Gátt - 2010, Blaðsíða 70

Gátt - 2010, Blaðsíða 70
70 F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S g á T T – á R S R I T – 2 0 1 0 og ratminni og ég þarf ekki að hafa farið leið nema einu sinni til að rata hana aftur. Védís hafði mikið reynt að byggja mig upp í gegnum árin en ég sjálfur braut mig niður jafn harðan. Þessi greining og þetta námskeið er eitt það besta sem fyrir mig hefur komið. Þarna vorum við 11 eða 12 í sömu stöðu og í heila viku frá klukkan átta til fimm sátum við og vorum að leira stafi, við sem erum lesblind sjáum allt mynd- rænt. Bara það að vera innan um fólk sem hafði gengið í gegnum það sama og ég og geta rætt við það um þessa upp- lifun hjálpaði mér mikið. Ég sé alls ekki eftir því að hafa farið á þetta námskeið eða leiðréttingu eins og ég kalla það. Ég er í dag ekki greindur hálfviti. Helgi getur í dag lesið blöð og tímarit sér til ánægju en þykkar bækur leggur hann ekki í. – Ég þarf að hafa gott næði til þess að geta lesið, það kostar mikla einbeitingu af minni hálfu. Þóra Björk prófaði að láta mig lesa af glærum með mismunandi litum en fyrir mig er verst að lesa svarta stafi á hvítum grunni. M Í N V A N L Í Ð A N V A R A L V E g A Ð g E R A ú T A F V I Ð M Ö M M U Helga verður í viðtalinu tíðrætt um þær kynslóðir fólks sem ólust upp við einelti og skilningsleysi sökum lesblindu sinnar enda eru alls ekki mörg ár síðan lesblinda varð viðurkennt vandamál á Íslandi. Helgi segir að mikilvægt sé að viðurkenna vandamálið strax frá upphafi og vinna með það sem slíkt, en lesblindum eru oft gefnar aðrar náðagáfur til að takast á við vandann. – Tungumál voru mér sérstaklega erfið og voru þeir tímar mér erfiðir. Þá sat ég bara þarna algjörlega utanveltu og líðanin eftir því. Kannski var það þess vegna sem mamma studdi mig þegar ég ákvað á sínum tíma að hætta í skóla, því mín vanlíðan var alveg að gera útaf við hana, segir Helgi og á nýjan leik dimmir yfir svip hans er skólaganga æskunnar er rifjuð upp. – Það voru í rauninni eingöngu tveir kennarar sem reynd- ust mér sérstaklega vel varðandi bóklegar greinar, og sem ég leit upp til. Ég hugsa hlýlega til þeirra enn í dag. Til hinna kennaranna get ég aldrei litið upp til, segir Helgi. Tilfinningar hans eru í samræmi við upplifun hans af skólaárunum. – Ég var á þessum árum orðinn svo viðkvæmur fyrir gagnrýni að ég þoldi ekki að vera í hópíþróttum, þar sem ég gat átt á hættu að vera skammaður fyrir mistök, heldur sótti ég í einstaklingsíþróttir og gekk vel í hestaíþróttinni. E K K I U p p g j A F A R M A Ð U R Í E Ð L I S Í N U Helgi hefur mestan hluta starfsævi sinnar starfað hjá útgerð- inni, ýmist á sjó eða í landi. Undanfarin ár hefur hann unnið í landi. Fyrst á unglingaheimilinu Háholti þar sem hann kunni vel við sig og nú síðast í Mjólkursamlaginu. – Þegar ég vann hjá útgerðinni við löndunina þurfti ég stundum að skrifa vinnuskýrslur og fleira og þá æfði ég mig heima. Ég miklaði það mikið fyrir mér en á endanum var það allt í góðu lagi, segir Helgi. Þrátt fyrir að hafa hætt í skóla hefur hann aldrei í lífi sínu gefist svo auðveldlega upp. – Ég var alltaf sjóveikur þegar ég fór á sjóinn aftur eftir frítúra en ég lét það aldrei aftra mér frá því að sækja þessa vinnu, heldur lét mig hafa það. Frekar hefði ég drepist en að gefast upp, segir Helgi. Við fellum talið og blaðamaður sem ávallt hefur átt við sjóveiki að glíma getur ekki annað en tekið ofan fyrir mann- inum sem aldrei gefst upp. U M H Ö F U N d I N N Guðný Jóhannesdóttir er ritstjóri héraðsfréttablaðsins Feykis og fréttamiðilsins feykis.is.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Gátt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Gátt
https://timarit.is/publication/1852

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.