Úrval - 01.06.1942, Page 29
MYNDUN SAMBANDSRIKIS
27
úr sögunni. Öll framleiðslan
mundi fara, ekki til Breta eða
Bandaríkjanna, heldur til hins
volduga hers ríkjasambandsins.
Allar tafsamar umræður um,
hve mörg gömul herskip Banda-
ríkin mættu við að láta af hendi
við Breta, yrðu ónauðsynlegar.
1 stað þess myndi brezki og
ameríski flotinn undir sameigin-
legri stjórn halda uppi ströngu
hafnbanni og fylgja skipalest-
um örugglega um heimshöfin.
Áróðursmenn nazista halda
því fram, að lýðræðisríkin séu
aðgerðalaus, veik og viðbragðs-
sein. Stofnun ríkjasambandsins
mundi verða verðugt svar við
þessum fullyrðingum.
Fréttin um að mynduð hefði
verið ný þjóð, voldugri og stærri
en nokkru sinni hefir áður
þekkzt í heiminum, mundi koma
eins og reiðarslag yfir Hitler og
vekja nýjar vonir í brjóstum
hinna kúguðu þjóða.
Sú staðreynd, að öllum þjóð-
um, sem ekki búa við pólitíska
harðstjórn, væri frjálst að
ganga í sambandið, mundi hafa
eins mikil áhrif á Evrópuþjóð-
irnar og Þjóðabandalagshug-
mynd Wilsons Bandaríkjafor-
seta, sem átti mikinn þátt í upp-
gjöf Þjóðverja 1918. Þjóðverjar
þarfnast hráefna og markaða
fyrir útflutningsvörur sínar,
segið þér. Allt ríkjasambandið
— með sínum ótakmarkaða,
frjálsa markaði, þar á meðal
mest allri olíu-, gúmmí- og gull-
framleiðslu heimsins, stendur
þeim eins opið og Ameríku-
mönnum og Englendingum,
undir eins og þeir hafa losað
sig undan harðstjórn nazista.
Það er þess vegna, sem sam-
bandið mundi bjóða frið strax,
án nokkurra skaðabóta eða
landvinninga. Svo voldugt ríkja-
samband sem þetta gæti hæg-
lega beðið þangað til hin kúgaða
Evrópa bryti af sér klekki naz-
ismans. Möndulveldin mundu
auðvitað ekki geta gengið að
þessum skilmálum, en neitun
þeirra mundi verða þeim ákaf-
lega mikill siðferðilegur hnekkir.
Eftir stríðið mundi svo skap-
ast ágætt tækifæri til að ná því
takmarki, sem aldrei náðist eftir
fyrri heimsstyrjöld: að skapa
lýðræðinu öryggi í heiminum.
Þjóðabandalaginu og brezk-
franska bandalaginu tókst þetta
ekki, af því að samningum eða
samvinnu tveggja eða fleiri
ríkisstjórna fylgir alltaf af-
brýðisemi, svik og alls konar
hrossakaup. Engin slík banda-