Úrval - 01.09.1960, Blaðsíða 111
EP ÞJQE.VERJAR HEFÐU SIGRAÐ
URVAL.
Farís og Rivieran áttu að vera
bannsvæði fyrir Frakka.
Páfastólinn átti aö afnema.
Hitler ráðgerði að taka Vati-
kanið og reka páfann út.
Englandi átti að koma á kné,
síðan átti það að verða banda-
lagsríki Þýzkalands.
Rússland átti að verða víð-
áttumikil nýlenda Ríkisins.
Og Bandaríkjunum, sem
komin væru á heljarþröm vegna
útilokunar frá heimsverzlun
undir þýzkri stjórn, átti að
koma á kné í stríði við þýzk-
brezka bandalagið.
* *
Þeir, sem muna eftir útvarps-
tilkynningum og fyrirsögnum
blaða fyrir tuttugu árum, minn-
ast einnig óttans og kvíðans,
sem ríkjandi var á þeim örlaga-
þrungnu tímum.
En þó okkur hryllti við, viss-
um við ekki hið sanna. Það var
raunar ekki fyrr en eftir út-
komu þýzku bókarinnar ,,Borð-
skraf Hitlers,“ að hægt var að
gera sér fulla grein fyrir ráða-
gerðum þessa sálsjúka einræðis-
herra.
,,Borðskraf“ er skýrsla um
hádegis- og kvöldverðarsamtöl
Hitlers frá því í júlí 1941 þang-
að til í júlí 1942, endurskrifuð
af vini og fulltrúa hans Martin
Bormann. Þar er skýrt frá hroll-
vekjandi atriðum, sem jafnvel
Niirnbergréttarhöldunum tókst
ekki að draga fram í dagsljósið-
Hér eru staðreyndimar —
og þær eru aðeins hluti af hinni
djöfullegu áætlun um heimsyfir-
ráð.
Ef svo vildi til, að þú værir af
yfirburðarkynflokknum, lá
heimurinn fyrir fótum þér. Eng-
ar siðferðisreglur eða hömlur
náðu til þín. Ein af hinum
„heilögu skyldum“ þýzkra
manna og kvenna var að auka
kyn sitt sem mest, til þess að
nóg væri af Þjóðverjum fvrir
hið víðáttumikla Ríki Hitlers.
Ef þú varst af hinu svonefnda
„góða evrópukyni," sem tók til
Norðurlandabúa og Hollendinga,
varðst þú að vinna með ofur-
mennunum og fékkst að njóta
sérréttinda þeirra. Ef þú varst
fæddur Pólverji, Tékki, Júgó-
slavi eða Rússi, hefðirðu senni-
lega verið vanaður og settur í
þrælabúðir.
Ef þú varst Gyðingur og svo
heppinn að hafa sloppið við gas-
klefana hefðir þú að líkindum
verið fluttur til Madagaskar.
Spáni, Gíbraltar, Norður-
Afríku og Asoreyjum átti að
ráða stjórn, sem væri undirgef-
in Þýzkalandi. „Ef Franco
reyndist örðugur, verður að
setja annan í hans stað,“ sagði
Hitler stutt og laggott.
Frakkland átti að lúta stjórn
Ríkisins í einu og öllu. Það átti
að hvetja menn til kynblöndun-
ar Frakka og Þjóðverja, báðum
löndum til gagns.
Mussolini átti að ráða ítalíu,
Grikklandi og Júgóslavíu, en
Hitler ætlaði sjálfur að taka að
sér páfann.
105