Úrval - 01.06.1942, Page 93
AÐDRÁTTARAFLIÐ
91
Aðrir ætla, að það berist með
hraða Ijóssins, þ. e. 300000 km.
á sek., en við verðum að viður-
kenna, að við vitum það ekki.
Newton var uppi frá 1642 til
1727, og lögmál hans var sett
fram árið 1684. Það stóðst ná-
kvæmustu tilraunir, sem fram-
kvæmanlegar voru, og því talið
fullsannað. Þannig hefir staðið
fram á síðustu ár, eða þar til
Albert Einstein setti fram sína
víðfrægu afstæðiskenningu.
Fjallar hún einnig um aðdrátt-
arafl það, sem er milli tveggja
hluta.
Þessi kenning er byggð á
allt öðrum grundvelli en lög-
mál Newtons, en þó skakkar svo
litlu á niðurstöðunum, að þess
gætir ekki nema þegar reiknað
er með stjarnfræðilegum stærð-
um og vegalengdum. Lögmál
Newtons er í raun réttri sér-
stakt afbrigði af lögmáli Ein-
steins, sem er víðfeðmara.
Hér nægir að geta þess, að
samkvæmt kenningu Einsteins
er aðdráttaraflið eiginleiki
rúmsins, sem fram kemur þegar
efni er fyrir hendi. En ég hygg
að þið séuð mér sammála í því,
að ekki verði málið auðskildara
með því að segja, að aðdráttar-
aflið sé eiginleiki rúmsins, eins
og Einstein vill vera láta, held-
ur en að það sé eiginleiki efnis-
ins, eins og Newton kenndi.
Hinn sorglegi sannleiki er sá,
að þrátt fyrir alla okkar þekk-
ingu og nákvæmu tæki, vit-
um við ekki, hvað aðdráttarafl
er. Við getum reiknað með því
og mælt það víða, en við vitum
ekki, hvað það er, og komumst
ef til vill aldrei að því.
Án tillits til þess, hvort af-
stæðikenningin er rétt eða ekki,
má varpa fram þeirri spurningu,
hvort aðdráttarafl muni vera
milli allra hluta, hversu smáir
eða stórir, sem þeir eru. Gætir
þess til dæmis milli atoma, sem
öll efni eru byggð af, og eru
margfalt minni en svo, að þau
sjáist í stærstu smásjá? Ekki er
það öldungis víst, en líkurnar
eru þeim megin.
Við vitum að þess gætir í okk-
ar sólkerfi, en gætir þess alls-
staðar í óravíddum himinhvolfs-
ins, f jarlægðum, sem ljósið berst
frá á milljónum ára, en það fer,
sem fyrr segir 300000 km. á
sek.? Sennilegast er það. En
eigi hjálpar þetta oss til að
svara spurningunni: ,,Hvað
veldur aðdráttaraflinu ?“
+