Úrval - 01.06.1942, Page 88

Úrval - 01.06.1942, Page 88
86 ÚRVAL og ógeðslegri en skepna. Hann fór allur hjá sér, hætti að flissa og flýtti sér á brott. Ég gat ekki um annað hugs- að. En að hvaða gagni kom það? Ég reyndi að telja mér trú um, að það væri fásinna, að ímynda sér að þessi veslingur væri son- ur minn. En allt kom fyrir ekki. Ég lét ekki sannfærast. Stund- um þóttist ég viss um, að grun- ur minn væri réttur. Ég gat ekkert borðað og fór því upp í herbergið mitt. Lá ég þar lengi andvaka. Þegar ég loksins gat sofnað, tóku draum- arnir við. Mig dreymdi að hálf- vitinn kæmi flissandi til mín og segði: ,,Pabbi!“ Þá breyttist hann allt í einu í hund, gelti og reyndi að bíta mig. Hann kall- aði saman samkennara mína við háskólann til þess að að taka ákvörðun um, hvort ég væri fað- irinn. Einn þeirra hrópaði: „Það er engum efa bundið. Þeir eru nauðalíkir.“ Mér fannst þetta einnig og gat ekki hrakið hugsunina á brott. Ég ákvað að tala við manninn aftur og athuga hann nú gaum- gæfilega. Næsti dagur var sunnudagur. Ég mætti manninum fyrir utan kirkjudyrnar. Ég stöðvaði hann, gaf honum nokkra franka og virti hann fyrir mér um leið. Hann fór að flissa, muldraði eitthvað í barm sér og hafði sig þvínæst á brott. Þann dag þjáðist ég engu minna en daginn áður. Um kvöldið gaf ég mig á tal við gest- gjafann, sagði honum að ég kenndi í brjósti um þennan vesaling og hefði hug á að gera eitthvað fyrir hann. Maðurinn svaraði: „Hugsið ekki um hann, herra minn. Hann þarfnast einskis. Hann hreins- ar fjósið og annað getur hann ekki gert. Fyrir það gef ég hon- um að éta og svo sefur hann hjá hestunum. Ef þér eigið gömul föt, þá skuluð þér gefa honum þau, en ekki munu þau endast lengi.“ Ég svaraði engu. Manntetrið kom augafullur heim um kveldið. Minnstu mun- aði að hann kveikti í húsinu, hann hálf-drap einn hestinn og sofnaði að síðustu á mykju- haug. Gestgjafinn bað mig lengst allra orða að gefa honum ekki oftar peninga, því að hann drykki þá alla út og yrði þá óður. Að gefa honum aura væri að gera honum bölvun. Ég fór upp í herbergið mitt,
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.