hundr-
að þeirra reyndust mjög gáfuð,
en auk þess voru 29 börn, sem
afburða-gáfum voru gædd.
En hver er mælikvarði sá,
sem farið er eftir, þegar mönn-
um er þannig skipað í flokka?
Vísindin segja, svo að stiklað sé
á stóru, að gáfur séu fólgnar í
eftirfarandi atriðum: minni,
skarpskyggni og rökfestu og
hæfileikanum til að einbeita
huganum. Fyrir nokkrum árum
settu vísindin saman kerfi, sem
meta má eftir gáfur manna. Er
það í því fólgið, að leggja fyrir
menn spurningar, sem þyngri
eru en virðist í fyrstu, þrautir,
svo og prófun á minni manna,
með því að láta þá hafa eftir
7—8 tölur, sem lesnar hafa ver-
ið upp í belg og biðu. Er hundr-
uð þúsunda slíkra tilrauna höfðu
verið gerðar, var meðaltal tek-
ið og sett sem 100. Sé einhver
10 af hundraði fyrir neðan þetta
meðaltal, er sagt að hann hafi
gáfnatöluna, „intelligence quot-