Úrval - 01.09.1960, Page 86
TJRVAL of margt
artalan hélzt há. Nú er hin ár-
lega fólksfjölgun á Ceylon
næstum 3%, ein hin mesta í
heimi. Og það sem gerzt hefur
á Ceylon, er í þann veginn að
gerast næstum hvar sem auga
lítur í fjarlægari Austurlönd-
um. Eftir f jörutíu ár verða Ind-
verjar orðnir ein billjón og Kín-
verjar hálf önnur billjón, ef nú-
verandi hlutföll haldast óbreytt.
Nýjar talfræðilegar rann-
sóknir á hinum vanþrosku þjóð-
um heims leiða í ljós, að fjölg-
un þeirra er meira en helmingi
örari, en í þeim löndum sem
lengra eru á veg komin. Að
fjörutíu árum liðnum munu
þrír fjórðu hlutar alls mann-
kynsins lifa á þeim svæðum,
sem í dag eru skemmst komin á
þróunarbraut sinni.
Hvemig verður líf þessara
nýju billjóna? Lífskjör núlifandi
kynslóðar eru grátlega bágbor-
in. Ef fæðingartalan lækkar
ekki, þá má telja það næstum
öruggt að lífskjörunum hrakar,
unz mannleg bágindi setja að
lokum hömlur við barnsfæðing-
um —• sennilega þó ekki fyr en
lýðræðinu hefir verið varpað
fyrir borð, til eflingar einhvers-
konar einveldi — sennilegast
kommúnisku einveldi.
Julian Huxley, sem hafði á-
stæðu til að kynna sér ástandið,
þegar hann var yfirmaður UN-
ESCO. hefur sagt:
,,Ailt bendir til einnar niður-
stöðu. Meðan neyta verður
allra ráða til að auka fram-
FÖLK! HVAÐ GETUM VIÐ GERT?
leiðslu matvæla, auðvelda út-
býtinguna, fá þær þjóðir „sem
hafa“ til að útbýta á heiðar-
legri hátt gæðum heimsins
meðal þeirra þjóða „sem ekki
hafa,“ getur þetta eitt þó ekki
fyrirbyggt ógæfuna. Takmörk-
un bameigna er líka nauðsyn-
leg og það eins fljótt og mögu-
legt er.“
Þjóðfélagslega og trúarlega
afstöðu gagnvart takmörkun
fólksfjölda — betra heiti en
„takmörkun barneigna“ í þessu
sambandi — eru mjög mismun-
andi. I hinum frumstæðari lönd-
um er úreltur landbúnaður enn
þá aðalatvinnuvegurinn og af
þeim sökum eru börnin velkom-
in, vegna þeirra gagnlegu verka,
sem þau geta leyst af hendi
þegar á unga aldri. Af hinum
trúarlegu atriðum er hin hefð-
bundna undirgefni undir „guðs
vilja“ sennilega það máttugasta.
En enda þótt öll trúarbrögð —•
Búddatrú, Hindúismi, frumstæð
andatrú, Múhameðstrú og Róm-
versk-kaþólsk trúarbrögð —
innihaldi atriði, sem hvetja til
getnaðar, þá halda samt engir
því fram, að slíkt ætti að vera
ótakmarkað.
Kaþólskri kenningu hættir
við að vera misskilin jafnvej af
mörgum kaþólskum mönnum.
Jafnframt því sem þess er
vænst af kaþólskum mönnum,
að þeir hlýði hinni biblíulegu
skipun, að „vera frjósamir og
margfaldast“, þá er víðtækur
sveigjanleiki leyfður.
80