Gátt - 2010, Blaðsíða 111
111
F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S
g á T T – á R S R I T – 2 0 1 0
við í vinnunni við raunfærnimat á Norðurlöndunum kynntar
og einnig var fjallað um mat á raunfærni á sviðum eins og
í þriðja geiranum, æðri menntastofnunum og iðnaði. Þátt-
takendur voru rúmlega 80.
NVL á Íslandi hefur áhrif á fullorðinsfræðslu á Íslandi,
netið nær til ólíkra markhópa, fyrirtækja, stofnana, stéttar-
félaga, og fræðslu- og símenntunarmiðstöðva. Íslendingum,
sem tekið hafa þátt í ýmsum viðburðum á vegum NVL á
Íslandi, hefur fjölgað verulega í gegnum árin og þeir voru
um 400 árið 2009.
3.2 Fagráð verslunar og þjónustu
Í samningi milli Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins og Starfs-
menntasjóðs verslunar- og skrifstofufólks og Fagráðs versl-
unar- og þjónustugreina (FVÞ) er Fræðslumiðstöð atvinnu-
lífsins falið að framkvæma tiltekin viðfangsefni á sviði
fræðslumála. Að FVÞ standa Lands samband íslenskra versl-
unarmanna (LIV), VR og Samtök atvinnulífsins (SA).
Í samþykktum FVÞ segir að tilgangur þess sé að efla
menntun og fræðslu meðal starfsmanna verslunar- og þjón-
ustufyrirtækja og kynna og koma námsefni á framfæri við
fræðsluaðila, fyrirtæki, starfsmenn og aðra hagsmunaaðila.
Fimmta starfsári Fagráðsins er nú að ljúka. Eftirfarandi
markmið hafa verið í starfinu:
hafa eftirlit með að starfstengt nám fyrir verslunar- og •
þjónustugreinar fari fram sam kvæmt þörfum og óskum
fyrirtækjanna og nemendanna
vakta nýjar menntaþarfir innan greinanna og koma •
þeim í framkvæmd
skapa tengingu við menntamálaráðuneytið og halda •
uppi hagsmunum og áfram haldandi þróun starfsnáms
fyrir verslunar- og þjónustugreinar
Vinnuhópur NVL í norrænu færniþróunarverkefni.