Úrval - 01.06.1942, Síða 25
„ÉG HEPI UPPLIFAÐ UMRÓT GENGISHRUNSINS"
23
Emil drakk sitt út, og af ein-
hverri sérvizku hrúgaði hann
öllum tómu flöskunum niður í
kjallara. Árið 1922 fékk Rudolf
eitt frímerki fyrir inneign síno,
en um svipað leyti seldi bróðir
hans flöskurnar fyrir nokkrar
billjónir marka.
Þegar hér var komið hætti
bókhaldarinn að telja. Það var
tilgangslaust. I árslok 1923 voru
vikulaunin hans komin upp í
150.000.000.000 marka. Þá kost-
aði eitt egg 125.000.000 marka,
pund af brauði eða kartöflum
100.000.000, pund af hveiti 150.-
000.000 og pund af smjöri 300,-
000.000.000 mörk. Rudolf gat
hvorki talið né gert uppreisn. Á
meðan hópar kröfugöngumanna
fóru um Kurfiirstendam og
brutu búðarglugga, læddist Ru-
dolf flóttalega fram hjá og
þrýsti sér skelfdur upp að hús-
veggjunum.
Hann dó á geðveikrahæli —
eina staðnum, þar sem andlega
heilbrigðir menn gátu um þess-
ar mundir leitað hælis.
Á jóladag 1923 birtist í „Ber-
liner Tageblatt" ritstjórnar-
grein undir fyrirsögninni „Rent-
enmark“. Undir greininni stóð
dr. Horace Hjalmar Greeley
Schacht. Kom þar í fyrsta skipti
opinberlega fram tillaga um
stofnun nýrrar myntar -—■
„Rentenmark" —, sem rikið
ábyrgðist og væri innleysanleg
í gulli innan eins árs. Viku
seinna tók dr. Luther, banka-
stjóri Ríkisbankans, upp þessa
hugmynd dr. Schachts, tók
hann sér til aðstoðar og á rúm-
um tveim vikum var gengis-
hrunið á enda.
Það var ekki fyrr en æðið var
hjá liðið og „gjaldþrot gjald-
þrotamannanna“, sem drógu
heil lönd niður með sér, hófst,
að hið sanna eðli gengishruns-
ins, hagfræðilega og þjóðfélags-
lega séð, kom að fullu fram í
dagsljósið.
Mönnum varð smám saman
Ijóst, að orsök gengishrunsins
var hin þunga kvöð, sem skaða-
bótakröfur Bandamanna lögðu
á þýzku þjóðina. Á árunum 1921
til 1923 námu skaðabótagreiðsl-
urnar 132.000.000.000 marka í
peningum og vörum, s. s. kolum,
búpeningi, timbri o. fl. Svar
Þjóðverja við þessum óbilgjörnu
kröfum var „hin óvirka mót-
staða“, sem tók á sig mynd
gengishrunsins.
Þegar gengishrunið var allt í
einu hjá liðið, reyndu menn að