Úrval - 01.06.1942, Qupperneq 131
Fylgt úr lilaði. Framhald af öftustu kápusíðu.
að því meira sem þeir lesa þeim mun meira finnst þeim þeir
eiga ólesið af því, sem hugurinn girnist. Það, sem út kemur af
góðu lestrarefni í heiminum, er svo mikið að vöxtum, að engum
er gefið að komast yfir nema örlítið brot af því, ekki einungis
vegna þess, hve mikið það er, heldur engu síður vegna þess, hve
dýrt og erfitt er að afla þess, því að jafnan er það svo, að með
góðu lestrarefni flýtur meira og minna af efni, sem maður hefir
enga löngun til að lesa og sér eftir að hafa eitt tíma í.
Hin nýju tímarit hafa sett sér það markmið að létta undir
með fólki í þessu efni. Starfshð þeirra hefir tekizt á hendur að
pæla í gegnum það lestrarefni — bækur, biöð og tímarit —
sem föng eru á, velja úr því það, sem ætla má að eigi erindi
til fjöldans og birta það að nýju.
Það er almennt viðurkennt, að flestum mönnum lætur betur
að túlka hugsanir sínar i löngu máli en stuttu. Allar málaleng-
ingar eru á hinn bóginn mjög í ósamræmi við þá öld hraðans,
sem við lifum á. Hin nýju tímarit tóku sér því fyrir hendur að
sníða lestrarefni því, sem þau völdu til birtingar, nýjan stakk
með því að taka burtu allt, sem mátti missa sig, án þess að
kjarni málsins liði við það nokkurn hnekk. Á ensku máli er
slíkt lestrarefni kallað „condensed“. Hér í IJrvali köllum við það
samþjappað. Reynslan hefir sýnt, að algengar tímaritsgreinar
má að meðaltali „stytta“ um þriðjung án þess að efni og bygg'
ing þeirra bíði við það nokkurt tjón. Sumar greinar þola
auðvitað minni samþjöppun en aðrar aftur miklu meiri. Með
þessu móti geta tímaritin flutt þriðjungi meira efni á jafn
mörgum blaðsíðum, og lesandinn getur lesið jafn mikið á þriðj-
ungi styttri tíma.
Úrval hefir tekið sér fyrir hendur að innleiða þetta tímarits-
form hér á landi. Aðstandendur þess eru ekki í neinum vafa
um, að þetta tímaritsform á eftir að verða jafn vinsælt hér eins
og annars staðar í heiminum. Hinu verður svo tíminn að skera
úr, hvort Úrval reynist þeim vanda vaxið að ryðja brautina í
þessu efni.
Úrval hefir tryggt sér fjölda tímarita til að vinna úr, og
marga góða menn, sem munu ljá því lið í leitinni að efni.