Úrval - 01.06.1942, Side 40
Hin miklu mistök Bandaríkjanna
Samþjöppuð grein úr „Life“
eftir Walter Iáppmann.
D andaríkjaþjóðin vígbýst nú
^ af meira krafti en nokkurn
tíma fyrr í sögu sinni. Ástæðan
er sú, að hún finnur, að yfir
henni vofir sú hætta að standa
Höfundur þessarar greinar er einn
af merkustu stjórnmálaritstjórum
Bandaríkjanna. Að af-loknu háskóla-
námi 1910 stofnaði hann ásamt öðr-
um blaðið „The New Republic“. 1
fyrri heimsstyrjöld var hann aðstoð-
armaður Bakers hermálaráðherra,
starfsmaður í upplýsingamálaráðu-
neytinu og ritari nefndar, sem safna
átti gögnum, er nota skyldi við frið-
arsamningana. Seinna varð hann rit-
stjóri „New York Herald“. Greinar-
flokkur eftir hann undir nafninu ,,t
dag og á morgun“, hefir í tíu ár
birzt í „New York Herald Tribune“
og 100 öðrum blöðum í Ameríku. - -
Grein þá, sem hér birtist, skrifaði
Lippmann rétt áður en Japanir hófu
árás sína á Bandarikin á meðan deil-
urnar milli einangrunarsinna og and-
stæðinga þeirra stóðu sem hæst, og
varpar hún einkar skýru ljósi yfir
stjórnmálaþróunina í Bandaríkjunum
fram að þeim tíma, er greinin var
skrifuð.
ein andspænis óvinveittum þjóð-
um. Hún býr sig undir stríð, af
því að hún veit, að einungis með
vinnu og baráttu verður þessari
hættu bægt frá. Þó kemur þessi
viðbúnaður ekki að fullu gagni
fyrr en þjóðin hefir gert sér það
ljóst, að þetta mikla átak er
nauðsynlegt vegna þess að hana
hefir hent meiri mistök og ör-
lagaríkari en dæmi eru til áður í
sögu lýðveldisins.
Fyrir tuttugu árum vorum
við Bandaríkjamenn forystu-
þjóðin í heiminum, öryggi okkar
óhagganlegt og ósæranlegt. All-
ar voldugustu þjóðir jarðarinn-
ar voru vinir okkar. I dag erum
við umkringdir af bandalagi
stórþjóða í Evrópu og Asíu,
sem býst nú til að brjóta á bak
aftur síðustu mótstöðu Eng-
lands, Kína og Rússlands.
Þetta eru afleiðingarnar af
utanríkismálastefnu okkar. —
Engin orð, engin fagurgali um
friðarást, getur breytt þeirri