Úrval - 01.12.1942, Side 32
30
ÚRVAL
leynast meðan blóðbaðið stóð
yfir, komu úr fylgsnum sínum,
drápu Mongólar þá líka. Höfuð-
in voru alltaf höggvin af, til
þess að enginn gæti látizt vera
dauður. I einni einustu borg
voru 500.000 óbreyttir borgarar
brytjaðir niður. Það er engin
leið til að komast að því með
nokkurri vissu, hversu margar
milljónir hann lét taka af lífi.
Þannig voru aðferðirnar, sem
Djengis khan hafði til að leggja
undir sig heiminn. Hann lézt
árið 1227, 66 ára að aldri. Hann
stóð þá á hátindi veldis síns.
En hernaðurinn hélt áfram,
þótt hann dæi Eftirmenn hans
urðu yfirdrottnarar allrar Asíu.
Þeir sóttu lengra vestur í
Evrópu, sigruðu Ungverja, Pól-
verja og Þjóðverja. Engin þjóð
stóðst þeim snúning. Vald Mon-
góla var enn hið mesta í heimi
undir stjórn Kublai khans, son-
arsonar Djengis khans.
En að lokum liðaðist það í
sundur í höndum dáðlausra og
úrkynjaðra afkomenda hins
mikla khans. Nú á dögum eru
Mongólar aðeins áhrifalaus hóp-
ur hjarðmannaættbálka. Kara-
korum er horfin undir foksand
Gobi-auðnarinnar og jafnvel
nafn hennar er næstum gleymt.
En nafn Djengis khans er
ekki gleymt meðal hermanna.
Þess vegna er það, að MacArt-
hur hershöfðingi ráðleggur
mönnum að kynna sér betur
hugmyndir hins mikla mon-
gólska hershöfðingja um „hinar
óhagganlegu grundvallarreglur
hernaðarins".
Þegar frá er skilin „hin misk-
unnarlausa grimmd hans, villi-
mennska og morðfýsn, standa
þessar reglur eftir sem kjami
eilífs sannleika, jafn hagnýtur
í dag og hann var fyrir 700 ár-
um.“
Fjölskylda á ferðalag’i.
Maður nokkur, sem frægur var fyrir einkennileg orðatiltæki
tókst ferð á hendur með fjölskyldu sína til Reykjavíkur og
ætlaði þar að leita læknis. Þegar hann var spurður, hvert erindið
hefði verið, svaraði hann:
„Áki fór upp á augun, Kiddi fór upp á eyrun, Inga fór upp á
hálsinn, Gunna fór upp á magann, konan fór upp á krakkana —
og ég fór upp á konuna.“