Gátt - 2010, Blaðsíða 69
69
A F S j ó N A R H ó L I
g á T T – á R S R I T – 2 0 1 0
auðvitað var þetta á milli tannanna á fólki enda mátti þetta
strangt til tekið ekki. Ég lét mér fátt um finnast enda átti ég
stuðning míns fólks og fór að vinna hjá útgerðinni.
Þrátt fyrir að hafa lent í miklu mótlæti leitaði Helgi aldrei
huggunar í áfengi eða öðrum vímugjöfum og áfengi hefur
hann aldrei smakkað. – Það má segja að skepnurnar sem
pabbi var alltaf með hafi bjargað mér og eins átti ég fullorðna
menn sem góða og trausta vini. Í þeirra hópi var ég einn af
félögunum. Þetta voru karlar sem voru eldri en pabbi. Ég var
ekki nema 12 ára þegar ég fór fyrst ríðandi yfir Kjöl með þrjá
gamla karla með mér. En þetta voru vinir mínir og þeir voru
ekki að agnúast út í það hvort ég gæti lesið eða ekki.
Ég spyr Helga út í hvernig honum hafi gengið þegar kom
að því að taka bílpróf? – Það gekk vel, móðir mín hlýddi mér
yfir textana og eins tekst mér yfirleitt mjög vel til með krossa-
spurningar, mun betur en þegar ég þarf að koma hlutunum
niður á blað. Það fer svo mikil orka í að lesa spurninguna að
oft og tíðum er ekki mikil orka eftir til þess að skrifa svörin,
þó er ég ekki skrifblindur. Eins fór ég í meiraprófið og það
gekk líka vel. Eigi að síður fer maginn á mér algjörlega í hnút
þegar ég heyri minnst á orðið próf, svarar Helgi og er greini-
legt á öllu að konurnar í lífi hans, móðir hans og eiginkona
hafa reynst honum sannir bandamenn. Það var einmitt Védís
eiginkona Helga sem var búin að skrá hann í lesblindugrein-
ingu hjá Þóru Björk í Farskólanum eitt sinn er hann kom heim
af sjónum.
– Ég hafði sjálfur lengi velt þessu fyrir mér en orðið skóli
var nóg til þess að fæla mig frá. Síðan hafði ég alltaf þá
afsökun að ekki væri boðið upp á svona námskeið hér fyrir
norðan heldur þurfti að fara suður auk þess sem þau voru
dýr. Það var því hið besta mál að hún skyldi taka af skarið
með þetta, segir Helgi og Védís sem hefur setið með okkur á
orðið. – Sonur okkar hafði þá nýlega greinst með lesblindu
og það var ekki síður til þess að hjálpa honum að ég skráði
Helga í þessa greiningu og í framhaldinu á Ron Davis nám-
skeið (námskeiðið heitir Aftur í nám og er ein af vottuðum
námsleiðum Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins, athugasemd
frá ritstjórn Gáttar) í Farskólanum. Sjálf höfum við hvað
varðar son okkar mjög góða upplifun af starfinu í skólanum
og hvernig tekið er á hans málum þar. Öllum samnemendum
hans hefur verið gerð grein fyrir vandanum og því verður
vandamálið honum mun léttara viðfangs en það var pabba
hans á sínum tíma, segir Védís.
é g E R Í d A g E K K I g R E I N d U R
H á L F V I T I
– Ég játa að ég var skíthræddur við að fara í þetta enda hafði
skömmin yfir þessu alltaf verið svo mikil. En sú upplifun mín
var farin að smita hér inn á heimilið gagnvart syni okkar og
því varð ég að fara að gera eitthvað í mínum málum. Það var
rosalega gott að fá þessa greiningu og um leið viðurkenningu
á því að maður væri ekki hálfviti. Auðvitað vissi ég það ein-
hvers staðar djúpt undir niðri sjálfur, segir Helgi og glottir.
– Það er nefnilega þannig að við sem eru lesblind fáum
oft eitthvað annað í staðinn. Ég hef til dæmis mjög gott sjón-
Helgi Ingimarsson