Úrval - 01.06.1942, Page 79

Úrval - 01.06.1942, Page 79
HARAKIRI 77 ekki japanskan hugsunarhátt." Svo sneri hann sér allt í einu að mér, horfði fast í augu mér og sagði: ,,Þér getið hjálpað mér, kapteinn, ef þér viljið. Hver eru skilyrði yðar?“ Ég gladdist með sjálfum mér jrfir því, að sigurinn skyldi reyn- ast svo auðunninn. En ég svar- aði hikandi: ,,Ég er ekki viss um, að ég geti hjálpað yður. Að minnsta kosti yrðuð þér að fara úr landi.“ ,,Auðvitað. Og hvað fleira?“ Þessi spurning kom svo flatt upp á mig, að mér varð orðfall. Loksins tókst mér þó að stynja upp: ,,Ég verð að spyrja yfir- boðara mína um það.“ Þegar ég kom aftur á skrif- stofuna, sagði ég félögum mín- um frá samtalinu og skilmálun- um. Þeir hlógu hátt að þeim hugsunarhætti, að japanskur liðsforingi af tignum ættum skyldi bjóðast til að hjálpa leyniþjónustu óvinaþjóðar, til þess að forða sér úr klóm ómerkilegrar leikkonu. „Hann gerir sér ekki háar hugmyndir um skarpskyggni okkar,“ sagði Oblomov majór, yfirmaður minn. „Japönum hlýtur að vera mjög mikið áhugamál að láta okkur í té falskar upplýsingar. En það væri skömm að taka ekki þátt í skrípaleiknum með honum. Við gætum beðið hann að láta okkur fá afrit af fyrir- skipunum um herflutninga við Port Arthur og í Suður Man- chúríu. Það getur verið gaman að sjá, hvað japanska hermála- ráðuneytið vill telja okkur trú um. Við getum verið vissir um, að það verður alveg gagnstætt því, sem þeir hafa í hyggju.“ Við ræddum málið fram og aftur og ákváðum loks að taka þátt í skrípaleik Tanama. Hann fór frá Pétursborg daginn eftir. Þetta var að áliðnu sumri 1902, og við vorum í óðaönn að búa okkur undir stríðið, sem virtist óumflýjanlegt. Við gleymdum Tanama, þangað til í desember um haustið, að pakki kom til okkar í gegnum utanríkisráðu- neytið frá hermálasérfræðing okkar í Tokyo. I pakkanum voru skjöl með nákvæmum upplýs- ingum um fyrirhugaða liðflutn- inga Japana í kringum Port Arthur. Hvar ætti að setja lið á land, hvernig ætti að dreifa því og hvert væri hlutverk hvers flokks um sig. Við rannsökuðum þessi skjöl nákvæmlega. Það voru í þeim ýmsar óvæntar nýungar í
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.